Bændablaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 32

Bændablaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. september 202132 Anja Egger-Meier er svissneskur hrossaræktandi íslenska hestsins sem hefur einstaklega gott auga fyrir gæðingum ef marka má hesteign hennar. Hryssan hennar, Katla frá Hemlu II, er hæst dæmda kynbótahrossið á Íslandi í ár. Katla er undan heiðursverðlauna- stóðhestinum Ský frá Skálakoti og Spyrnu frá Síðu. Ræktendur henn- ar eru Anna Kristín Geirsdóttir og Vignir Siggeirsson en Anja keypti hana árið 2019. „Ég sá Kötlu fyrst á Landsmóti hestamanna árið 2016. Þá var hún fjögurra vetra gömul. Ég heillaðist af hreyfingamýktinni í henni og reyndi að fá hana keypta, en hafði ekki erindi sem erfiði fyrr en þremur árum síðar,“ segir Anja. Á þessu Landsmóti keypti hún hins vegar tvær aðrar ungar hryssur af kynbótabrautinni sem hafa síðan þá sannað sig sem stólpagæðingar. Þetta eru Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli og Viðja frá Hvolsvelli, sem hlaut 9,00 fyrir hæfileika sem reyndist hæsti hæfileikadómur ársins 2019. En aftur að Kötlu. Fjölhæfur listagæðingur Anja segir Kötlu sérstakan karakter, hún sé mjög kurteis, yfirveguð og samstarfsfús. Undir það tekur Árni Björn Pálsson, þjálfari hryssunnar. „Katla er listagæðingur frá náttúrunnar hendi. Að mörgu leyti endurspeglar hún það sem við erum að leita að í ræktun íslenska hestsins. Hún er stór og glæsileg í byggingu, framhá og með mikla útgeislun. Svo er hún einstaklega fjölhæfur gæðingur.“ Katla hlaut í aðaleinkunn 8,77. Þar af hlaut hún 8,56 fyrir sköpulag og 8,88 fyrir hæfileika. Þar af hlaut hún einkunnina 9,0 fyrir tölt, skeið, hægt tölt og fegurð í reið og 9,5 fyrir samstarfsvilja. Kostir Kötlu hafa svo endur- speglast í góðum árangri á keppnisbrautinni að undanförnu. Þannig hlutu þau Árni Björn og Katla einkunnina 7,73 í forkeppni Fimmgangs F1 á Íslandsmótinu í hestaíþróttum í sumar sem mun vera hæsta einkunn í forkeppni í ár. Að sögn Önju mun Katla vera í þjálfun hér á landi fram yfir næsta Landsmót. Framúrskarandi hestagull Anja hefur verið forfallinn hrossa- ræktandi í sautján ár. Hún er mikill fagurkeri sem heillast af útgeislun, fallegu höfuðlagi og gangmýkt í hrossum. Anja segist vilja rækta falleg gæðahross og hestakostur hennar er ekki af verri endanum. Meðal hrossa í hennar eign eru stóðhest- arnir Draupnir frá Stuðlum og Ódinn vom Habichtswald, sem hún á í sameign með Frauke Schenzel á Kronshof. Auk fyrrnefndra gæð- ingshryssa segist hún halda mikið upp á Þórhildi frá Hamarsey og Lýdíu frá Eystri-Hól, báðar hryssur með einkunnina 9,5 fyrir tölt. Góður aðbúnaður mikilvægur Hún segist heimsækja hrossin sín á Íslandi reglulega. Samstarf hennar við hrossaræktendur og þjálfara nær þó víða um Evrópu, þannig vinnur hún mikið með Frauke Schenzel á Kronshof í Þýskalandi auk þeirra Markus Albrecht í Sviss og Bjarna Jónassonar bæði í Sviss og á Íslandi að ónefndu farsælu samstafi hennar við Árna Björn Pálsson. Hrossin hennar séu því víða. „Ég tel afar mikilvægt að hross- unum líði vel, að þeim sé búinn góður og rúmur aðbúnaður þar sem þau eru, hvort sem það er í þjálfun eða úti í haga,“ segir Anja. Hún er dugleg við að ríða út og nefnir þrjú eftirlætis hross í reið- túrum. „Það er tvímælalaust Katla, svo stóðhesturinn Ódinn vom Habichtswald og hyssan Úlfhildur frá Strönd, en hún er með 9,5 fyrir tölt og ég er með hana heima í Sviss.“ Anja getur að sönnu verið stolt af hryssunni sinni Kötlu, sem er ekki bara hæfileikabúnt heldur glæsileg á velli. Hún hlaut m.a. einkunnina 9 fyrir höfuð og prúðleika. Myndir / Nicki Pfau Katla er bæði rúm, þjál og yfirveguð. Hún er jafnvíg á tölt og skeið en hér fer hún fallega undir eiganda sínum. HROSS&HESTAMENNSKA Katla einkunnagjöf Höfuð 9,00 Vel opin augu - Skarpt/þurrt - Bein neflína Tölt 9,00 Léttstígt - Góð fótlyfta - Skrefmikið - Rúmt - Takthreint Háls/herðar/bógar 9,00 Mikil reising - Hátt settur - Hvelfdur Brokk 8,50 Há fótlyfta - Skrefmikið - Hvelfd yfirlína - Takthreint Bak og lend 8,00 Afar öflug lend Skeið 9,00 Rúmt - Skrefmikið - Sniðgott - Taktgott Samræmi 9,00 Fótahátt - Sívalvaxið - Hlutfallarétt Greitt stökk 8,50 Góð skreflengd - Rúmt Fótagerð 8,50 Hægt stökk 8,50 Góð skreflengd - Takthreint Réttleiki 7,50 Afturf.: Nágengir Samstarfsvilji 9,50 Mikil framhugsun - Þjálni - Yfirvegun Hófar 8,00 Fegurð í reið 9,00 Há fótlyfta - Góð reising - Góður höfuðburður Prúðleiki 9,00 Fet 8,50 Góð skreflengd - Takthreint Sköpulag 8,56 Hæfileikar 8,88 Aðaleinkunn 8,77 Hægt tölt 9,00 Há fótlyfta - Skrefmikið - Mjúkt Hæfileikar án skeiðs 8,86 Aðaleinkunn án skeiðs 8,76 Sköpulag Hæfileikar SVFR leitar að veiðisvæðum, sér í lagi fjölskylduvænum svæðum þar sem kynslóðirnar geta veitt saman. Við horfum til ár- og vatnasvæða með góðri veiðivon, sérstaklega svæða þar sem bæði börn og fullorðnir geta notið sín. Ef þörf er á aðstöðu, t.a.m. veiðihúsi, er félagið reiðubúið í samtal um að koma að þeirri uppbyggingu. Allar hugmyndir eru vel þegnar, þær skal senda á framkvæmdastjóra SVFR, Sigurþór Gunnlaugsson, í tölvupósti á sigurthor@svfr.is. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu félagsins í síma 568 6050. SVFR var stofnað 1939 og er traustur samstarfsaðili. Tilgangur félagsins er m.a. að styrkja stöðu stangaveiði sem almennings- og fjölkskylduíþróttar. Lykilþáttur í þeim tilgangi er að efla áhuga barna og unglinga á stangaveiði með fræðslu og góðu aðgengi að ár- og vatnasvæðum. Ár- og vatnasvæði óskast! STOFNAÐ 1939 Næsta blað kemur út 7. október Guðrún Hulda Pálsdóttir gudrunhulda@bondi.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.