Fréttablaðið - 29.01.2022, Síða 59

Fréttablaðið - 29.01.2022, Síða 59
Sérstök óbyggðanefnd sem sett hefur verið til að annast máls meðferð á grundvelli 1. málsl. 7. mgr. 10. gr. laga nr. 58/1998, um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóð lendna og afrétta (þjóðlendulaga), hefur til skoðunar að taka 17 landsvæði til meðferðar. Ákvæðið heimilar óbyggðanefnd að „taka til meðferðar svæði sem áður hafa sætt meðferð hennar ef hún hefur í úrskurði gert athugasemd við kröfugerð ráðherra“. Óbyggðanefnd tók svæðin til meðferðar í júní 2020 og í janúar 2021 bárust kröfur íslenska ríkisins vegna þeirra. Í október 2021 ákvað nefndin að reglulegir nefndar menn skyldu víkja sæti við málsmeðferðina vegna vanhæfis. Því var í desember 2021 sett sérstök óbyggðanefnd til að annast málsmeðferðina. Sérstök óbyggðanefnd hefur ákveðið að hverfa frá þeirri máls meðferð sem óbyggðanefnd hafði áður stofnað til og hyggst skoða að nýju hvort taka beri land svæðin til meðferðar en ljóst þykir að einungis komi til álita umrædd 17 svæði. Til að stuðla að því að öllum sem kunna að hafa athugasemdir við mögulega töku til meðferðar gefist kostur á að koma sjónarmiðum á framfæri áður en framhaldið er ákveðið er nú auglýst að þetta sé til skoðunar. Hér með er þeim sem kunna að hafa athugasemdir við að svæðin sem tilgreind eru hér á eftir verði tekin til meðferðar hjá sérstakri óbyggðanefnd gef­ inn kostur á að koma sjónarmiðum þar að lútandi skriflega á framfæri í síðasta lagi 18. febrúar 2022 við skrifstofu óbyggðanefndar, Skuggasundi 3, 101 Reykjavík, postur@obyggdanefnd.is. Á þessu stigi er einungis kallað eftir sjónarmiðum um laga­ legan grundvöll málsmeðferðarinnar en ekki kröfu lýsingum eða öðru sem varðar möguleg eignar rétt indi. Við ákvörðun um framhaldið leggur nefndin einnig mat á þýðingu sjónar­ miða sem þegar hafa komið fram af hálfu mögulegra rétt­ hafa og varða grundvöll málsmeðferðarinnar. Á vefsíðunni www.obyggdanefnd.is/serstok eru nánari upp lýsingar og viðkomandi hlutar af úrskurðum óbyggða­ nefndar en svæðin eru: 1. Svæði við vesturmörk Skriðu ­ klausturs; 2. svæði við vesturmörk Valþjófsstaðar; 3. nyrsti hluti Grímólfsártungu; 4. Kverkártunga; 5. svæði við norður mörk þjóðlendunnar afréttar Torfufells, Hólsgerðis og Úlfár; 6. svæði við norðurmörk þjóðlendunnar Vask­ ár dals; 7. svæði við norðurmörk þjóðlendunnar Al­ menn ings; 8. svæði við norðurmörk þjóðlendunnar Bakka sels; 9. svæði við norðurmörk þjóðlendunnar Ey­ vindar staðaheiðar; 10. svæði við norðurmörk þjóð lend­ unn ar Hraunanna; 11. svæði við vesturmörk þjóðlend unn ar Skrapatunguafréttar; 12. svæði við norðurmörk þjóð­ lendunnar Skrapatunguafréttar; 13. svæði við norðurmörk þjóðlendunnar Auðkúluheiðar; 14. svæði milli Kornsár og Kleppukvíslar; 15. svæði við austurmörk Hítardals; 16. svæði við norðausturmörk Svarfhóls; 17. svæði austan og sunnan Drangajökuls. Tilkynning frá sérstakri óbyggðanefnd kopavogur.is Leikskólastjóri óskast í Álfaheiði Í leikskólanum Álfaheiði eru 79 börn á aldrinum eins til fimm ára og við skólann starfar reynslumikill og skemmtilegur hópur fagfólks. Faglegt starf í leikskólanum er mjög öflugt og leikskólinn er m.a. í farar- broddi í innleiðingu á réttindaskóla