Bændablaðið - 23.09.2021, Page 26

Bændablaðið - 23.09.2021, Page 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. september 202126 Þegar haldið er í daglegu göngu- ferðina sem er svo holl okkur öllum, er ekki fjarri að taka með sér pokaskjatta með það fyrir augum að sanka að sér vítamín- um. Náttúran er nefnilega yfirfull. Söl eru ein næringarríkasta tegund sjávarjurta sem má finna hérlendis. Þau eru rík af próteini, járni og flúori auk þess að innihalda meðal annars joð sem er gott fyrir skjaldkirtilinn. Einnig má nefna A, E og C vítamín, kalín sem er mik- ilvægt heilbrigðu taugakerfi, fos- fór sem hefur áhrif á upptöku úr meltingarvegi og svo magnesíum, B6 og B12 vítamín sem stuðla að eðlilegri starfsemi tauga og ónæm- iskerfisins og hafa þannig áhrif bæði á geð og streitustig. Rabarbari eða tröllasúra veita ríkulega af kalki eða rúm 100 mg í einum bolla. Að auki inniheldur jurtin lutein sem er gott fyrir augu, húð og vel af K vítamíni sem hjálpar til við eðlilega beinmyndun í líkam- anum og hægir á beinhrörnun með því að draga úr kalktapi. Rauði litur- inn er svo vegna andoxunarefnanna sem eru nauðsynleg fyrir líkamann. Túnsúra sem er betur þekkt undir nafninu hundasúra (þó þær séu víst einungis af sömu ætt, Rumex acetosa og Rumex acetos- ella) er talin afar áhrifarík við losun bjúgmyndunar auk þess að örva og styrkja lifrina. Hún er góð við lystar- leysi, hægðatregðu og gyllinæð auk þess að innihalda ríflegan skammt af vítamínum á borð við A-, B- og C-vítamína. (C-vítamín hjálpar til að mynda bandvef (kollagen) sem er mikilvægur fyrir vöxt æða, beina og tanna, og græðslu sára. Kerfill hefur verið talinn draga úr bólgum auk þess að olía eða te sem unnin hafa verið úr honum hafa róandi áhrif. Ber jurtin bæði lykt og bragð af anis, eða lakkrísbragði. Kerfill inniheldur mikið magn B vítamína auk A, C og E vítamína (E vítamín hafa góð áhrif á hjarta- og æðakerfið með því að hindra oxun á fitu í líkamanum) auk þess sem kerfill er nokkuð ríkur af andoxun- arefnum. Birkilauf hafa í áraraðir verið þekkt fyrir að hraða efnaskiptum og losa vatn úr líkamanum, draga úr bólgum og afeitra líkamann. Blöð trésins, sem innihalda einnig mikið af C vítamíni, hafa auk þess verið notuð við sýkingum í þvag- færum, en þau hafa jákvæð áhrif á nýru, þvagblöðru og þvagrás. Sumir vilja einnig kalla þetta töfralyf þar sem önnur notkun hefur falið í sér meðhöndlun liðagigtar, hárloss og húðútbrota. Sólber eru hvað ríkust af C vítamíni allra tegunda. Í þeim eru hvorki meira né minna en tæp 350 prósent af ráðlögðum dagskammti. Að auki innihalda þau A, B og E vítamín, andoxunarefni og trefjar. Þau má svo nota í hinar ýmsu sultur, saftir, þeytinga eða bara eins og þau eru best, beint af greininni! Sveppir innihalda ýmiss konar bætiefni og sjálfsagt er að athuga tegundirnar eftir tínslu enda munur á innihaldi eftir gerð. Í þeim má almennt aðallega finna D vítamín, (D-vítamín gerir lík- amanum k l e i f t að nýta kalk og fos fór til að byggja upp bein með því að auka upptöku kalks og fosfórs frá þörm- um) þó nokkuð af B2 vítamíni, fólasín, kalíum sem stuðlar að eðlilegri vökvaflóru í líkamanum, smávegis af trefjum og kopar. Selenium finnst í afar ríkum mæli í sveppum en þeir gegna mikil- vægu hlutverki fyrir ónæmiskerfið og frjósemi hjá karl- mönnum auk þess sem það er talið vinna gegn myndun krabbameins- frumna. Furubarr eða te furubarrs öllu heldur, er tilvalinn drykkur til að auka daglega orku. Í furunálum má finna mikið magn A vítamíns sem hefur jákvæð áhrif á hár, húð og sjón. Best er að tína nálarnar og skola við heimkomu áður en þær eru settar í sjóðandi vatn. Eftir nokkrar mínútur er vökvinn síaður og þá má njóta tesins. Hægt er að bragðbæta teið með sykri, hunangi eða jafnvel kanil ef bragðið þykir sérstakt. Þess má geta að stafafura er eitt algengasta skógræktartréð á Íslandi, alla jafna notað sem jólatré. /SP LÍF&STARF Vítamín náttúrunnar: Leitið ekki langt yfir skammt Rabarbari eða tröllasúra veita ríkulega af kalki, eða rúm 100 mg í einum bolla. Stilkur rabarbarans er mikið notaður í sultugerð, rabarbarasúpu og stundum einnig í saft- og víngerð. Myndir / Wikipedia, BBR, VH, KVS. Kúalubbi er algengur ætisveppur sem myndar svepparót með birki. Hann getur orðið tæplega 20 cm að hæð og finnst víða um land frá júní til október. TÝNT ROLLA? LÁTTU DRÓNA FRÁ DRONEFLY Í MÁLIÐ FÆST Í VERSLUN DRONEFLY S:566-6666 Bænda bbl.is Facebook

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.