Fréttablaðið - 29.01.2022, Side 90

Fréttablaðið - 29.01.2022, Side 90
Algert fífl og dóni Fólki var víða heitt í hamsi í október 2008 þegar bankar, efnahagskerfi og heilu samfélögin riðuðu til falls. Ísland lék þá á reiðiskjálfi og búsáhöld voru barin af miklum móð. Flest spjót, sleifar, pottar og pönnur, stóðu á Geir H. Haarde forsætisráðherra sem ákallaði meðal annars Guð á meðan hann reyndi að stíga reiðiölduna heima fyrir og verjast árásum vondra Breta, sem gerðu sig lík- lega til að beita þjóðina hryðjuverkalögum. Þráðurinn var orðinn helst til stuttur í for- sætisráðherranum á blaðamannafundi í Iðnó snemma í október þegar hann kallaði Helga Seljan, þá fréttamann Kastljóss, fífl og dóna, án þess að gera sér grein fyrir að hann var í talfæri við virkan hljóðnema. Á fundinum fór Geir yfir stöðuna í Icesave- deilunni og svaraði síðan spurningum frétta- fólks en sýndi spurningu frá Helga takmarkaðan áhuga, greip fram í fyrir honum og sleit fund- inum. Þegar Helgi yfirgaf salinn heyrðist Geir síðan hvísla að Urði Gunnarsdóttur, upplýsingafulltrúa utanríkisráðuneytisins, að hann væri „algert fífl og dóni, þessi maður“. Virkur hljóðneminn nam þessi orð, sem enduðu á víðförulli upptöku sem enn má heyra á öldum internetsins og hlýtur að teljast með þeim vandræðalegustu, af ótal uppákomum, í hruninu og eftirmálum þess. Hvað með feita? Opinn hljóðnemi kom Arnari Páli Haukssyni, fréttamanni Ríkisútvarpsins, í bobba þegar verið var að gera klárt fyrir pallborðsumræður for- ystufólks stjórnmálaflokkanna á Fundi fólksins í september 2016, sem áttu að vera upptaktur fyrir kosningabaráttuna. Arnar Páll stýrði umræðunum í beinni út- sendingu, en áður en hún hófst heyrðist hann spyrja þau Katrínu Jakobsdóttur, formann Vinstri grænna, og Óttar Proppé, formann Bjartrar framtíðar, hvar þau ætluðu að „láta þennan feita vera“ og átti þar við Sigurð Inga Jóhannsson, forsætisráðherra og formann Framsóknarflokksins. Óviðeigandi spurningin náðist á upptöku, sem og framhaldið, sem gerði ekkert annað en bæta gráu ofan á svart þegar Katrín spurði hvort enginn myndi koma frá Framsóknarflokknum. Þá höfðu allir formennirnir tekið sér stöðu við pallborðið nema Sigurður Ingi og Arnar Páll endurtók spurninguna: „Hvar eigum við að koma honum fyrir, þessum feita?“ Upptakan vakti víða viðbrögð, mishörð, en þáverandi Framsóknarþingmennirnir Vigdís Hauksdóttir og Gunnar Bragi Sveinsson voru meðal þeirra sem gagnrýndu framkomu Arnars Páls harðlega. Hann bað Sigurð Inga innilega afsökunar og sagðist hafa gert „hrapalleg mistök“ þegar hann kallaði hann feitan og upplýsti í samtali við Vísi að hann hefði hringt í forsætisráðherrann þá- verandi: „Hann tók því bara mjög vel og ég met hann mjög mikils sem stjórnmálamann. Þetta voru hrapalleg mistök.“ Bæ, bæ, hálfviti Leikarinn og leikstjórinn Mel Gibson hefur í seinni tíð stundað það ítrekað að koma sér í meiri háttar klandur með hljóðupptökum þar sem hann úðar út úr sér formælingum, haturs- orðræðu og hótunum. Hann hélt uppteknum hætti í febrúar 2010 þegar hann var að kynna spennumyndina Edge of Darkness í viðtali við Dean Richards, frétta- mann á WGN-TV, í beinni útsendingu. Framan af fór vel á með viðmælandanum og blaðamanninum, en þegar Richards fór út fyrir umræðuefnið og spurði Gibson út í skandala í kringum andsemitískan fúkyrðaflaum sem frá honum kom fjórum árum áður fauk sýnilega í leikarann. Gibson var enn í mynd, og með hljóði, þegar viðtalinu var lokið og hann saup reiðilega úr kaffimáli áður en hann ítrekaði kveðju sína með þessum orðum: „Bye, bye, asshole.“ Snara býður upp á þrjár íslenskar merkingar orðsins: hálfviti, asni og rassgat. Líklega kemst sú síðastnefnda næst meiningu Gibsons. Biturri reynslunni ríkari baðst Gibson snarlega afsökunar á orðum sínum með yfirlýsingu þar sem hann sagðist alls ekki hafa verið að ávarpa fréttamanninn heldur kynningarfulltrúa sinn, sem hefði verið að geifla sig framan í hann utan sjónmáls tökuvélarinnar. Grasasninn Kanye Í forsetatíð sinni blandaði Barack Obama sér, óvænt og eiginlega óvart, í langdregna deilu tónlistarstjarnanna Taylor Swift og Kanye West, þegar hann sagði Kanye vera „blábjána“ á meðan hann hitaði sig upp fyrir viðtal, ómeðvitaður um að upptaka