Fréttablaðið - 29.01.2022, Síða 61
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti þann 25. janúar 2022 að auglýsa í samræmi við 1. mgr. 43. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010 eftirfarandi tillögur að breyttu deiliskipulagi.
Hörðuvellir – Tröllakór. Tillaga að breyttu deiliskipulagi.
Tillaga að breyttu deiliskipulagi opins svæðis við Tröllakór. Í breytingunni felst breytt afmörkun skipulags-
svæðisins til að koma fyrir skólagörðum og garðlöndum fyrir bæjarhlutann. Skipulagssvæðið stækkar úr
6,85 ha í um 7,7 ha, svæðið fyrir skólagarðana og garðlöndin er um 0,4 ha. Gert er ráð fyrir færanlegu
aðstöðuhúsi að hámarki 30 m2. Að öðru leiti er vísað í gildandi deiliskipulag Hörðuvalla m.s.br.
Tillagan er sett fram á uppdráttum í mkv. 1:2000 og 1:500 ásamt greinargerð dags. 13. janúar 2022.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Hörðuvellir. Tillaga að breyttu deiliskipulagi.
Í breytingunni felst að breyta mörkum skipulagssvæðis Hörðuvalla í samræmi við deiliskipulag þriðja áfanga
Arnarnesvegar. Þar sem gert er ráð fyrir brú eða undirgöngum undir Arnarnesveg rétt norðaustan hringtorgs
við Rjúpnaveg geta göngu- og hjólastígar færst nær íbúðabyggð við Desjakór. Að öðru leiti er vísað í gildandi
deiliskipulag Hörðuvalla m.s.br.
Tillagan er sett fram á uppdráttum í mkv. 1:2000 ásamt greinargerð dags. 17. janúar 2022.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Vatnsendahvarf – athafnasvæði 3. Tónahvarf 2. Tillaga að breyttu deiliskipulagi.
Í breytingunni felst að breyta lóðamörkum Tónahvarfs 2 þar sem ný lega Arnarnesvegar hefur færst til
austurs. Lóðin sem minnkar úr 5.900 m2 og verður eftir breytingu 3.750 m2 að flatarmáli. Gert er ráð fyrir
að byggingarreitur breytist og verður grunnflötur eftir breytingu 650 m2. Hámarksbyggingarmagn verður
óbreytt eða 3.800 m2 þar af 3.000 m2 í verslun og þjónustu. Hámarks hæð byggingarreits breytis úr
þremur hæðum auk kjallara í fjórar hæðir auk kjallara. Hámarksvegghæð í gildandi deiliskipulagi er 15 metrar
á norðurhlið breytist og verður 20 metrar og þakform er frjálst. Aðkoma og fjöldi bílastæða breytist og er
gerð krafa um eitt bílastæði á hverja 100 m2 atvinnuhúsnæðis og skal ekki reikna geymslur eða þjónustu-
rými inni í þeim tölum.
Hámarks byggingarmagn kjallara og niðurgrafinnar bílageymslu er 800 m2.
Að öðru leyti er vísað í gildandi deiliskipulag athafnasvæðis Vatnsendahvarfs 3 með síðari breytingum.
Tillagan er sett fram á uppdráttum í mkv. 1:1000 dags. 17. janúar 2022
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Vatnsendahvarf – athafnasvæði. Tillaga að breyttu deiliskipulagi.
Í breytingunni felst að skipulagsmörk breytast þar sem ný lega Arnarnesvegar hefur færst til austurs.
Stærð skipulagssvæðisins eftir breytingu er 22 ha. Við gatnamót Vatnsendavegar og Tónahvarfs er gert ráð
fyrir nýju hringtorgi í stað krossgatnamóta. Að öðru leyti er vísað í gildandi deiliskipulag Vatnsendahvarfs –
afhafnasvæði m.s.br.
Tillagan er sett fram á uppdráttum í mkv. 1:2000 dags. 17. janúar 2022.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Ofangreindar tillögur eru aðgengilegar á heimasíðu bæjarins, www.kopavogur.is.
Ef óskað er eftir nánari upplýsingum um tillögurnar er hægt að senda fyrirspurn á starfsfólk skipulagsdeildar
á netfangið skipulag@kopavogur.is.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar.
Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulagsdeildar, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi
eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 16:00 miðvikudaginn 16. mars 2022.
Skipulagsfulltrúinn í Kópavogi.
kopavogur.is
Auglýsing um breytt
deiliskipulag í Kópavogi.
Mat á umhverfisáhrifum
Athugun Skipulagsstofnunar
Mountain lagoon í Hveradölum, baðhús og
baðlón
Hveradalir ehf. hafa tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar
umhverfismatsskýrslu um baðhús og baðlón í Hveradölum í
Sveitarfélaginu Ölfusi.
Kynning á umhverfismatsskýrslu: Tillaga að ofangreindri framkvæmd
og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til
kynningar hjá Skipulagsstofnun frá 31. janúar til 14.
mars. Umhverfismatsskýrslan er aðgengileg á vef Skipulagsstofnunar
www.skipulag.is.
Umsagnarfrestur: Allir geta kynnt sér umhverfismatsskýrsluna og lagt
fram umsögn. Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 14.
mars til Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, 105 Reykjavík eða með
tölvupósti á skipulag@skipulag.is.
ÚTBOÐ
Fjallabyggð óskar eftir tilboðum í að byggja anddyri, búnings-
klefa og tengibyggingu við núverandi sundlaugarbyggingu
og íþróttahús á Siglufirði, samtals 292,3 m2 á tveimur hæðum
ásamt rifi á tengigangi skv. útboðsgögnum AVH.
Verktími er frá 1. mars 2022 til 28. apríl 2023.
Helstu magntölur eru:
Gröftur 1.200 m3
Steypumót 1.400 m²
Steypustyrktarstál 10.000 kg
Steinsteypa 190 m3
Kerfisloft 260 m²
Málun 600 m²
Flísalögn samtals 600 m²
Ósk um afhendingu rafrænna útboðsgagna skal senda
á netfangið avh@avh.is og verða þau afhent frá og með
1. febrúar n.k.
Tilboð skulu berast rafrænt á netfangið avh@avh.is fyrir
kl. 13:00 þriðjudaginn 22. febrúar og verða tilboðin opnuð
kl. 13:30 sama dag í ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24,
Siglufirði í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.
Bjóðendum mun gefast kostur á að fylgjast með opnun
tilboða á fjarfundi óski þeir þess.
RÁÐNINGARRÁÐGJÖF RANNSÓKNIR
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
ATVINNUBLAÐIÐ 27LAUGARDAGUR 29. janúar 2022