Bændablaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 12

Bændablaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. september 202112 FRÉTTIR Fyrsta línan í nýrri kynslóð byggða línu, Kröflulína 3, tengingin á milli Kröflu og Fljóts dals, hefur verið spennusett. Línan á sér langa sögu og hefur undirbúningur staðið um langt skeið. Framkvæmdir hófust árið 2019 og var hún byggð við miklar áskoranir. Slæmt veður og heimsfaraldur settu mark sitt á framkvæmdina. Það var því stór dagur hjá Landsneti þegar spennu var hleypt á fyrstu línuna. Kröflulína 3 fer um þrjú sveitar­ félög: Skútustaðahrepp, Múlaþing og Fljótsdalshrepp. Lengd línunnar er 121 km og liggur hún að mestu samsíða Kröflulínu 2, frá tengivirki við Kröflustöð að tengivirkinu við Fljótsdalsstöð. Meginflutningskerfi raforku sem liggur í kringum landið er í daglegu tali kallað byggðalínan. Hún samanstendur af 13 háspennu­ línum, alls 925 km að lengd, sem ná frá Brennimel í Hvalfirði, hring um landið og enda í Sigöldu. Byggðalínan nálgast nú 50 ára aldurinn en áætlaður líftími raflína á Íslandi er um 50 ár og raforkunotk­ un hefur margfaldast frá því að hún var byggð – það var því kominn tími á endurnýjun, segir á vef Landsnets. Bætir úr mörgum vanköntum Nýrri kynslóð byggðalínu er ætlað það hlutverk að bæta úr mörgum af þeim vanköntum sem hrjá megin­ flutningskerfið í dag. Hún verður rekin á hærra spennustigi, eða 220 kV í stað 132 kV, og byggð úr stálröramöstrum sem þola betur óveður og ísingu og mun því auka afhendingaröryggi umtalsvert. Útlit mastranna svipar til tré­ mastra gömlu byggðalínunnar, þar sem þau eru byggð úr rörum en þau verða aftur á móti stærri og að sama skapi færri, þar sem lengra hafi verður á milli mastra. Hærra spennustig gerir það að verkum að hægt verður að flytja meiri raforku á milli landshluta og létta þannig á þeim flöskuhálsum sem kerfið býr við í dag. Mun það hafa jákvæð áhrif á atvinnuuppbyggingu auk þess sem hægt verður að nýta betur núverandi orkuframleiðslumannvirki og vatna­ svæði en mögulegt er nú. Næstu áfangar Næsta lína í röðinni er Hólasandslína 3 á milli Hólasands í nágrenni Kröflu og Akureyrar en framkvæmdir við hana hófust á árinu 2020. Þar á eftir er Blöndulína 3 á milli Akureyrar og Blöndu sem er á áætlun 2023 og Holtavörðuheiðarlína 1 á milli Hvalfjarðar og Holtavörðuheiðar en áætlað er að byrja framkvæmdir við hana á fyrri hluta ársins 2024. Síðasta línan er svo tenging á milli Holtavörðuheiðar og Blöndu sem er áætlað að hefja framkvæmdir við á síðari hluta ársins 2027 eða í byrjun árs 2028. /MÞÞ Fyrsta línan í nýrri kynslóð byggðalínu, Kröflulína 3, tengingin á milli Kröflu og Fljótsdals, hefur verið spennusett. Mynd / Vefur Landsnets. Landsnet: Spennu hleypt á fyrstu línu í nýrri kynslóð byggðalínu Sláturhús Norðlenska á Húsavík: Hafa getað valið úr umsókn- um en nú vantar fólk „Staðan var þannig að það vantaði um 10 manns til starfa inn í slát- urhúsið þegar sláturtíð hófst fyrr í haust,“ segir Jóna Jónsdóttir, starfsmannastjóri Norðlenska. Undanfarnar vikur hefur smám saman bæst við en enn vantar 4 til 5 starfsmenn til að sláturhúsið teljist fullmannað. „Við vitum ekki alveg hvað veld­ ur, við fengum færri umsóknir núna en vanalega og