Fréttablaðið - 25.03.2022, Side 4
Hér er full samstaða
um að það hafi verið
mjög mikilvægt að fara
út í þessar þvinganir
og að halda þeim til
streitu.
Katrín Jakobsdóttir,
forsætisráðherra
Útgáfa trygginga fyrir
flóttafólk er í forgangi
hjá Sjúkratryggingum.
olafur@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Í ársbyrjun 2020 lækkaði
gjaldskrá Íslandspósts fyrir pakka-
og vörusendingar um allt að 37
prósent og magn flutninga jókst til
muna. Aukning varð líka á árinu
2021.
Fyrir gjaldskrárlækkun voru bréf,
pakkar og vörusendingar sótt til
fyrirtækja gegn mjög vægu gjaldi
þrátt fyrir að tap væri á þeirri starf-
semi.
Í ársreik ning i Íslandspóst s
kemur ekki fram sundurliðun
á magni innlendra og erlendra
pakkasendinga.
Fyrir liggur að verulegt tap var
á innlendum pakka- og vörusend-
ingum fyrir árið 2020 og samkvæmt
ógegnsæjum ársreikningum félags-
ins bendir ekkert til að úr því hafi
dregið við 37 prósenta gjaldskrár-
lækkun.
Pakkasendingar eru á samkeppn-
ismarkaði og lagalega ber Íslands-
pósti að verðleggja pakkasendingar
svo þær standi undir raunkostnaði
og skili hæfilegum hagnaði.
Þrátt fyrir lagaskyldu um hið
gagnstæða bendir f lest til þess að
Íslandspóstur hafi beitt undirverð-
lagningu til að styrkja stöðu sína á
samkeppnismarkaði og nýtt fram-
lag frá skattgreiðendum til að fjár-
magna taprekstur á þeim markaði.
Fréttablaðið hefur kallað eftir
skýringum frá Íslandspósti um
þetta efni. Einnig hefur verið óskað
eftir upplýsingum frá innviðaráðu-
neytinu og Byggðastofnun, sem fer
með eftirlit með Íslandspósti, um
lögmæti gjaldskrár Íslandspósts,
án þess að svör hafi borist. ■
Engin svör fást um umdeilda verðlagningu Póstsins
Á síðu 11 í ársskýrslu Íslandspósts er
graf sem sýnir magnaukningu pakka
en veitir í raun engar upplýsingar.
Forsætisráðherra telur ólík-
legt að stríðinu í Úkraínu ljúki
í bráð. Burtséð frá því hvort
brátt verði samið um frið
hafi stór gjá myndast milli
vesturveldanna og Rússlands.
Kjarnorkuógnin sé líka alltaf
fyrir hendi.
kristinnhaukur@frettabladid.is
ÚKRAÍNA Katrín Jakobsdóttir for-
sætisráðherra telur að áhrif stríðs-
ins og sú gjá sem myndast hefur
milli vesturveldanna og Rússlands
muni vara í langan tíma. Katrín
sótti neyðarfund Atlantshafsbanda-
lagsins í Brussel í gær vegna stríðsins
í Úkraínu. Einnig fara neyðarfundir
Evrópusambandsins og iðnríkjanna
sem mynda G7 fram í borginni.
„Það hefur orðið skýrt rof í sam-
skiptunum við Rússland eftir þessa
innrás,“ segir Katrín. Telur hún ólík-
legt að samið verði um frið í Úkra-
ínu í bráð. Þó svo færi væri óneitan-
legt að gjáin væri orðin dýpri.
„Að sjálfsögðu vona ég að þetta
stríð dragist ekki á langinn. Staðan
er hræðileg, fjöldi fólks á f lótta, að
berjast og deyja. Það er vilji okkar
allra og von að þessu stríði ljúki sem
fyrst. Því miður óttast ég að áhrifin
verði töluverð og til lengri tíma,“
segir hún.
NATO hefur verið gagnrýnt fyrir
að beita sér ekki með ákveðnari
hætti, en á neyðarfundinum var það
ítrekað að bandalagið myndi ekki
beita sér með beinum hætti gegn
Rússum. Þó verður Úkraína studd
enn frekar með búnaði, þar á meðal
hergögnum, en einnig mannúðar-
aðstoð og móttöku flóttafólks.