UNICEF. Einkunnarorð leikskólans eru: deilum gildum okkar til að skapa betri heim. Leikskólinn er staðsettur á fallegum stað í Kópavogi í nálægð við skemmtilegt útivistarsvæði, en útivera og umhverfismennt er mikilvægur þáttur í starfinu. Leitað er að stjórnanda sem hefur góða hæfni í mannlegum samskiptum, er skipulagður og umbótadrifinn og hefur metnað til að ná árangri í starfi. Viðkomandi þarf að vera leiðtogi í sínum skóla, veita faglega for- ystu og búa yfir hæfni og frumkvæði til að skipuleggja skapandi leikskólastarf í samvinnu við starfsmenn, forráðamenn og menntasvið. Menntunar- og hæfniskröfur · Kennaramenntun og leyfisbréf kennara · Reynsla af starfi og stjórnun í leikskóla · Framhaldsmenntun (MA, MEd, MBA eða Diplóma að lágmarki) á sviði stjórnunar eða uppeldis- og menntunarfræða · Forystuhæfileikar og góð færni í mannlegum samskiptum · Fagleg forysta, sýn og vilji til nýbreytni og þróunar í leikskólastarfi · Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi · Góð tölvukunnátta · Góð íslenskukunnátta Umsóknarfrestur er til og með 14. febrúar 2022. Ráðið verður í stöðuna eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar um starfið má finna á ráðningarvef Kópavogsbæjar https://kopavogur.alfred.is/ Eingöngu er hægt að sækja um störfin rafrænt í gegnum ráðningarkerfið Alfreð. kopavogur.is Spennandi tækifæri fyrir metnaðarfullan leiðtoga Leikskólinn Efstihjalli óskar eftir leikskólastjóra Efstihjalli er 5 deilda leikskóli í grónu hverfi í göngufæri við Fossvogsdal, Kópavogsdal og Digraneshæð. Leikskólinn er fjölmenningarskóli með tæplega 40% barna með annað móðurmál en íslensku. Unnið er að allsherjar viðhaldi og endurbótum á húsnæði leikskólans sem verður lokið í maí. Útileiksvæði skólans er nýuppgert. Kópavogsbær er barnvænt samfélag sem er í stöðugri þróun og staða leikskólastjóra við Efstahjalla er tækifæri fyrir áhugasaman leikskólastjóra með framsæknar hugmyndir og faglegt frumkvæði til að þróa áfram metnaðarfullt starf með börnum og öflugum starfsmannahóp. Leitað er að stjórnanda sem hefur góða hæfni í mannlegum samskiptum, er skipulagður og umbótadrifinn og hefur metnað til að ná árangri í starfi. Viðkomandi þarf að vera leiðtogi í sínum skóla, veita faglega forystu og búa yfir hæfni og frumkvæði til að skipuleggja skapandi leikskólastarf í samvinnu við starfsmenn, forráðamenn og menntasvið. Menntunar- og hæfniskröfur · Kennaramenntun og leyfisbréf kennara · Reynsla af starfi og stjórnun í leikskóla · Framhaldsmenntun (MA, MEd, MBA eða Diplóma að lágmarki) á sviði stjórnunar eða uppeldis- og menntunarfræða · Forystuhæfileikar og góð færni í mannlegum samskiptum · Fagleg forysta, sýn og vilji til nýbreytni og þróunar í leikskólastarfi · Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi · Góð tölvukunnátta · Góð íslenskukunnátta Umsóknarfrestur er til og með 14. febrúar 2022. Ráðið verður í stöðuna frá 1. maí 2022 eða eftir nánara samkomulagi. Nánari upplýsingar um starfið má finna á ráðningarvef Kópavogsbæjar https://kopavogur.alfred.is/ Eingöngu er hægt að sækja um störfin rafrænt í gegnum ráðningarkerfið Alfreð. Erum við að leita að þér? ATVINNUBLAÐIÐ 25LAUGARDAGUR 29. janúar 2022
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.