Bændablaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. september 2021 35
þar sem hann notaði norskt birki
með víxlunum við Emblubirki. Gæði
þess yrkis voru ljós þegar Skógrækt
ríkisins fagnaði hundrað ára afmæli
árið 2010.
„Því fannst mér tilvalið að nefna
það Kofoed til heiðurs þessari mik-
ilvægu stofnun og fyrsta skógrækt-
arstjóra landsins,“ segir Þorsteinn.
Rauða birkið frá
Finnlandi og tilurð Heklu
Á sjöunda áratugnum fannst sér-
stæð rauðblaða björk í nánd við
bæinn Oulu í Finnlandi. Í fyrstu eru
laufblöðin græn en breytast svo og
verða dumbrauð. Hún vakti áhuga og
hefur verið seld í ræktunarstöðvum
á Norðurlöndunum. Guðmundur
Vernarðsson í Mörk og Ólafur
Njálsson í Nátthaga fengu leyfi til
að flytja inn ellefu vefjaræktaðar
plöntur af þessari tegund og af þeim
fékk Þorsteinn eina.
„Finnar töldu að plantan væri
geld og því ekki hægt að fjölga henni
öðruvísi en með vefjarækt og því eru
öll trén af sömu arfgerð. Niðurstaðan
af ræktun þessara ellefu trjáa er að
ekkert þeirra þrífst við íslenskar
aðstæður og flestar eru dauðar. Ég
lagði mig eftir að skoða þessi tré á
Norðurlöndum þegar færi gafst og
sá að á þeim uxu fræreklar, að vísu
lélegir. Ég bað vini í Skandinavíu að
safna fræi af plöntunni og áskotnað-
ist fræ frá fimm stöðum. Fræið gaf
heilmargar plöntur og var helmingur
þeirra rauður en hinn helmingurinn
grænn. Það er því ljóst að þessi rauði
eiginleiki stýrist af einum ríkjandi
erfðavísi. Þannig munu grænu trén
eingöngu gefa græna afkomend-
ur en rauð planta mun gefa rauða
og græna til helminga. Þessi rauði
og græni erfðahópur reyndist mun
betri til ræktunar á Íslandi en upp-
runalega finnska yrkið og með því
að nota besta tréð til áframhaldandi
kynbóta og víxlunar við tré af Kofoed
yrkinu batnaði ræktunarhæfnin enn
verulega og er Hekla ein arfgerð úr
þeim áfanga. Frjó af Heklu hef ég
svo notað í víxlunum við birki frá
meðal annars Rússlandi og Asíu og
fyrstu vísbendingar um árangur eru
ævintýralegar en það verður tilefni í
aðra umfjöllun.“
Rauðblaða birkið flytur
„heim“ til Finnlands
Maður er nefndur Leif Blomqvist
og rekur garðplöntustöð í nánd við
Oulu í Finnlandi. Leif hefur lagt sig
sérstaklega eftir að bjóða upp á yrki
sem henti til ræktunar garðplantna á
norðlægum slóðum og lagt áherslu
á harðgerð yrki af berjategundum.
Hann hefur og skrifað vinsælar bækur
um þá iðju og hlotið opinberar viður-
kenningar. Leif hefur selt margvís-
legar garðplöntur til Íslands.
„Í tengslum við það hélt hann
fyrirlestur á vegum Garðyrkjufélags
Íslands fyrir nokkrum árum en ég sat
þá í stjórn þess. Ég sýndi honum hvað
ég væri að gera og hann lýsti áhuga á
að fá að prófa framleiðslu á eftirlætis
trénu í safninu til sölu í Finnlandi
og á öðrum norðurlöndum. Ég sendi
honum grein af trénu og yrkinu
var fjölgað með vefjarækt. Ég nýtti
tækifærið og pantaði í leiðinni fram-
leiðslu á örplöntum til ræktunar hér.
Landbúnaðarráðuneytið og MAST
veittu heimild til innflutningsins þar
sem plönturnar eru framleiddar í ger-
ilsneyddu umhverfi á rannsóknastofu.
Áður en erfðaefnið fór til Finnlands
varð ég að velja því nafn og kaus að
kalla það Heklu til að minna væntan-
lega kaupendur á upprunann auk þess
sem nafnið tengist vitaskuld rauðum
lit eldgosa.“
Leif hefur lýst því að Hekla hafi
áhugaverða sérstöðu miðað við
upprunalega rauða birkið sem lagði
Heklu til litinn á laufinu, bæði í lit
og ræktunareiginleikum en sala þess
hefst næsta vor.
Prófanir á Heklu á Íslandi
Áður en ný yrki eru sett á markað er
rétt að reyna þau við margvíslegar
aðstæður til að sanna ræktunarhæfni
þeirra.
