Bændablaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. september 2021 7
„Réttarstörfin gengu alveg ljómandi vel,“
segir Böðvar Baldursson, bóndi í Ysta
Hvammi í Aðaldal eftir velheppnaðan
réttardag.
Féð var um 5.000 talsins, litlu færra en í
fyrra því eitthvað var um að bændur væru
með fé heima. Í Hraunsrétt koma saman
bændur í Aðaldal og yfirleitt hefur mikið
fjölmenni safnast saman í þessa fornfrægu
og fögru rétt. Böðvar segir að nú hafi fólk
ekki í sama mæli og oft áður verið hvatt til
að koma og fylgjast með enda reglur í gildi
um fjölda þeirra sem saman mega koma.
„Það eru alltaf einhverjir gestir að fylgj-
ast með en ekki sami fjöldinn og oft áður,“
segir hann.
Veðrið lék við bænd-
ur og búalið þegar réttað
var og segir Böðvar að
allir hafi notið dagsins.
Smalamennska
gekk vel í
góða veðrinu
og helst hefðu
kindur viljað
vera lengur á
fjalli segir hann að gróður þar sé enn mikill
og góður miðað við árstíma.
„Mér sýnist fé koma vænt af fjalli, yfir
meðallagi gott,“ segir hann. /MÞÞ
LÍF&STARF
Það bar við þann 5. september síð-
astliðinn, að Einar Kolbeinsson
bóndi í Bólstaðarhlíð, eignaðist
afmæli. Þann dag sendi hann mér vísu
sem hann ætlaði í vísnaþáttinn, en þá
var ég nýbúinn að efna í þann þátt, svo
vísan fékk ekki inni. En hér kemur vísa
Einars:
Af fögnuði ég fnæsi og styn
og finnst mér safnast auður,
því ekki kæmu afmælin
ef ég væri dauður.
Tilurð næstu vísu er svofelld: Skúli
Ágústsson frá Birtingaholti fékk um-
gangsboðsbréf að dansleik á Selfossi. Skúli
skilaði boðsbréfinu, en reit þessa vísu á
bakhliðina:
Ég held ég láti hófið bíða,
mér hentar ekki þetta rall,
hættur að drekka, dansa og ríða,
hvern djöfulinn á ég að gera á ball?
Jón Magnússon orti um harðar ritdeilur
þeirra Guðmundar Friðjónssonar á Sandi
og Sr. Sigurðar Einarssonar:
Þó að fimur Siggi sé
og sveifli vígðum brandi,
svitnar hann við að koma á kné
karlinum á Sandi.
Jónas í Hofdölum orti um lífshlaup sitt:
Listir iðka ég löngum þrjár:
Lesa, prjóna og skrifa.
Finnst mér þó að fjölgi ár
furðu gott að lifa.
Baldvin skáldi kom öli bættur í hús þar
sem margt fólk var saman komið. Ekki þótti
honum mannvalið mikilla gæða:
Faktors þjónar fylla glös,
færist tjónið svínum,
hér er dóna drukkin ös,
dimmt fyrir sjónum mínum.
Baldur á Ófeigsstöðum í Köldukinn orti
í minningu mjólkurkýrinnar Skrautu, sem
reynst hafði heimilinu vel:
Nú er Skrauta fallin frá
að fósturjarðar skauti,
átján sinnum undir lá
okkar besta nauti.
Ef til vill er ástæðulaust að vera að ýfa
gömul sár, en þessi vísa frá árinu 1965
er samt sígild að mínu mati. Hana orti
Þorsteinn Matthíasson skólastjóri:
Hyggnir reynast Húnvetningar,
halda þeir sig bestu menn.
Þó held ég að Þingeyingar
þrauki í fyrsta sæti enn.
Til vinar orti Björn Jónsson frá Haukagili:
Við höfum báðir, vinur minn
verið háðir sprundum,
leitað og þráð, en léttúðin
leiknum ráðið stundum.
Um Friðgeir Axfjörð orti Gísli Árnason:
Að drykkfeldni, svikum og drambi þekkt,
sinn djöful má hver og einn bera.
Með afbrigðum lygið og ómerkilegt
er ættfólk þitt talið vera.
Næstu tvær stökur eru Bjarna Jónssonar
frá Gröf. Mergjaðar skammarvísur ortar
ónefndum:
Það er vont að vera rauður,
vera til og sýnast maður.
Helvíti vildi ég vera dauður
en vera þannig innréttaður.
Allt þig brestur eðli manns,
ekkert sést af viti.
Einhver besti andskotans
ertu nestisbiti.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
282MÆLT AF
MUNNI FRAM
Feðgarnir Guðbergur, Ægir Eiríksson og Björn Grétar.
Oddný Lára Guðnadóttir, Pálmholti
Reykjadal, kampakát við réttarstörfin.
Um 5.000 fjár skiluðu sér í Hraunsrétt í Aðaldal á dögunum. Á innfelldu myndinni til vinstri eru Guðmundur Bjarnason og Jón Bergmann Gunnars-
son á Húsavík og hægra megin uppi eru Sæþór bóndi í Presthvammi Gunnsteinsson og Hólmgrímur Kjartansson á Hrauni í Aðaldal.
Myndir / Aðalsteinn Árni Baldursson
Hraunsrétt í Aðaldal:
Vel heppnaður réttardagur í blíðskaparveðri
Hrannar Guðmundsson og Guðmundur Ágúst Jónsson úr Fagranes-
koti og Böðvar Baldursson úr Ystahvammi.
Sædís Rán Ægisdóttir og Berta María Björnsdóttir
frá Húsavík tóku þátt í réttunum.
Fólk á öllum aldri komu í réttina.