væri í gangi. Forsetinn lét ummælin falla í kjölfar þess að rapparinn hafði ruðst upp á sviðið með truflandi dólg þegar sveitasöngkonan tók við MTV-verð- launum í september 2009. Obama var að gera sig kláran fyrir viðtal nokkrum dögum síðar þegar hann furðaði sig á framkomu Kanye, sem hann skýrði, aðspurður, með því að West væri „jackass“ sem samkvæmt íslenskum orðabókarskilgreiningum útleggst sem blábjáni, fífl, flón, grasasni eða kjáni. Og velji nú hver fyrir sig. Ummæli forsetans voru það sem kallast „off the record“ og ekki ætluð til birtingar, en upp- takan af þeim fór þó á flakk og var fyrst spiluð á slúðurvefnum TMZ. TMZ birti fyrst upptökuna sem þar með komst á spjöld internetsögunnar. SKJÁSKOT/YOUTUBE Kaldur á fréttakantinum Fréttafólk sem liggur mikið á hjarta sem á ekki erindi við al- þjóð þarf sérstaklega að varast „heita hljóðnema“ og helst halda aftur af sér þangað til þeir verða kaldir. Ingólfur Bjarni Sigfússon brenndi sig á þessu við afkynn- ingu kvöldfrétta RÚV í ágúst- byrjun 2012, þegar hann fræddi sessunauta sína í fréttasettinu um að nú væri eiginlega „bara ágætt að fara bara og fá sér einn kaldan og horfa á hand- boltann“. Yfirlýsing fréttamannsins um bjórþorsta og handbolta- spennu fór lóðbeint út á öldur ljósvakans og þaðan á inter- netið, þar sem þessi orð lifa enn góðu lífi. Enda fleyg, eins og sést best á því að þau eru svo sígild að þau áttu ekki síður við í gær en fyrir áratug. Joe Biden Bandaríkjaforseti kallaði fréttamann „tíkarson“ fyrir framan opinn hljóð- nema í byrjun vikunnar og gerðist þar með sporgöngu- maður Geirs H. Haarde sem á sínum tíma kallaði frétta- mann fífl og dóna, og fleiri sem hafa flaskað á virkum míkrófónum og vakandi tökuvélum. toti@frettabladid.is Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, þraut þolinmæðin gagnvart Peter Doocy, fréttamanni Fox News, á blaðamannafundi í byrjun vikunn- ar og kallaði hann „tíkarson“. Pirringur forsetans náðist vita- skuld á upptöku þannig að orð hans fengu vængi sem hafa borið þau umhverfis jörðina á innan við 80 klukkustundum. Þetta var á fundi svokallaðs Sam- keppnisþings í Hvíta húsinu, þegar Doocy spurði forsetann út í met- verðbólgu í landinu. Svarið, eða tónninn í því öllu heldur, varð síðan sjálfstæð frétt: „Það er frábær kostur – meiri verðbólga. Hversu heimskur tíkar- sonur,“ sagði Biden og hristi höf- uðið. Doocy hefur slegið orðum for- setans upp í grín, með þeim orðum að enn hafi enginn afsannað kenn- ingar forsetans um að hann sé tíkar- sonur og í Hvíta húsinu virðist afar takmarkaður áhugi á að bregðast frekar við orðum Bidens. Við byrjum að sprengja Biden er ekki fyrsti Bandaríkjafor- setinn sem bregður á leik, ef svo má að orði komast, við virkan hljóð- nema. Ronald Reagan kom til dæmis sterkur inn í þessum efnum og fór létt með að skekja heimsbyggðina með óábyrgu tali, löngu fyrir tíma internetsins og samfélagsmiðla. „Kæru landar, það gleður mig að tilkynna ykkur að í dag hef ég undirritað löggjöf sem gerir Rúss- land að eilífu útlægt. Við byrjum að sprengja eftir fimm mínútur.“ Þessi goðsagnakenndu orð lét Ronald Reagan falla í hljóðprufu fyrir útvarpsávarp sem hann flutti í kalda stríðinu miðju 1984. CBS News og Cable News Net- work tóku skensið upp en útvörp- uðu því ekki, samkvæmt samkomu- lagi við Hvíta húsið. Orðrómur um „ræðu“ forsetans kvisaðist þó fljótt út og skömmu síðar höfðu einhverjir fjölmiðlar haft þessi orð Reagans eftir honum á prenti. Talsmaður Hvíta hússins neitaði þó að tjá sig um eitthvert „off the record“ dót. n Meðal fífla og dóna fyrir framan míkrófóna Hey, Joe! Passaðu þig á hljóðnemanum. Hann er í gangi! FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY „Kæru landar, við byrjum að sprengja eftir fimm mínútur.“ FRÉTTABLAÐIÐ/AFP Stjórnmálaleiðtogarnir allir komnir á sinn stað. Geir H. Haarde á blaðamannafundinum... Obama gerði grín að Kanye. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Ingólfur Bjarni með hugann við handbolta. SKJÁSKOT/RÚV/YOUTUBE Fjarviðtalið endaði í rugli. SKJÁSKOT/YOUTUBE Kanye West sárnaði. ... og Helgi líka. 42 Lífið 29. janúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ 29. janúar 2022 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.