„Á RALA og nú á Landbúnaðar-
háskóla Íslands eru margvísleg
plöntuyrki prófuð og á grundvelli
niðurstaðna er gefinn út listi yfir þau
yrki sem mælt er með. Þetta er mik-
ilvæg þjónusta við landbúnaðinn þar
sem miklir fjármunir fara í súginn ef
röng sáðvara er notuð. Skógræktin
leggur út margvíslegar tilraunir með
trjátegundum en margar þeirra eru
þannig að endanlegur dómur fellur
seint. Einu samanburðarrannsókn-
ir með birki sem Emblu yrkið var
hluti af stóðu lengi áður en ágæti
þess var staðfest. Af þessum ástæð-
um leitaði ég leiða að fá afgerandi
mat á gæðum Heklu fljótt og ákvað
að nota mér mikinn og jákvæðan
áhuga sem mætt hefur þessari vinnu í
birkinu. Úr vefja ræktuðu örplöntun-
um af Heklunni hafði ég náð að
framrækta um 300 plöntur og naut
þar góðrar aðstöðu í ræktunarstöð
Reykjavíkurborgar. Kann ég Auði
Jónsdóttur rekstrarstjóra og hennar
samstarfsfólki miklar þakkir fyrir.
Vorið eftir fengu ríflega hundrað
manns tvær plöntur hver til ræktunar
víða um land gegn því að skila upp-
lýsingum um þrif þeirra. Afföll eru
smávægileg og vöxtur víðast frábær,“
segir Þorsteinn.
Metið virðist eiga Pétur
Halldórs son, kynningarstjóri Skóg-
ræktarinnar, sem gróðursetti eina
plöntu í garð sinn á Akureyri þar sem
hún óx 85 sentímetra í sumar og er
mjög limfögur.
„Að auki má nefna að móðurtrénu
sem stendur í garði okkar hefur ekki
orðið misdægurt í sex ár. Það standa
því góðar vonir til að álykta að hér sé
komið yrki sem glatt geti garðeigend-
ur og garðyrkjustjóra sem vilja lífga
upp á gróðurrækt sína með þessu
sérstæða dumbrauða yrki,“ segir
Þorsteinn.
Plöntukynbætur nauðsynlegar
Plöntukynbætur eru að sögn Þorsteins
hluti af hagvörnum landsins og þær
þarf að efla. Aðlaga þarf efnivið að
breyttu veðurfari og bregðast við
hlýnun.
„Núverandi fjármögnunarkerfi
rannsókna gerir þetta starf mjög erfitt
af því að verkefnið þarf að vera stöð-
ugt í gangi til langs tíma í senn þó
sjálfsagt sé að endurskoða það með
jöfnu millibili. Í skógrækt búum við
yfir mikilli auðlegð í óhemjumiklu
og breytilegu erfðaefni af mörg-
um tegundum sem Skógræktin og
margir áhugamenn hafa safnað og
er í ræktun víða um land. Í birkikyn-
bótunum er sýnt fram á miklar fram-
farir í árangri ræktunar og þeim má
einnig ná og ekki síður í mörgum
þessara innfluttu tegunda. Flestar
þjóðir eru með hagvarnaráætlan-
ir en lítið fer fyrir þeim hjá okkur.
Kæruleysi hefur einkennt afstöðuna
til þessa en umræðan um bættar
hagvarnir er að aukast sem er vel.
Óábyrg er notkun hins óskiljanlega
hugtaks „framandi ágeng tegund“.
Notkun þess hugtaks hefur leitt til
þess að sumir hafa ályktað að við
séum skuldbundin til þess að rækta
einungis skóglendi með erfðaefni
úr birkikjarri. Þá gleymist að maður
og búpeningur hans hafa gerbreytt
erfðasamsetningu birkis þannig að
lágvaxið kræklótt kjarr sem kann
að vera fallegt ásýndar er allt annað
en það sem óx um landnám. Nægir
að geta þess er Hjalti Skeggjason
lét byggja haffært skip úr íslensku
timbri í Þjórsárdal í lok tíunda aldar
og sigldi til Noregs. Áhugavert væri
að sjá íslenska skipasmiði leika það
eftir með þeim trjám sem nú má finna
í íslensku skóglendi, jafnvel þar sem
öflugustu birkitrén vaxa nú. Nýlega
hefur ríkisstjórn samþykkt svonefnda
Bonn-áskorun og sett markið á að
íslenskt birki þeki 5% af landinu.
Það væri mjög misráðið að notast
eingöngu við fræ úr kjarri sem oft
kallast staðarbirki. Slíkir skógar skila
litlum nýtanlegum afurðum, binda
takmarkað magn kolefnis og eru
erfiðir yfirferðar, sannkallað ótræði
svo vitnað sé í orðnotkun Hákonar
Bjarnasonar, fyrrverandi skógrækt-
arstjóra.“
Finnski garðplöntuframleiðandinn Leif Blomqvist hefur hafið framleiðslu á Heklu. Trén fara á markað þar á næsta ári. Hér sést hann innan um breiðu af Heklutrjám í uppvexti. Mynd /Leif B.
Hekla er í víðtækri prófun víða um land og taka um 100 manns þátt í henni.
Flest trén vaxa mjög vel og er metið 85 cm sumarvöxtur. Hér sést Þröstur
skógræktarstjóri sáttur með sína Heklubjörk. Fagurhvítur Emblustofn sést í
bakgrunni. Mynd /Þröstur Eysteinsson
Garðyrkjustöðin Mörk hefur frá upphafi lagt fram ómetanlega aðstöðu til
birkikynbótanna. Hér sést Guðmundur Vernharðsson við kynbótaplöntur
sem sumar hverjar koma til nota næsta vor. Mynd /ÞT
Dumbrauður litur Heklubjarkarinnar
verður efalaust garðaprýði í náinni
framtíð. Mynd ghp