Bændablaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 24

Bændablaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. september 202124 Tengslamyndun er nauðsynleg, að kunna samskipti við veröldina í kringum sig og að skynja sig sem hluta af heild. Mikil áskorun við slíkt, áskorun við félagslega tilveru, slæm upplifun og viðbrögð einstaklinga er eitthvað sem hefur verið tekist á við í gegn- um tíðina og greint sem raskanir á einhverfurófi. Einhverfa er samheiti hegð- unareinkenna, sem tengjast truflun á taugaþroska og koma í ljós fyrst á leikskólaaldri. Einhverfu er ekki hægt að greina með lífeðlisfræði- legum prófum en er heldur greind með þroskaprófum og beinni athug- un á atferli manneskjunnar. Innan einhverfurófsins má finna meðal annars Aspergersheilkennið sem er ódæmigerð einhverfa, en þroska- röskun engu að síður. Félagsleg samskipti Algengt er meðal einhverfra einstak- linga að geta til félagslegra sam- skipta er skert og fylgir oft vanlíðan; þunglyndi og/eða kvíði. Skynáreiti, að lesa í aðstæður eða annað fólk er þeim erfitt og því er mikilvægt að viðkomandi mæti skilningi, fái einstaklingsmiðaðan stuðning og aðlögun athafna og aðstæðna. Ýmsir þættir líkt og félagslíf, tækifæri til náms og aðrar félags- legar aðstæður skipta miklu máli fyrir virka þátttöku einstaklinga í lífinu, líkt og hjá öðrum, og því sjálf- sagt að mæta þeim með skilningi. Tölvu- og byggingarleikurinn Minecraft kemur sterkur inn Minecraft gengur út á að byggja mannvirki úr kubbum þar sem spilarinn skapar og vinnur innan þrívíddarheima sem myndaðir eru úr miklum fjölda mynstraðra kubba. Leikurinn sem slíkur hefur ekkert sérstakt markmið, en þó er innbyggt í hann hvatakerfi. Þessi skemmti- legi tölvuleikur virðist höfða vel til einhverfra einstaklinga, hægt er að byggja sinn eigin heim án utan- aðkomandi áreita ef vill, leikurinn er ekki kvíðavaldandi og undir eru spilaðir rólegir klassískir tónar. Árið 2013 ákvað vefhönnuður að nafni Stuart Duncan að bæta um betur og setti upp Minecraft net- þjón, eingöngu ætlaðan einstakling- um með einhverfu og fjölskyldum þeirra. Honum að óvörum óskuðu mörg hundruð manns eftir að fá að vera með í því sem hann kallar „Autcraft“ og státar nú samfélagið af að minnsta kosti 8.000 meðlim- um. Netsamfélag býður upp á tjáskipti Autcraft er, eins og gefur að skilja, ekki eins og hvert annað netsamfélag heldur aðstoðar það einhverf börn og einstaklinga að æfa félagslega færni. Þarna er leið til að tjá sig og eiga samskipti án þess álags sem getur orðið í mannlegum samskiptum og ekki þörf á að lesa í líkamlega tjáningu, svipbrigði eða augnsam- bönd meðspilara sinna. Félagslegu samskiptin eru þarna einungis yfir lyklaborðið og heyrnartólin. Aukin félagsfærni Virkni Autcraft vakti athygli og fylgst var með leikmönnum þess yfir netið vegna rannsóknar um mögu- lega félagsfærni sem þarna átti sér stað. Í kjölfar rannsóknarinnar kom í ljós að þarna tengdust aðilar vin- áttuböndum, tjáðar voru tilfinningar svo sem gleði yfir leiknum en einnig kvíði eða sorg yfir vandamálum raunveruleikans. Forstöðukona PEERS Clinic við háskólann í Kaliforníu, Elizabeth Laugeson, sem kennir ungum full- orðnum með einhverfu hvernig á að byggja upp sambönd – telur að ganga í samfélag á borð við Autcraft sé gott skref í áttina að því að minnka félagslegan kvíða og tilheyra samfé- lagi. Auðvitað er heimur Minecraft ekki sambærilegur við raunheima en þó má kynnast því hversu öflugt og mikilvægt félagslegt