Bændablaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. september 202126
Þegar haldið er í daglegu göngu-
ferðina sem er svo holl okkur
öllum, er ekki fjarri að taka með
sér pokaskjatta með það fyrir
augum að sanka að sér vítamín-
um. Náttúran er nefnilega yfirfull.
Söl eru ein næringarríkasta
tegund sjávarjurta sem má finna
hérlendis. Þau eru rík af próteini,
járni og flúori auk þess að innihalda
meðal annars joð sem er gott fyrir
skjaldkirtilinn. Einnig má nefna A,
E og C vítamín, kalín sem er mik-
ilvægt heilbrigðu taugakerfi, fos-
fór sem hefur áhrif á upptöku úr
meltingarvegi og svo magnesíum,
B6 og B12 vítamín sem stuðla að
eðlilegri starfsemi tauga og ónæm-
iskerfisins og hafa þannig áhrif bæði
á geð og streitustig.
Rabarbari eða tröllasúra veita
ríkulega af kalki eða rúm 100 mg
í einum bolla. Að auki inniheldur
jurtin lutein sem er gott fyrir augu,
húð og vel af K vítamíni sem hjálpar
til við eðlilega beinmyndun í líkam-
anum og hægir á beinhrörnun með
því að draga úr kalktapi. Rauði litur-
inn er svo vegna andoxunarefnanna
sem eru nauðsynleg fyrir líkamann.
Túnsúra sem er betur þekkt
undir nafninu hundasúra (þó þær
séu víst einungis af sömu ætt,
Rumex acetosa og Rumex acetos-
ella) er talin afar áhrifarík við losun
bjúgmyndunar auk þess að örva og
styrkja lifrina. Hún er góð við lystar-
leysi, hægðatregðu og gyllinæð auk
þess að innihalda ríflegan skammt
af vítamínum á borð við A-, B- og
C-vítamína. (C-vítamín hjálpar til
að mynda bandvef (kollagen) sem
er mikilvægur fyrir vöxt æða, beina
og tanna, og græðslu sára.
Kerfill hefur verið talinn draga
úr bólgum auk þess að olía eða te
sem unnin hafa verið úr honum hafa
róandi áhrif. Ber jurtin bæði lykt
og bragð af anis, eða lakkrísbragði.
Kerfill inniheldur mikið magn B
vítamína auk A, C og E vítamína
(E vítamín hafa góð áhrif á hjarta- og
æðakerfið með því að hindra oxun
á fitu í líkamanum) auk þess sem
kerfill er nokkuð ríkur af andoxun-
arefnum.
Birkilauf hafa í áraraðir verið
þekkt fyrir að hraða efnaskiptum
og losa vatn úr líkamanum, draga
úr bólgum og afeitra líkamann.
Blöð trésins, sem innihalda einnig
mikið af C vítamíni, hafa auk þess
verið notuð við sýkingum í þvag-
færum, en þau hafa jákvæð áhrif á
nýru, þvagblöðru og þvagrás. Sumir
vilja einnig kalla þetta töfralyf þar
sem önnur notkun hefur falið í sér
meðhöndlun liðagigtar, hárloss og
húðútbrota.
Sólber eru hvað ríkust af C vítamíni
allra tegunda. Í þeim eru hvorki
meira né minna en tæp 350 prósent
af ráðlögðum dagskammti. Að auki
innihalda þau A, B og E vítamín,
andoxunarefni og trefjar. Þau má
svo nota í hinar ýmsu sultur, saftir,
þeytinga eða bara eins og þau eru
best, beint af greininni!
Sveppir innihalda ýmiss konar
bætiefni og sjálfsagt er að athuga
tegundirnar eftir tínslu enda munur
á innihaldi eftir gerð. Í þeim má
almennt aðallega
finna D vítamín,
(D-vítamín
gerir lík-
amanum
k l e i f t
að nýta
kalk og
fos fór
til að
byggja upp
bein með því að
auka upptöku kalks
og fosfórs frá þörm-
um) þó nokkuð af
B2 vítamíni, fólasín,
kalíum sem stuðlar að
eðlilegri vökvaflóru í
líkamanum, smávegis
af trefjum og kopar.
Selenium finnst í afar
ríkum mæli í sveppum
en þeir gegna mikil-
vægu hlutverki fyrir
ónæmiskerfið og frjósemi hjá karl-
mönnum auk þess sem það er talið
vinna gegn myndun krabbameins-
frumna.
Furubarr eða te furubarrs öllu
heldur, er tilvalinn drykkur til að
auka daglega orku. Í furunálum má
finna mikið magn A vítamíns sem
hefur jákvæð áhrif á hár, húð og sjón.
Best er að tína nálarnar og skola við
heimkomu áður en þær eru settar í
sjóðandi vatn. Eftir nokkrar mínútur
er vökvinn síaður og þá má njóta
tesins. Hægt er að bragðbæta teið
með sykri, hunangi eða jafnvel kanil
ef bragðið þykir sérstakt. Þess má
geta að stafafura er eitt algengasta
skógræktartréð á Íslandi, alla jafna
notað sem jólatré. /SP
LÍF&STARF
Vítamín náttúrunnar:
Leitið ekki langt yfir skammt
Rabarbari eða tröllasúra veita ríkulega af kalki, eða rúm 100 mg í einum bolla. Stilkur rabarbarans er mikið notaður
í sultugerð, rabarbarasúpu og stundum einnig í saft- og víngerð. Myndir / Wikipedia, BBR, VH, KVS.
Kúalubbi er algengur
ætisveppur sem
myndar svepparót
með birki. Hann getur
orðið tæplega 20 cm
að hæð og finnst
víða um land frá
júní til október.
TÝNT ROLLA?
LÁTTU DRÓNA FRÁ DRONEFLY Í MÁLIÐ
FÆST Í VERSLUN
DRONEFLY
S:566-6666
Bænda
bbl.is Facebook