fleiri hættu við á síðustu stundu. Yfirleitt höfum við getað valið úr fjölda umsókna en því var ekki að heilsa nú. Það er eins og ferðaviljinn hafi aðeins dalað,“ segir Jóna og vísar til erlendra starfmanna sem eru stór hluti þeirra sem vinna í sláturhúsi Norðlenska á Húsavík. Starfsfólk hefur einkum komið frá Bretlandi, Póllandi, Slóvakíu, Tékklandi og Búlgaríu. Veltir Jóna fyrir sér hvort bólusetningarhlutfall í þeim löndum setji jafnvel strik í reikninginn. Óbólusettir sem ferðast til Íslands þurfa að sæta sóttkví í fimm daga og það gæti einnig haft sín áhrif á ferðaviljann. Sóttust ekki mikið eftir störfum Jóna segir að jafnan sé þess gætt að halda ákveðnu hlutfalli af störfum fyrir Íslendinga en nú í haust hafi þeir ekki sóst mikið eftir störfum í sláturtíð. „Við höfum verið að leita að fólki til starfa en það hefur ekki gengið neitt sérlega vel. Margir sem t.d. eru atvinnulausir og við heyrum í segjast ekki vilja binda sig í þetta stuttan tíma, tvo mánuði,ef eitt­ hvað annað starf skyldi koma upp á meðan. Það er ýmislegt af þessu tagi sem setur strik í reikninginn og gerir að verkum að ekki næst enn að fullmanna sláturhúsið.“ Þá nefnir hún einnig að húsnæði takmarki ráðningar, það sé ekki endilega mikið um laust húsnæði í bænum fyrir aðkomufólk og því væri æskilegt að hafa fleiri sem búsettir eru á staðnum. Gekk að ráða í lykilstörf Jóna segir að vel hafi gengið að ráða í lykilstörf en um sé að ræða almenn störf sem sinna þarf í sláturtíðinni. Í einhverjum tilvikum hafi þeir starf­ menn sem starfa í húsinu allt árið verið færðir til og önnur verkefni látin bíða. „Þetta rúllar alveg ágætlega hjá okkur,“ segir hún. Um 120 manns eru ráðnir aukalega til starfa hjá sláturhúsi Norðlenska í sláturtíð til viðbótar við þá 45 sem fyrir eru. Áætlað er að slátra um 86 þúsund dilkum í sláturtíðinni nú í haust og segir Jóna að nú sé búið að slátra um 28 þúsund dilkum. Að meðaltali sé 2.350 dilkum slátrað daglega. /MÞÞ Jóna Jónsdóttir, starfsmannastjóri Norðlenska. Bandalag íslenskra leikfélaga, stofnað 1950, eru samtök áhuga leikfélaga á Íslandi sem eru milli 40–50 talsins. Bændablaðið hefur á umliðnum árum fjallað af og til um starfsemi áhugaleikfélaga á landinu. Í starfi þessara áhugamannafélaga tekur þátt fólk úr öllum starfsstéttum og þá ekki síst úr sveitum landsins. Þar sem þetta er mikilvægur og merkilegur þáttur í menningarlífinu á landsbyggðinni, þá hyggst blaðið reyna að hafa slíka umfjöllun með reglubundnari hætti á komandi mánuðum og misserum. Hefur því verið leitað eftir samvinnu við Bandalag íslenskra leikfélaga. Ýmislegt hefur borið á góma hjá þeim yfir árin og alltaf er eitthvað um að vera, enda oft ástríðan sem um ræðir þegar áhugaleiklist á í hlut. Nú, í stuttu spjalli við Hörð Sigurðarson, formann BÍL, lætur hann vel af næstu mánuðum þótt Covid­ veiran hafi stöðvað uppsetningar leiksýninga um stund. Hörður á sjálfur rætur að rekja í Kópavoginn, foreldrar hans voru öflugir í Leikfélagi Kópavogs og var faðir hans einn af stofnendum leikfélagsins. Hann hefur því verið með annan fótinn á sviðinu frá því hann man eftir sér, auk þess, þegar hann eltist, tekið að sér leikstjórn víða um landið af og til. „Ég hef leikstýrt víða á tímabilum, kynnst