umhverfi er. Að tilheyra hópi sem miðast við sameiginlegt áhugamál, í góðu og hvetjandi umhverfi, hefur mikil og góð áhrif á líðan. Þeir sem forvitnir eru um Autcraft geta heimsótt síðuna www.autcraft.com og fengið frekari upplýsingar. /SP Gaman er að segja frá því að hún Steinunn Grímsdóttir, meina- tæknir, göngugarpur og dyggur lesandi Bændablaðsins, tók þá ákvörðun fyrir nokkru að dreifa blaðinu í nærliggjandi hús, enda í því að finna bæði alþýðlegt og fjölbreytt lesefni sem flestir ættu að geta lesið sér til ánægju. Blaðamaður fór á stúfana og spjallaði við þessa brosmildu, hressu og skemmtilegu konu og hún segir svo frá. „Það vildi þannig til að við hjónin náðum okkur alltaf í blað- ið þegar það kom út og þar sem við búum í þjónustuíbúðum voru nokkrir nágrannar sem spurðu mig hvort mögulega væri hægt að kippa eintaki með fyrir sig. Þannig á tímabili var ég að sækja fyrir sjö til níu manns að staðaldri. Ég tel það ekkert eftir mér. Veistu, það er fullt af fólki hérna sem styðst við göngugrind eða hjólastól, sem kemst ekki sjálft – þannig það skiptir mig engu þó ég sæki nokkur í viðbót. Það er stór hópur fólks sem er hrifið af blaðinu, sumir elska krossgátuna, og allir geta fundið sér eitthvað. Þetta vatt upp á sig og við bættust heilmargir, eða næstum því fimmtíu manns!“ segir Steinunn hlæjandi og sýnir mér lista þar sem nöfn íbúa og íbúðanúmer eru vand- lega skrifuð niður. „Þetta er bara skemmtilegt enda hef ég kynnst fullt af fólki fyrir vikið.“ Aldur er bara tala á blaði Steinunn gengur talsvert mikið, ef til vill að vinna upp liðinn tíma, en að eigin sögn gat hún ekki gengið vegna liðagigtar í tuttugu ár. Eftir að taka fæðuna í gegn, taka meðal annars út papriku, epli, appelsínur, vínber, rauðvín og annað sem mælist „súrt“ þegar kemur að pH-gildi líkamans, þá hleypur hún um rétt eins og unglingur. „Þegar ég varð sjötug gáfu börn- in mín mér úr sem telur skrefin og ætli ég gangi ekki 14–16 þúsund skref daglega að meðaltali. Hef þó farið upp í 20 þúsund!“ En ég lenti nú aldeilis í því í einni gönguferðinni. Þá var ég á gangi með nágrannakonu minni – sem varð mér til lífs því hjartað stoppaði og ég féll og höfuðkúpu- brotnaði. Nágrannakonan bjargaði lífi mínu og hringdi beint á 112 enda tímaspursmál þegar svona kemur fyrir.“ Bros að launum „En ég held ótrauð áfram, mikið er um langlífi í minni ætt þó við eigum það líka til að vera hrakfallabálkar og ég er þakklát fyrir þá góðu heilsu sem ég bý við. Eins og ég segi alltaf; aldur er bara tala á blaði og að vera hraustur er ekki sjálfsagt. Nú hef ég oft verið spurð að því hvort ég fái laun fyrir að bera svona út Bændablaðið en ég segi – ég fæ ekki peninga, ég hef engan áhuga á því – en fullt af fallegum brosum og þakklæti! Mér finnst það miklu meira virði.“ Steinunn er hin hressasta, telur dreifinguna ekki eftir sér, enda upplagt að sameina hana reglu- bundnum gönguferðum sínum og hafa nágrannarnir ákaflega gaman af. Þarna má segja að að haldist í hendur iðkun heilsusamlegs lífernis, bæði á sál og líkama. Eitthvað sem allir ættu að hafa í fyrirrúmi enda stór hluti hamingjunnar að gleðja aðra, jafnframt því að hugsa vel um sjálfan sig. /SP LÍF&STARF Steinunn Grímsdóttir: Gleðin fólgin í því að gleðja aðra Steinunn kampakát með listann góða. Netsamfélag ætlað einstaklingum á einhverfurófi: Aukin félagsfærni með aðstoð Autcraft Tölvuleikurinn Minecraft nýtur mikilla vinsælda víðs vegar um heiminn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.