Fréttablaðið - 25.03.2022, Síða 6
Eldur blossaði upp
þegar starfsmenn voru
að vinna með hreinsað
bensín.
Þegar fólk sér fram á
persónulega ábyrgð,
og mögulegan fang-
elsisdóm, vegna vist-
morðs geta þessi
ákvæði haft forvarnar-
gildi.
Andrés Ingi
Jónsson, þing-
maður Pírata
Hópur þingmanna vill að
ríkisstjórnin beiti sér fyrir
því að vistmorð verði skil-
greint sem glæpur samkvæmt
alþjóðalögum. Núverandi lög
gangi ekki nógu langt.
kristinnhaukur@frettabladid.is
UMHVERFISMÁL Tólf þingmenn
Pírata, Vinstri grænna, Samfylk-
ingar og Viðreisnar hafa lagt fram
þingsályktunartillögu um að ríkis-
stjórnin beiti sér fyrir því að vist-
morð verði skilgreint sem brot á
alþjóðalögum. Þá geti Alþjóðlegi
sakamáladómstóllinn í Haag dregið
einstaklinga til ábyrgðar fyrir slík
brot.
Orðið vistmorð (e. ecocide) hefur
verið til síðan á áttunda áratug
síðustu aldar, en hefur ekki verið
mikið notað nema á undanförnum
árum. Sameinuðu þjóðirnar hafa
ekki enn viðurkennt vistmorð sem
glæp. Eins og þjóðarmorð er alvar-
legasti glæpurinn gagnvart fólki er
vistmorð sá alvarlegasti gagnvart
umhverfinu. Umhverfisspjöll sem
eru svo alvarleg að þau geta haft
áhrif á frið og öryggi í heiminum.
„Þetta eru brot sem fólk er orðið
miklu meðvitaðra um í seinni tíð,“
segir Andrés Ingi Jónsson, þingmað-
ur Pírata og fyrsti f lutningsmaður
tillögunnar. „Við gætum tekið dæmi
af stórfyrirtæki sem ryður stórt
landsvæði í regnskógi til að koma
fyrir námu- eða olíuvinnslu. Eða
beinar aðgerðir stjórnvalda, eins og
nýleg árás rússneska hersins á Zapo-
rizhzhia-kjarnorkuverið í Úkraínu.
Ef það hefði sprungið er ekki víst að
lög um stríðsglæpi næðu yfir það.“
Rétt eins og hefðbundið morð
þarf vistmorð ekki að vera af ásetn-
ingi. Gáleysi eða stórkostlegt gáleysi
heyrir þar undir. „Tsjernobíl var
gáleysisbrot. Fólk hefði átt að vita
að svona gæti farið,“ segir Andrés.
Alþjóðlegi sakamáladómstóll-
inn hefur lögsögu í fjórum mála-
f lokkum. Hópmorðum, glæpum
gegn mannúð, strípsglæpum og
glæpum gegn friði. Verði vistmorði
bætt inn í þarf að gera breytingar á
Rómarsáttmálanum frá árinu 1998.
Hafa ber þó í huga að stór ríki eins
og Kína og Indland hafa ekki undir-
ritað hann og Bandaríkin og Rúss-
land ekki fullgilt hann.
Samkvæmt núverandi alþjóð-
legum skuldbindingum er hægt
að heimfæra ákveðinn umhverfis-
skaða í hernaðarátökum á tiltekin
ákvæði laga, en þá þarf að vera
um ásetningsbrot að ræða. Dæmi
um þetta getur verið eyðilegging
ræktarlands með sprengingum eða
eitri. Taki dómstóllinn vistmorð inn
í sína lögsögu myndi það einnig ná
yfir friðartíma- og gáleysisbrot.
Vistmorð þarf hins vegar alltaf að
vera alvarlegt og dómstóllinn því
ekki að hafa lögsögu yfir vægari og
staðbundnari brot.
„Loftslagsváin á stóran þátt í að
þetta er komið á dagskrá,“ segir
Andrés. „Sú ógn sem vistkerfum
jarðar stafar af henni er orðin mik-
ill áhrifavaldur að óstöðugleika í
heiminum. Bæði beinar hamfarir og
afleiddar ófarir eins og fólksflótti.“
Andrés segir það mikilvægt að
einstaklingar þurfi að svara til saka
fyrir vistmorð, en ekki fyrirtæki,
stofnanir eða ríki. Það sé auðvelt
fyrir stjórnendur að skýla sér bak
við það og borga sektir. „Þegar fólk
sér fram á persónulega ábyrgð, og
mögulegan fangelsisdóm, vegna
vistmorðs, geta þessi ákvæði haft
forvarnargildi,“ segir Andrés. ■
Vistmorð verði skilgreint sem glæpur
Geislavirkni
mæld nálægt
Tsjernóbíl-
kjarnorkuverinu
eftir slysið árið
1986.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Opnaðu myndavélina í símanum
þínum og skannaðu þennan QR kóða.
