Fréttablaðið - 29.01.2022, Page 58
Við ráðum
WWW.RADUM.IS | 519 6770 | RADUM@RADUM.IS
Stjórnendaleit
Reynsla og gott tengslanet sérfræðinga
Ráðum skilar árangri þegar finna þarf æðstu
stjórnendur eða fólk í stjórnir fyrirtækja.
Ráðningar millistjórnenda og sérfræðinga
Góður gagnagrunnur, gott tengslanet og ára
löng reynsla á ráðningarmarkaði eykur líkurnar
á því að finna hæfasta einstaklinginn í starfið.
Almennar ráðningar á markaði
Öflun umsækjenda í almenn störf er ein helsta
áskorun fyrir tækja í dag. Þekking á markaðnum
er því mikilvæg og þar skiptir reynslan miklu
máli. Með leit í gagna grunni eða aug lýsingu í
viðeigandi miðlum aðstoðar Ráðum fyrirtæki
við að finna hæfasta ein staklinginn í starfið.
Sveigjanleg nálgun
Sérstaða Ráðum liggur í sveigjanlegri nálgun
á ráðningar verkefnið. Fyrir utan að sjá um allt
ráðningar ferlið komum við til móts við þarfir
fyrir tækja með því að sjá um hluta þess ef þörf
krefur, t.d. bakgrunns kannanir, hæfnis mat eða
starfs tengdar æfingar.
Matstæki
Ráðum notast við nýjustu aðferðir við að meta
hæfni og persónuleikaþætti sem geta skipt
sköpum í ráðningum. Ráðum er í sam starfi við
banda ríska mannauðs lausna fyrirtækið CEB sem
er í farar broddi í persónu leika prófum og öðrum
mats tækjum sem eru sér stak lega hönnuð til að
greina sérstöðu og hæfileika ein staklinga áður
en ráðning fer fram.
Þannig er hægt að finna hæfasta einstaklinginn
með talsverðri ná kvæmni. Persónu leika matið
OPQ32 og DSI (Dependa bility & Safety Index)
skimunar prófið hafa t.d. verið stöðluð og
staðfærð að íslenskum markaði.
Ráðgjöf við starfslok
Viðskilnaður fyrirtækis við starfsmann skiptir
höfuð máli þegar fyrirtækið á frum kvæðið að
starfs lokum. Ráðum býður upp á við tal við
ráð gjafa sem felur m.a. í sér upplýsingar um
atvinnu markaðinn, ráðgjöf varðandi starfs
ferilskrá og kynningarbréf og hagnýt atriði
varðandi starfs leit og atvinnu viðtöl.
Ráðum býður upp á ráðgjöf
og ráðningar þjónustu sniðna
að þörfum viðskiptavinarins.
Auglýst er laust til umsóknar embætti aðstoðarlögreglustjóra hjá lögreglunni
á höfuðborgarsvæðinu.
Auk þess að vera lögreglustjóra til aðstoðar í samræmi við ákvæði lögreglulaga
nr. 90/1996 og reglugerðar nr. 1051/2006 um starfsstig innan lögreglu fer aðstoðar-
lögreglustjóri með stjórn ákærusviðs embættisins. Um spennandi, krefjandi og
fjölbreytt starf er að ræða sem heyrir undir lögreglustjóra.
Ákærusvið embættisins annast ákærumeðferð mála og eru starfsmenn sviðsins
lögreglumönnum innan handar við rannsóknir mála. Undir sviðið heyra þrjú
ákæruteymi, teymi eitt sem sinnir miðlægum málum embættisins, teymi tvö sem
sinnir umferðarmálum og öðrum verkefnum og teymi þrjú sem sinnir verkefnum
lögreglustöðva embættisins.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun
sem er til staðar fyrir alla alltaf. Megin áhersla er lögð á jafnrétti, starfsánægju,
heilbrigðan starfsanda, traust og gagnsæi í samskiptum og að starfsfólk búi yfir
þekkingu og hæfni til að takast á við fjölbreytileg verkefni. Starfsfólk embættisins
er um 430 á fjórum megin starfsstöðvum.
Gildi embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu eru
TRAUST, FAGMENNSKA og ÖRYGGI.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Lögreglustjóra til aðstoðar í daglegum störfum
• Ábyrgð á daglegum rekstri og starfsemi ákærusviðs embættisins
• Tekur þátt í áætlangerð, skipulagningu og markmiðasetningu embættisins og
tryggir að unnið sé í samræmi við stefnu, áherslur og markmið
• Fylgir eftir fyrirmælum ríkissaksóknara um meðferð ákæruvalds og hefur eftirlit
með framkvæmd ákæruvalds hjá embættinu
• Almennt fyrirsvar og bein samskipti við ráðuneyti, önnur embætti, stofnanir og
fjölmiðla um verkefni ákærusviðs og annarra deilda í samráði við lögreglustjóra
• Seta í yfirstjórn embættisins og þátttaka í stefnumótun
• Fagleg leiðsögn til teymisstjóra og annarra starfsmanna
• Aðstoðarlögreglustjóri á ákærusviði er jafnframt staðgengill lögreglustjóra
Menntunar- og hæfniskröfur:
Umsækjendur skulu uppfylla skilyrði 3. mgr. 28. gr. lögreglulaga nr. 90/1996, sbr. 2.
mgr. 28. gr. sömu laga, en aðrar hæfniskröfur eru auk þess:
• Yfirgripsmikil þekking á verkefnum lögreglunnar
• Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
• Mikil og fjölbreytt reynsla af rannsókn og saksókn sakamála, þ.á.m. reynsla
af málsmeðferð og málflutningi fyrir dómstólum
• Árangursrík reynsla af almennri stjórnun og stefnumótun.
• Framúrskarandi forystu- og samvinnuhæfni.
• Farsæl reynsla af því að leiða verkefni til árangurs.
• Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur og jákvæðni
• Góð þekking og/eða reynsla af starfi innan opinberrar stjórnsýslu
• Góð þekking og/eða reynsla af rekstri og/eða áætlanagerð
• Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti
Dómsmálaráðherra skipar aðstoðarlögreglustjóra til 5 ára í senn, sbr. lög um rétt-
indi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Um laun og starfskjör aðstoðar-
lögreglustjóra fer eftir samningi fjármálaráðherra og Stéttarfélags lögfræðinga.
Upplýsingar um starfið veitir Halla Bergþóra Björnsdóttir lögreglustjóri í síma 444 1000 eða með tölvupósti HallaBB@lrh.is.
Umsóknarfrestur er til og með 16.02.2022.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.
Sækja skal um stöðuna með pósti á netfangið starf@dmr.is.
Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá, afrit af prófskírteinum, upplýsingar
um umsagnaraðila og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
hvernig viðkomandi uppfylli hæfniskröfur fyrir starfið. Umsækjandi skal í kynningar-
bréfi gera skýra grein fyrir hæfni sinni í samræmi við þær hæfniskröfur sem fram
koma í 28. gr. laga nr. 90/1996 og auglýsingunni. Í umsókninni skulu einnig koma
fram upplýsingar um hvern og einn þeirra þátta sem tilgreindir eru í 28. gr. lögreglu-
laga og auglýsingunni auk annarra upplýsinga sem varpað geti ljósi á faglega eigin-
leika og færni umsækjanda sem máli skipta fyrir störf aðstoðarlögreglustjóra.
Aðstoðarlögreglustjóri
ákærusvið