Ákveðið var að auka enn á við-
búnaðinn austan megin í banda-
laginu, eftir skýrt ákall frá leið-
togum þeirra ríkja. Þá var ákveðið
að framlengja skipunartíma Jens
Stolten berg, hins norska fram-
kvæmdastjóra NATO, sem átti að
taka við sem seðlabankastjóri í
heimalandinu í haust.
Deilt hefur verið um hversu mikl-
um árangri viðskiptaþvinganirnar
gegn Rússum skili. Aðspurð um
þetta atriði segir Katrín leiðtogana
sannfærða um að þær séu að virka,
enda séu þær mun umsvifameiri en
áður hafi sést.
„Stríðið hefur nú staðið yfir í
mánuð og allir vissu að það myndi
taka einhvern tíma fyrir þær að
virka,“ segir Katrín. „Hér er full
samstaða um að það hafi verið
mjög mikilvægt að fara út í þessar
þvingan ir og að halda þeim til
streitu.“
Meðal þess sem kom fram hjá
Stoltenberg í gær var að ef Rússar
beittu efnavopnum gæti það knúið
NATO til þess að skerast í leikinn
með beinum hætti, það er vegna
hættunnar á að eitrun bærist til
NATO-ríkja. Ljóst er því að stig-
mögnun stríðsorðræðunnar heldur
áfram. Enn er líka rætt um kjarna-
vopn og mögulega notkun Rússa á
taktískum kjarnaoddum.
„Raunveruleikinn sem við stönd-
um frammi fyrir er að sú ógn er
alltaf fyrir hendi,“ segir Katrín um
kjarnorkuvána.
„Hún minnir okkur á það núna,
frekar en nokkru sinni fyrr, hversu
mikilvægt það er að eftirlit með
kjarnavopnum sé fyrir hendi og
raunver uleg ir samningar um
afvopnun.“ ■
Rof hafi myndast gagnvart Rússlandi
Katrín ræðir við Mario Draghi, forsætisráðherra Ítalíu, í Brussel í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Velkomin á
stórsýninguna
Verk og vit 2022
Stórsýningin
Verk og vit
2022 Íslenskur byggingariðnaður,
mannvirkjagerð og skipulagsmál
Laugardalshöll 24.–27. mars
OPNUNARTÍMI FAGAÐILAR ALMENNIR GESTIR
Föstud. 25. mars kl. 11-19
Laugard. 26. mars kl. 11-17 kl. 11-17
Sunnud. 27. mars kl. 12-17 kl. 12-17
Verð aðgöngumiða: kr. 3.500 kr. 1.750
Aðgöngumiði fagaðila gildir alla sýningardagana
Miðasala á verkogvit.is, tix.is og við innganginn
Allt það nýjasta í íslenskum byggingariðnaði,
mannvirkjagerð og skipulagsmálum
Fyrsta flóttafólkið lenti á Kefla-
víkurflugvelli í byrjun mars.
adalheidur@frettabladid.is
FLÓTTAFÓLK Fyrstu tuttugu flótta-
mennirnir sem hingað komu frá
Úkraínu hafa fengið íslenska sjúkra-
tryggingu og þar með fullan rétt til
greiðsluþátttöku hins opinbera í
nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá
stofnuninni.
Þar segir að Sjúkratryggingar
muni áfram setja útgáfu trygginga
fyrir flóttamenn í forgang þannig að
þær verði virkar innan sólarhrings
frá því nauðsynleg gögn berast.
Sjúkratryggingar gera jafnframt
ráð fyrir að taka þátt í móttöku
flóttamanna í miðstöðinni í Domus
Medica, með því að vera þar með
fulltrúa sem geta gefið upplýsingar
um afgreiðslu hjálpartækja og lyfja-
korta, greiðsluþátttöku í heilbrigðis-
þjónustu og fleira.
Þá er tekið fram í tilkynningunni
að f lóttafólk, eins og aðrir, hafi
ávallt aðgang að bráðaþjónustu,
óháð því hvort sjúkratrygging er
frágengin. ■
Fyrsti hópurinn
sjúkratryggður
4 Fréttir 25. mars 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