Bændablaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 38

Bændablaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. september 202138 Narfasel er nýtt garðyrkjubýli undir Hafnarfjalli: Fundu jarðnæði sem var ekki í boði í Sviss Á bænum Narfaseli, undir Hafnarfjalli í Borgarfirði, hafa svissnesku hjónin Laurent og Lola Balmer sest að og stunda þar grænmetisræktun úti og inni í gróðurhúsi. Þau fluttust til Íslands snemma á síðasta ári og hafa reist sér íbúðarhúsnæði, geymslu og lítið kornsíló á landinu – auk veglegs 450 fermetra gróðurhúss. Þau hófu ræktun strax á fyrsta ári á Íslandi, brutu fjórðung úr hektara lands til metnaðarfullrar útiræktun- ar en ræktuðu sérstök tómatayrki, ýmsar tegundir af salati, kúrbít, kryddjurtir, spírur og fleira undir gróðurhúsaplasti. Meira jarðnæði í Sviss ekki í boði Fyrir áttu þau fimm ára farsæl garð- yrkjuár að baki í Sviss, en áttu þar ekki kost á því jarðnæði sem þau sóttust eftir. Þau fóru því að svip- ast um eftir hentugum aðstæðum í öðrum löndum til að setjast að og komust að þeirri niðurstöðu að Ísland myndi passa þeim full- komlega. „Ég er menntaður í hefð- bundinni búfræði og sjálfmennt- aður í garðyrkju, ég er einnig með tæknifræðimenntun, sem hefur komið að góðum notum hér við húsbyggingar,“ segir Laurent. „Til að fjárhagsáætlun okkar gangi upp þurfum við að gera eins mikið sjálf og við mögulega getum – og ég hef til dæmis að langmestu leyti sjálfur teiknað, hannað og reist þennan húsakost okkar. Við vorum með farsælt garð- yrkjufyrirtæki í Sviss sem við seldum og svo fengum við hagstætt lán frá einkaaðila í Sviss,“ segir Laurent þegar hann er spurður um hvernig þau hafi fjármagnað þetta ævintýri á Íslandi. „Fyrsta árið einbeitum við okkur að þeim tegundum sem við höfum náð góðum árangri með í Sviss – og við erum komin með fimm svín sem við ætlum að nota til kjötframleiðslu. Við fengum þau í mars og vorum fyrst í stað með þau inni í gróðurhús- inu en hleyptum þeim svo út þegar veður leyfði en við erum með gott landrými fyrir slíkan búskap, því landið er alls um 28 hektarar.“ Áskorun garðyrkjubænda undir Hafnarfjalli Laurent játar að búferlaflutningarnir séu heilmikil áskorun fyrir fjöl- skylduna og sömuleiðis hafi hann heyrt miklar sögur um að „veðrið undir Hafnarfjalli“ geti verið þol- raun fyrir garðyrkjubændur. „Við vitum nú að gróðurhúsið okkar þolir í það minnsta hviður upp á 32 metra á sekúndu, en það er við því að búast að plastið gefi sig ef hér koma mjög miklar hviður. Þá verður að öllum líkindum bara tjón á plasti, því við smíðina á sjálfri grindinni á gróðurhúsinu var gert ráð fyrir að hún þyldi mikinn vind. Við leggjum upp úr því að vera ekki með varnarefni í okkar rækt- un, hvorki skordýra- eða illgres- iseitur. Það kostar auðvitað meiri handavinnu en við teljum að það sé vel þess virði. Við erum með smá hita hér í gróðurhúsinu, en við vilj- um til dæmis í tómataræktuninni að vöxturinn á aldinunum sé ekki of hraður. Við sækjumst eftir meiri bragðgæðum en almennt er í boði, sem við fáum með vali á tilteknum yrkjum. Við ræktum líka beint í jarðveginum sem ég tel að skipti máli varðandi bragðið.“ Laurent segir að þau hafi feng- ið mjög góðar móttökur á Íslandi, bæði frá nágrönnunum – sem hafa lagt hönd á plóginn – og svo streyma viðskiptavinirnir til þeirra um hverja helgi, en þau reka litla sveitaverslun við íbúðarhúsið sitt. „Við erum mjög ánægð með viðtökurnar sem vörurnar okkar hafa fengið. Við sendum líka til sveitunga okkar einu sinni í viku; í Borgarnes á Hvanneyri og á Akranes.“ Byrjuðu á spíruræktun Eitt af fyrstu verkunum hér var að byrja ræktun á skjólbeltum. Við settum niður um 4.500 trjáplöntur á síðasta ári. Við hófum svo í febrúar ræktun á spírum – til dæmis ertu- og radísuspírur – og svo bættust tegundir við jafnt og þétt fram á sumar. Það eru veitingastaðir hér í nágrenni okkar sem kaupa mest af spírunum,“ segir Laurent sem vonast til að geta ræktað innandyra eitthvað fram á vetur. „Svo verðum við auðvitað með talsvert grænmeti úr útiræktuninni í geymslum sem við seljum yfir allt árið, eins og hvítkál, rauðkál, gulrætur og kar- töflur,“ bætir hann við. „Helsta verkefnið fyrir næsta ræktunarár er að tvöfalda útisvæð- ið og við munum leggja sérstaka áherslu á framboð grænmetis sem er árstíðabundið. Þá er líka stefnan að vinna úr uppskerunni okkar og framleiða vörur eins og súrkál og fleira í þeim dúr í litlu framleiðslueldhúsi sem við erum að koma okkur upp,“ segir Laurent að lokum um verkefnin næstu vikur og mánuði. /smh LÍF&STARF Útiræktunin í Narfaseli er stunduð á fjórðungi úr hektara lands, en stefnan er að tvöfalda það fyrir næsta ár. Hafnarfjall í baksýn. Myndir / smh Frá sveitaversluninni í Narfaseli. Mynd / Narfasel Laurent og Lola Balmer eru svissneskir garðyrkjubændur sem settust að undir Hafnarfjalli á síðasta ári. Hector, yngsti sonur þeirra, er hér með þeim á mynd.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.