Stöðvum kynferðisofbeldi á djamminu
lovisa@frettabladid.is
COVID-19 Alls hafa fimmtíu ein-
staklingar leyst Parkódín út oftar
en einu sinni eftir að Lyfjastofnun
samþykkti tímabundna heimild til
að afgreiða Covid-sjúklinga um tíu
500 milligramma töf lur án lyfja-
ávísunar. Af þeim sem hafa fengið
Parkódín afgreitt oftar en einu sinni
hafa fjögur prósent fengið lyfið
afgreitt oftar en tvisvar frá 16. mars
þegar heimildin var veitt.
Samkvæmt Lyfjastofnun er það
brot á reglum að afgreiða f leiri en
tíu töflur á þessu tíu daga tímabili
frá útgáfu vottorðs.
Frá 16. mars til 23. mars höfðu
2.944 einstaklingar fengið afgreidd-
ar tíu töf lur af 500 milligramma
Parkódíni á grundvelli undanþág-
unnar, en hún var veitt í því skyni
að létta álagi af heilsugæslunni og
heilbrigðiskerfinu en Parkódíninu
er einkum ætlað að slá á hósta og
önnur óþægindi af Covid-sýkingu.
Í því skyni að koma í veg fyrir
að fólk fengi lyfið afgreitt oftar en
heimilt er fengu lyfsalar aðgang að
vinnslukerfi lyfjaafgreiðsla til að
kanna hvort fólk hefði áður fengið
það afgreitt, með eða án lyfjaávís-
unar.
Fréttablaðið greindi frá því að
eftir að tímabundna heimildin var
veitt rauk Parkódín úr hillum apó-
teka og þurftu margir lyfsalar að
opna stærri pakkningar til að geta
afhent fólki aðeins tíu töflur. ■
Nánar á frettabladid.is
Fimmtíu hafa fengið Parkódín umfram heimild
Fólk smitað af Covid-19 hefur fengið
undanþágu og getur keypt 10 töflur
af Parkódíni í apóteki án lyfseðils.
bth@frettabladid.is
GRENIVÍK Tveir starfsmenn Pharm-
arctica á Grenivík brenndust alvar-
lega eftir sprengingu í fyrirtækinu
í fyrradag. Sveitarstjóri, Þröstur
Friðfinnsson, segir mikla nánd og
samstöðu í samfélaginu. Fólk sé
mjög slegið.
Eldur blossaði upp þegar starfs-
menn voru að störfum með hreins-
að bensín. Starfsfólk og aðstand-
endur hafa átt kost á áfallahjálp frá
Rauða krossinum.
Fyrirtækið framleiðir meðal ann-
ars snyrtivörur. Hefur framleiðslan
gengið vel undanfarið og veitt 14-16
manns störf. ■
Tveir starfsmenn
brenndust illa
adalheidur@frettabladid.is
ORKUMÁL Dregið gæti til tíðinda
varðandi kaup rík is ins á Landsneti
á þessu ári. Þetta sagði Bjarni Bene-
diktsson, fjármála- og efnahagsráð-
herra, á ársfundi Landsvirkjunar í
gær. Hann sagði að í orkustefnunni
væri rík áhersla lögð á að flutnings-
kerfið sé í eigu opinberra aðila.
Í fyrra var undirrituð viljayfir-
lýsing við Landsvirkjun, RARIK,
Orkuveitu Reykjavíkur og Orkubú
Vestfjarða, um viðræður við ríkið
um kaup á hlutum þeirra í Lands-
neti.
Í ræðu sinni þakkaði Bjarni
stjórnendum og starfsfólki Lands-
virkj unar vel unnin störf en Lands-
virkjun greiðir 15 millj arða arð til
rík is ins, tí falt meira en fyr ir fjór um
árum. ■
Ríkið eignist
Landsnet á árinu
Bjarni
Benediktsson,
fjármála- og
efnahagsráð-
herra
6 Fréttir 25. mars 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