Fréttablaðið - 29.01.2022, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 29.01.2022, Blaðsíða 23
Heimilis- lífið hjá mér þegar ég var lítill var í engum skorðum og það ríkti mikið stjórnleysi en maður einhvern veginn þraukar. Við fórum bara í partí og djömm- uðum til sjö. Þá vorum við sóttir á hvítum golfbíl og spiluðum þetta gigg og svo annað seinna sama dag. Á Mínus-ár- unum ferðaðist Bjössi um allan heim og spilaði á tónleikum. Nú æfir hann sig í því að lifa í núina og ögra sjálfum sér. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI margt og að hann líti öðrum augum á dauðann. Það hafi þó tekið hann langan tíma að vinna úr áfallinu og því að alast upp við alkóhólisma. „Ástæðan fyrir því að ég tala um þetta er samt sú að þó að maður alist upp í svona aðstæðum þá er hægt að gera allt sem maður vill ef maður vinnur í sjálfum sér,“ segir Bjössi. „Heimilislífið hjá mér þegar ég var lítill var í engum skorðum og það ríkti mikið stjórnleysi en maður bara einhvern veginn þraukar. Þegar ég var fjórtán ára var ég tekinn út úr aðstæðunum, þetta var bara orðið hættulegt og ég f lutti til bróður míns, hann tók mig að sér. Hann er rosalega góður og það eru þau öll systkini mín. Ef ég hefði ekki átt þau þá væri sagan einhvern veginn öðru- vísi,“ útskýrir Bjössi. „Þegar maður elst upp í svona þá hefur það áhrif og ég hef þurft að vinna í því og ala sjálfan mig upp. Ég fékk rangar upplýsingar í uppeldinu. Ég fékk þær upplýsingar að stundum mætti ég ljúga og að maður þyrfti alltaf að lesa í aðstæður,“ segir hann. „Þetta er mjög óheilbrigt og það er fullt af fólki sem verður undir í svona. Fer í neyslu eða ofbeldissam- bönd eða tekur fáránlegri hegðun sem gefinni og það er það sem ég upplifði en það er hægt að komast út úr því.“ Reiður trommari Bjössi segist hafa upplifað mikinn kvíða og reiði á sínum yngri árum en að tónlist hafi hjálpað honum mikið. Hann spilar á trommur og var í rokkhljómsveitinni Mínus í mörg ár. Hljómsveitin ferðaðist um allan heim og spilaði fyrir þúsundir manna. „Ég var dofinn og ég tæklaði þetta mikið á reiðinni. Var mjög tilfinn- ingalega dramatískur, þess vegna fór ég að spila músík og spila hana eins og ég geri, með öllum líkamanum. Hverjir einustu tónleikar voru bara þerapía,“ segir Bjössi og bætir við að þegar hann byrjaði í Mínus hafi hann hitt bræður sína, stráka sem skildu hann. „Við bara skildum hver annan og þurftum ekkert að ræða það neitt meira. Við erum allir með einhverja bresti og fengum útrás þarna, þess vegna verður Mínus eins og hún er, eitthvert sturlað fyrirbæri,“ segir Bjössi. Mínus-árunum fylgdi mikið af ferðalögum, giggum og partíum en einnig mikil óvissa. „Þessi Bjössi sem gerði þetta allt er gamli Bjössi. Það væri mjög gaman að hitta hann og tala við hann af því að hann var á svo hraðri ferð, á 220 kílómetra hraða alltaf,“ segir Bjössi. „Ég man ekki eftir helmingnum af þessum árum og ferðalögum en það er ekki af því ég var svo fullur heldur bara af því að hugurinn á mér var á svo miklu spani og ég var svo kvíð- inn, stundum vissi ég ekkert hvar ég var og ef ég væri að gera þetta núna myndi ég njóta þess betur og skoða þessa staði sem við fórum á,“ bætir hann við. Óvissan á ferðalögunum sneri oft að því hvar Bjössi og félagar hans í Mínus skyldu sofa. Hann á minn- ingar af því að sofa á sófum og Lazy Boy-stólum hér og þar, og í eitt skipti var hann bitinn af könguló á meðan hann svaf á sófa í Bandaríkjunum. „Stundum kom bara rúta og sótti okkur, með kojum og Playstation og allt var bara geggjað en stundum vissum við ekkert hvar við ættum að sofa og hlutirnir gátu breyst mjög hratt,“ segir Bjössi og tekur sem dæmi þegar Mínus spilaði á Reading-tónlistarhátíðinni í Bret- landi árið 2004. „Við fáum bara þær upplýsingar að ein hljómsveit hafi dottið út og að við séum að spila fyrir tuttugu þús- und manns á Reading í næstu viku,“ segir Bjössi. „Giggið“ var klukkan tólf á hádegi og þangað mætti hljóm- sveitin gjörsamlega ósofin. „Við förum bara í partí kvöldið áður og djömmuðum til sjö. Þá vorum við sóttir á hvítum