fólkinu í kringum landið sem er bæði skemmtilegt og fróðlegt, segir Hörður, og gaman að kynnast því hvernig hægt er að vinna með og við ólíkar aðstæður. Þörf fólks fyrir að skapa er alltaf hin sama og auðgun mannlífsins með ástríðu leiklistarinnar og því sem henni viðkemur. Þetta er miklu stærra batterí en bara að standa á sviði. Leikfélagið í samfélaginu er víða hjartað í félagslífinu. Sami hópurinn sér oftar en ekki um árshátíðir og annað slíkt og að hafa virkt félagslíf skiptir gríðarlegu máli fyrir samfélögin, þá sérstaklega minni samfélög.“ Víðtæk þjónusta bandalagsins Þótt áhugaleiklist hafi verið við lýði síðan á 19. öld er bandalagið sem slíkt stofnað árið 1950, enda viss hagur í því að stofna samtök. Aðstæður voru þannig um miðja tuttugustu öld að mjög erfitt var að verða sér úti um leikverk, förðunarvörur, leikmuni og annað sem viðkemur leikuppsetningu eða lýtur að leikverki. Aðspurður segir Hörður að þarna hafi orðið til þessi samtök sem hafi nú vaxið töluvert og mættu í raun kallast þjónustu­ miðstöð í dag. „Við erum með stærsta leikritasafn landsins, erum ekki bara að þjónusta áhugaleikhúsin, heldur flesta grunnskóla á landinu, framhaldsskólana auk þess að vera í góðu sambandi við stóru leikhúsin, þau fá oft ýmislegt hjá okkur, handrit eða annað. Hér er starfandi leikhúsbúð sem líka þjónustar mikið fleiri en bara leikhúsin, enda mjög víðtæk þjónusta sem við bjóðum upp á. Svo útvegum við sýningarleyfi og svona eitt og annað. Þetta er vítt svið sem snýr að því að koma upp leiksýningu. Nú eru starfandi rúmlega 40 aðildarfélög, en þeim hefur farið fækkandi í gegnum áratugina. Voru 80 talsins fyrir um þrjátíu árum. Aðstæður og aðgangur að afþreyingu í dag er auðvitað allt öðruvísi en þá, til að mynda sjónvarp, net og annað en þetta fylgir þróun samfélagsins. Að auki hafa sveitarfélög víða sameinast, leikfélög stundum runnið saman í eitt, eða lognast út af því miður – fækkun á landsbyggðinni hefur þar komið til og sum leikfélög starfa bara annað hvert ár. Þau eru jafn mismunandi og þau eru mörg.“ Styrkveitingar ríkis „Annars má geta þess að ríkið veitir styrki til áhugaleiklistar. Það fer svo í gegnum okkur – við förum yfir umsóknir og gerum tillögur sem eru bara yfirleitt alltaf samþykktar. Við köllum eftir félögum að sækja um, þau senda þá inn öll ný leikverk sem þau eru eða hafa áhuga á að setja upp, myndir af sýningum, ársskýrslur, reikninga og annað þannig að við höfum yfirsýn yfir slíkt.“ Og nú er að hafa samband ef áhugi er fyrir stofnun leikfélags eða uppsetningu sýningar! /SP ÁHUGALEIKHÚS Á ÍSLANDI Starfsemi áhugaleikhúsa kynnt til sögunnar Hörður Sigurðarson, framkvæmdastjóri BÍL. Landssamband veiðifélaga minnir á áður auglýstan aðalfund sambandsins sem haldinn verður föstu- daginn 8. október, kl. 11:00-15:00, í Bændahöllinni við Hagatorg í Reykjavík. Óskað er eftir því að aðildarfélög sendi fram- kvæmdastjóra Landssambandsins tilkynningu um þátttöku á aðalfundinum sem allra fyrst. Vinsamlegast sendið tilkynninguna á netfangið gunnar@angling.is. Nánari upplýsingar um dagskrá og þátttöku á fundinum er að finna á vef sambandsins á www.angling.is. AÐALFUNDUR LANDSSAMBANDS VEIÐIFÉLAGA 2021
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.