Fréttablaðið - 29.01.2022, Page 26
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
„Við hjónin kynntumst Osteo
Strong erlendis fljótlega eftir að
við fluttum aftur til Íslands fyrir
rúmum fimm árum. Þá höfðum
við búið í spænskri sveit í nokkur
ár. Það var dásamlegt að búa í
sveitinni og lífsgæðin töluverð.
Leiguverð lágt, leikskólinn frír, gott
aðgengi að heilbrigðisþjónustu
og að sjálfsögðu nóg af sól,“ segir
Örn Helgason, annar eigandi og
stjórnarformaður OsteoStrong.
„Á Spáni rak ég stærsta sláturhús
og kjötvinnslu landsins í nauta
kjöti. Við veltum 23 milljörðum á
ári. Ég var með 230 manns í vinnu
og við seldum kjöt til 17 landa.
Á þeim tíma sem ég var þarna
þrefölduðum við afkastagetuna,
bættum framleiðni og nýtni á
hráefni svo um munaði þannig að
við náðum samkeppnisforskoti
á markaði og höfðum því ekki
undan að framleiða til ánægðra
viðskiptavina,“ segir hann en segja
má að árangur í starfi fylgi þeim
hjónum.
Er svona mikið að gera?
„Þegar ég var að lenda á Íslandi
skildi ég ekkert í því hvað það var
rosalega mikið að gera hjá öllum.
Það tók samt mjög stuttan tíma
að læra það og áður en ég vissi af
vorum við hjónin farin að stofna
fyrirtæki, æfa skíði með börn
unum og synda reglulega í sjónum.
Þegar við stofnuðum Osteo
Strong vorum við fimmta landið í
heiminum sem bauð upp á þessa
þjónustu. Nú hefur heldur betur
bæst í þann hóp, OsteoStrong er
meðal annars alls staðar í Skand
inavíu og í dag hafa um 6.400
manns prófað æfingar hjá Osteo
Strong á Íslandi. Vikulega koma
svo um 500 meðlimir í ástundun í
Hátún 12.“
Brennið bátana
„Það er sagt vera gamalt her
kænskubragð að „brenna bátana“
og þessi lína hefur líka verið notuð
til þess að hvetja stjórnendur og
frumkvöðla til þess að leggja allt
sem þeir eiga í ævintýrin sem þeir
ráðast í. Þannig leggi þeir meira
á sig því það er ómögulegt að
hörfa. Það má segja að þetta eigi
vel við nálgun okkar varðandi
OsteoStrong. Verkefnið er rosalega
spennandi, ekki síst af því að við
náum að vinna og verja okkar tíma
saman með sameiginleg markmið
fyrir vinnuna, börnin og okkur
sjálf. Svana er líka svo skemmtileg,
við vinnum vel saman og vegum
hvort annað upp. Við erum búin
að vera spennt fyrir OsteoStrong
frá því við kynntumst því fyrst og
sífellt meira eftir því sem líður á
og árangursögum meðlima okkar
fjölgar.“
Alltaf hugsað eins og eigandi
„Það eru að sjálfsögðu mikil við
brigði að fara úr stórum stjórnun
arstöðum með mikil mannaforráð
og annarra manna verðmæti að
baki, en ég hef alltaf unnið öll verk
samviskusamlega eins og ég væri
eigandinn og hvergi veigrað mér
við að taka til hendinni. Þar sem
mikið af starfinu hjá OsteoStrong
er enn í þróun og okkur langar að
geta þjónustað sem flest svæði sem
fyrst þá fjárfestum við allt aftur
inn í fyrirtækið og gerum flest
sjálf sem þarf, fyrir utan daglega
þjónustu, en það gerir starfið líka
mjög fjölbreytt og skemmtilegt.“
Frá slökkvitækjum í
framkvæmdastjóra
„Mér hefur aldrei þótt leiðinlegt að
þurfa að byrja á byrjuninni. Mörg
um finnst skemmtileg sagan af því
þegar að ég var að selja auglýsingar
á strætisvagna til fyrirtækja. Ég fór
til Securitas og seldi nokkrar birt
ingar til þeirra. Þeir buðu mér að
gera átak í sölu slökkvitækja sem
á þeim tíma var svona vandræða
vara. Eitt leiddi af öðru og innan
skamms var ég kynningarstjóri
hjá þeim, fastráðinn sölumaður og
fljótlega framkvæmdastjóri sölu
og markaðssviðs.“
Góður hópur
„Það eru frábærir hlutir að gerast
hjá OsteoStrong og okkur hefur
tekist að fá til liðs við okkur góðan
hóp af starfsfólki með fjölbreyttan
bakgrunn sem gerir þetta líka enn
gleðilegra. Það var ekkert einfalt
að fá gott fólk í byrjun enda hug
myndin óþekkt en núna hrúgast
inn umsóknir frá frábærum,
yndislegum og kraftmiklum ein
staklingum. Það er mjög verðmætt.