golfbíl og spiluðum þetta gigg og svo annað seinna saman dag. Þetta er eitthvað sem maður myndi aldrei gera í dag, en það er til vídeó frá þessu og við vorum geggjaðir,“ segir Bjössi. „Í seinna gigginu hituðum við upp fyrir band sem heitir Avenged Sevenfold, þar kynntist ég trommu- leikaranum og við urðum ágætis félagar. Ég fylgdist með honum verða að stórstjörnu í Bandaríkjunum og svo einn daginn er hann bara dáinn, hann drakk sig í hel,“ segir Bjössi sem sjálfur hætti að drekka fyrir þrettán árum. „Það er orðið svo langt síðan að ég er eiginlega hættur að hugsa um það, en guð minn góður hvað ég hugsaði mikið um það fyrstu tvö árin,“ segir Bjössi. Hann segir alla skemmtun í lífi sínu hafa verið tengda einhvers konar hugbreyt- andi ástandi. „Þegar maður er í þessum lífsstíl, þessum rokkaralífsstíl, þá er ekk- ert normalt við lífið. Á meðan allir æskuvinir mínir og félagar voru í menntaskóla þá var ég í rútu ein- hvers staðar að bíða eftir giggi eða að semja plötu, ég þurft ekki að vakna klukkan átta á morgnana í mörg ár,“ segir hann. „Okkur fannst ekkert athugavert við það að alls staðar þar sem maður var, var maður í kringum áfengi. Það var ekkert athugavert við það að drekka í vinnunni en svo þegar maður eignast börn og fjölskyldu þá verður það athugavert,“ bætir Bjössi við en hann eignaðist sitt fyrsta barn þegar hann var 25 ára gamall með eiginkonu sinni, Írisi Dögg Einarsdóttur ljósmyndara, sem þá var 21 árs. Saman í tuttugu ár Þau Íris og Bjössi hafa verið saman í 20 ár og þegar hann talar um hana má sjá glampa í augum hans. „Hún er besti vinur minn,“ segir hann og brosir. „Fyrst og fremst erum við ást- fangin og við ræktum sambandið okkar. Við höfum gengið í gegnum svo margt og höfum barist fyrir sambandinu okkar og núna erum við að uppskera það sem við höfum sáð,“ segir hann. „Hún er einstök, ekki bara falleg heldur er hún með rosalegt hjarta.“ Íris og Bjössi eiga saman þrjú börn, tveggja ára, tíu ára og sextán ára. Hann segir þau rétt nú vera að átta sig á því hver „gamli Bjössi“ sé, hann hafi ekki alltaf verið leikari. Bjössi fer nú með hlutverk Bubba Morthens í sýningunni 9 líf í Borg- arleikhúsinu. Sýndar hafa verið yfir 60 sýningar af verkinu og segir Bjössi hlutverkið bæði krefjandi og skemmtilegt. Þá hefur þróast ein- stök og einlæg vinátta með þeim Bubba, þeir eru til að mynda saman í vídeó-klúbbi. Hittast á daginn, horfa á stríðsmyndir og fá sér popp og kók. „Bubbi mætir snemma á allar sýn- ingar og er með okkur. Svo kom það einhvern veginn upp að við fíluðum báðir stríðsmyndir og við vorum alltaf að ræða þær, úr því varð svo þessi vídeó-klúbbur þar sem við Bubbi hittumst um hádegi og horf- um á eina mynd og svo getum við talað um hana á sýningunni,“ segir Bjössi. Þá segir hann þá vinina einnig deila þeirri reynslu að hafa verið rokkarar, þeir hafi farið í sama ferðalagið. „Ég get sagt þér frá Mínus en það er annað þegar ég hitti ein- hvern sem segir: Ég skil þig. Þetta er nákvæmlega sama dæmið og Utan- garðsmenn fóru í. Allt fólkið sem vildi vera með þeim, ruglið og rifr- ildin, þetta er eitthvað sem maður þarf að ganga í gegnum til að skilja.“ Nýjasta verkefni Bjössa er nýr sjónvarpsþáttur, Glaumbær, sem framleiddur er af Glassriver og hóf göngu sína á Stöð 2 í gær. Um er að ræða tónlistarþátt þar sem Bjössi fær til sín góða gesti og djammar með þeim. „Þema þáttarins er að í hverjum þætti er valið orð, það getur verið unglingurinn, geimur- inn eða hvað sem er, í gær var það djamm og þá tókum við djamm- lög, og ræðum okkar á milli hvað er okkar djammlag og syngjum þau og spilum. Mitt er til dæmis No One Knows með Queens of the Stone Age.“ Bjössi er á sama tíma spenntur og stressaður fyrir því að vera með sinn eigin sjónvarpsþátt. „Gamli Bjössi hefði aldrei sett sig í þessar aðstæður en í dag geri ég í því að ögra sjálfum mér. Að sýna svona oft í leikhúsinu kennir manni að vera hugrakkur og gera þetta bara, prufa nýja hluti. Þar stækkar maður.“ n Helgin 23LAUGARDAGUR 29. janúar 2022 FRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.