Fréttablaðið - 29.01.2022, Page 96
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is
Óttars
Guðmundssonar
n Bakþankar
Ég hef venjulega verið heilsu-
hraustur um dagana. Það kom mér
því verulega á óvart þegar hjartað
fór að slá feilpúst eins og biluð
bátsvél. Tveimur hjartaþræðingum
og umfangsmiklum rannsóknum
síðar lá fyrir greining og meðferð.
Ég fór heim með pillur í öllum
regnbogans litum með alls konar
virkni og aukaverkunum.
Mér skildist fljótlega að fólk
hefur ofurtrú á lækningakrafti
hjartaþræðinga. „Ertu ekki mikið
betri?“ var sagt. „Nei,“ sagði ég,
„þetta gengur hægt.“ Flestir verða
fyrir vonbrigðum og rekur í vörð-
urnar. Ég fór því að bera mig vel
og svara: „Þetta er allt að koma!“
Viðmælandanum leið strax betur.
Það er hlutverk hvers sjúklings að
sjá til þess að aðstandendum og
umhverfi líði vel. Þormóður Kol-
brúnarskáld gerði lítið úr sárum
sínum á Stiklastöðum þótt ör stæði
gegnum hjartað. Hann vildi ekki
valda lækninum sínum áhyggjum
og dó skömmu síðar, eins og sagt er
frá í Fóstbræðrasögu.
Ég ræddi málin við ágætan
hjartalækni fyrir skemmstu. Hann
sagði að ég væri lukkunnar pam-
fíll. „Framfarir eru svo miklar í
hjartalækningum að menn deyja
ekki lengur úr þessum sjúkdómum.
Það eru því mikil forréttindi að
vera hjartasjúklingur. Við læknum
þig ekki, en sjúkdómurinn drepur
þig ekki heldur. Vertu stoltur af
því að vera hjartveikur og njóttu
athyglinnar sem því fylgir. Gakktu
í landssamtökin og berðu þig vel
með yfirlætisfullum þjáningarsvip.
Taktu lyfin þín samviskusamlega
og fagnaðu saklausum aukaverk-
unum eins og getuleysi, harðlífi og
svima. Dauðinn kemur svo fyrr eða
síðar dulbúinn sem kvef, byssukúla
eða elliglöp.“ Ég þakkaði hjarta-
lækninum og gekk brosandi út í
vetrarhríðina með nýjan skilning á
sjúklingshlutverkinu. n
Hjartans mál