Saman vinnum við að góðri upp
lifun fyrir meðlimi okkar sem eru
allt frá íþróttafólki að eldra fólki
sem hefur ekki getað hreyft sig í
lengri tíma.“
OsteoStrong stækkar
„Um miðjan febrúar opnum við
aðra stöð OsteoStrong í Ögur
hvarfi 2. Hún gerir fleirum kleift
að sækja til okkar sína þjálfun.
Stöðin verður hin glæsilegasta sem
hjálpar til við enn betri upplifun.
Það hefur komið okkur skemmti
lega á óvart hvað það er strax
orðin mikil ásókn í þá stöð og við
erum þakklát fyrir það. Það er
alltaf áskorun að stækka fyrirtæki
en þessi breyting ætti að bæta
þjónustu fyrir alla.“
Vill að OsteoStrong sé
griðastaður
„Upphaflega stofnuðum við
OsteoStrong til þess að búa til
griðastað með uppbyggingu fyrir
annað fólk, ekki sérstaklega fyrir
okkur sjálf.
Fyrir OsteoStrong var ég þó
búinn að vera með lélegt hné í tólf
ár og þurfti að hlífa því til þess að
misbjóða því ekki, til dæmis með
því að sleppa bringusundi (sem
ég var mjög góður í) og hlaupum.
Einnig var ég með bak sem ég þurfti
endalaust að taka tillit til eins og
að vanda í hvaða stellingu ég svaf.
Nú er bakið sterkt og ég get gert allt
sem mig langar til að gera, þetta
gerðist strax eftir aðeins fimm
mánuði í ástundun hjá Osteo
Strong. Ég fann mjög mikinn mun
á líkamsstöðunni, opnun brjóst
kassans og hreyfanleika axla. Blóð
sykurinn var líka hár og læknirinn
farinn að nefna lyf. Honum náði ég
niður fyrir mörk á níu mánuðum
og er mjög góður í dag.
Það er sagt að maður nái ekki að
finna fyrir sannri hamingju nema
að maður nái með orðum sínum og
gjörðum að gefa af sér til annarra.
Það eru forréttindi að vinna við
það að hjálpa fólki að byggja sig
upp og líða betur. Við fáum gleði
legar árangurssögur á hverjum
degi og það gerir langa vinnudaga
svo miklu auðveldari.“
Meðlimir geta átt von á að:
n Auka styrk
n Minnka verki í baki og liða
mótum
n Lækka langtímablóðsykur
n Auka beinþéttni
n Bæta líkamsstöðu
n Auka jafnvægi
n Minnka líkur á álagsmeiðslum
Frír prufutími
„Við bjóðum upp á fría prufutíma
á fimmtudögum. Það er gaman
að geta sýnt fólki hvað við gerum.
Flestir koma til okkar með margar
spurningar, en fara frá okkur
spenntir, glaðir og með skýra sýn
á það hvernig OsteoStrong getur
hjálpað þeim,“ segir Örn. n
OsteoStrong er í Hátúni 12,
sunnan megin. Stöðin í Ögurhvarfi
2 opnar í febrúar.
Prufutíma má bóka á osteo
strong. is og í síma 419 9200.
OsteoStrong er að bæta við sig stöðvum til að geta þjónað fleirum. Þau eru í Hátúni 12 og opna brátt í Ögurhvarfi.
Nýja stöðin í Ögurhvarfi verður í glæsilegu húsnæði.
Helgi Már Þórðarson, íþróttafræðingur og einkaþjálfari, varð hissa þegar hann
fann hversu OsteoStrong breytti líðan hans til betri vegar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Æfingarnar taka stuttan tíma, aðeins 20 mínútur, en eru afar áhrifaríkar. Örn og Svana reka OsteoStrong og eru sífellt að stækka við sig.
OsteoStrong er alls
staðar í Skandin
avíu og í dag hafa um
6.400 manns prófað
æfingar hjá OsteoStrong
á Íslandi. Vikulega koma
svo um 500 meðlimir í
ástundun í Hátún 12.
Örn Helgason
2 kynningarblað A L LT 29. janúar 2022 LAUGARDAGUR