Bændablaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 51
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. september 2021 51
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
ALLAR STÆRÐIR AF
AJ RAFSTÖÐVUM
Stöðvar í gám
Gerðu kröfur - hafðu samband við Karl
í síma 590 5125 og kynntu þér þína möguleika.
Höfum opnað vefverslun
rafmark.is
Við Fellsmúla | Reykjavík | Sími: 585 2888 | rafmark.is
Búist er við að vetni muni gegna
lykilhlutverki í kolefnishlutlausu
hagkerfi framtíðarinnar. Varðar
það samgöngur, iðnað, húshitun
og geymslu á orku. Iðnaðar-,
rannsókna- og orkumálanefnd
Evrópuþingsins (ITRE) sam-
þykkti frumkvæðisskýrslu um
vetnisstefnu ESB í mars 2021.
Evrópusambandið hefur því tekið
ákveðna stefnu í að stórefla vetn-
isframleiðslu og notkun. Þar er samt
takmörkuð geta til að framleiða vetni
með endurnýjanlegum orkugjöfum
og þess vegna hafa þjóðir eins og
Þjóðverjar verið að horfa til Íslands.
Íslenska þjóðin gæti mögulega hagn-
ast á því í framtíðinni svo lengi sem
hún heldur yfirráðum sínum yfir
vatns- og jarðhitaorkuauðlindunum.
Í þessari samþykkt kemur fram að
vetni sem framleitt er með raforku
sem unnin er með endurnýjanleg-
um orkugjöfum sé enn ekki eins
samkeppnishæf og vetni framleitt úr
jarðgasi. Nokkrar rannsóknir sýna að
ESB orkukerfi, sem inniheldur veru-
legt hlutfall af vetni og endurnýj-
anlegum lofttegundum (metangasi)
væri hagkvæmara en það sem byggir
á framleiðslu með grænni orku sem
framleidd er með endurnýjanlegum
orkugjöfum.
Rannsóknir og nýsköpun í iðnaði
í vetnisinnleiðingu er forgangsverk-
efni ESB og fær verulegt fjármagn
frá ESB með rammaáætlunum rann-
sókna. Vetnisverkefninu er stjórnað
af sameiginlegu fyrirtæki um vetni
og vetnisrafala (FCH JU), sem er
samstarf opinberra og einkaað-
ila studd af framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins.
Vetnisstefna ESB, sem samþykkt
var í júlí 2020, miðar að því að flýta
fyrir þróun vinnsluaðferða á vetni.
Nær öll aðildarríki ESB viðurkenna
mikilvægi hlutverks vetnis í inn-
lendri orkunýtingu og til að stand-
ast loftslagsáætlanir 2021–2030.
Um helmingur ríkjanna hefur skýr
vetnistengd markmið, sem beinast
fyrst og fremst að samgöngum og
iðnaði. Ráðið samþykkti niðurstöður
um vetnismarkað ESB í desember
2020, með áherslu á endurnýjanlegt
vetni fyrir kolefnislosun, endurheimt
og samkeppnishæfni. /HKr.
UTAN ÚR HEIMI
Pólitíkusar um allan heim virðast hver um annan þveran vera að stökkva á
þann vagn þar sem vetnisvæðing er eins konar töfraorð um lausn á þeirri
hamfarahlýnun sem sögð er yfirvofandi. Skiptir þá engu máli þó þjóðir
þeirra hafi litla sem enga getu til að framleiða vetni með vistvænum hætti.
ESB hefur tekið ákveðna
stefnu í vetnisvæðingu
– Þótt getu skorti til að framleiða „grænt“ vetni
Stærsta vetnisráðstefna
heims haldin í október
– Mun standa samfellt í 24 klukkutíma á netinu
Vetnið og umræða um vetnisþró-
unina tröllríður nú teikniheimin-
um. Þann 8. október næstkomandi
verður haldin í Þýskalandi stærsta
vetnisráðstefna heims, Hydrogen
Online Conference (HOC), sem
fram fer á netinu í 24 klukku-
stundir samfellt.
Ráðstefnan fer fram á ensku og
þar munu taka þátt leiðandi sér-
fræðingar iðnfyrirtækja og úr opin-
bera geiranum. Yfir 30 manns munu
halda þar erindi og yfir 100 fram-
leiðendur munu kynna sínar vörur.
Þá munu yfir 10.000 sérfræðingar í
vetnisiðnaði taka lifandi þátt í ráð-
stefnunni á netinu í yfir 150 lönd-
um. Ráðstefnuhaldarar lofa að engar
leiðinlegar „PowerPoint“ kynningar
verði til að trufla þátttakendur. Allt
sem sagt verði á ráðstefnunni miði
að raunverulegu notagildi. Greint
verði frá árangursríkum aðferð-
um í vetnistækninni og metnaðar-
fyllstu markmiðunum. Áhugasamir
geta nálgast upplýsingar á https://
hydrogen-online-conference.com/,
eða í síma +49 7195 90439-00, eða
með því að senda póst á contact@
mission-hydrogen.de /HKr.
Messe Bremen-sýningarhöllin í Þýskalandi:
Helstu birgjar í Evrópu
sýna vetnistækni
Hydrogen Technology Expo
Europe er ráðstefna og sýning
sem haldin verður 20.-21. október
næstkomandi í Messe Bremen
sýninga- og ráðstefnuhöllinni í
Þýskalandi.
Í kynningu ráðstefnunnar segir
að henni sé ætlað að vera lausnar-
drifinn vettvangur sem
muni fjalla um þróun
nýrrar tækni til að sigrast
á tæknilegu áskorunum
sem mæta innleiðingu
vetnis fyrir staðbundna notkun og
í farartæki.
Ráðstefnan mun eingöngu fjalla
um háþróaða tækni fyrir vetnis- og
vetnisrafalaiðnaðinn (Hydrogen
Fuel cells). Viðburðurinn mun sam-
eina alla vetnisverðmætakeðjuna til
að einbeita sér að því að þróa lausnir
og nýjungar fyrir notkun vetnis, skil-
virka geymslu og dreifingu á vetni.
Meira en 90 fyrirlesarar víða að
úr heiminum munu halda ræður og
yfir 2.000 þátttakendur munu koma
saman til að ræða og sjá nýjustu
tækni, verkfræðilausn-
ir, háþróað efni, fram-
leiðslutæki, innviði,
prófunar- og matstæki
sem og þjónustu. Einnig
hvernig eigi að koma vetni á markað
sem hreinni, endurnýjanlegri orku.
Þá munu yfir 100 fyrirtæki sýna
vörur sínar í aðalsýningarsal ráð-
stefnunnar. Nánar má lesa um þetta
á hydrogen-worldexpo.com /HKr.
Næsta blað kemur út 7. október