Fréttablaðið - 25.03.2022, Síða 10
n Halldór
n Frá degi til dags
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is,
FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún
Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Við lifum
á sérlega
refsi glöð
um tímum
þar sem
tíðkað er
að rifja
upp atvik
sem gerð
ust fyrir
mörgum
árum og
sýna ein
staklinga
í verulega
slæmu
ljósi.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb
@frettabladid.is
Það getur verið þó nokkuð vanda-
samt að vera þokkaleg manneskja í
þessum heimi enda mistekst okkur
það öllum einstaka sinnum. Af mis-
tökum má hins vegar læra og sá lær-
dómur kennir okkur f lestum að engin ástæða
sé til að endurtaka vitleysuna. Þannig gerum
við á lífsleiðinni ýmislegt vafasamt en sjáum
venjulega að okkur og þroskumst um leið.
Sumir eru þó í þeirri stöðu að þeir virðast
nánast dæmdir til að endurtaka mistök sín.
Þetta á ekki síst við um þá sem eru fastir í
áfengis- og vímuefnaneyslu. Í slíku ástandi
gerir fólk ýmislegt sem það myndi ekki gera,
væri það með sjálfu sér.
Svo að segja hver einasti einstaklingur
þekkir einhvern í umhverfi sínu sem hefur
verið vel á veg kominn með að eyðileggja líf
sitt og hefur um leið skapað öðrum sorg og
skaða með hegðun sinni. Sumir eiga ekki
afturkvæmt frá þessu líferni en það á alls ekki
við um alla. Þegar fíkill ákveður að snúa baki
við fyrra líferni og byggja sig upp að nýju, þá
streymir gleði og feginleiki um aðstandendur
og vini. Vondi tíminn er að baki. Eða hvað?
Manneskja sem vill snúa baki við fyrra
lífi og verða betri en hún var á sínum verstu
stundum verður að mæta skilningi. Endalaust
er hægt að rifja upp allt það sem hún gerði
þegar henni var ekki sjálfrátt og dæma hana af
hörku og miskunnarleysi. En það er ekki sann-
gjörn meðferð á manneskju, sem orðin er allt
önnur en hún var, að velta henni miskunnar-
laust upp úr fortíð sem var ömurleg, bæði fyrir
viðkomandi og aðra. Fortíðin á ekki endalaust
að elta fólk uppi.
Við lifum á sérlega refsiglöðum tímum þar
sem tíðkað er að rifja upp atvik sem gerðust
fyrir mörgum árum og sýna einstaklinga í
verulega slæmu ljósi. Lítið þýðir að benda á
að viðkomandi hafi þá verið á vondum stað
í lífinu en langt sé síðan hann hafi áttað sig
og skapað sér betra líf. Sá sem nefnir þetta er
umsvifalaust dæmdur sem skelfilega meðvirk-
ur, sagður vera að réttlæta hrikalega hegðun
og fær yfir sig vænan skammt af svívirðingum.
Sú fallega og réttláta hugsun að allir eigi rétt á
öðru tækifæri í lífinu á ekki sérlega mikið upp
á pallborðið í samtíma okkar. Það sama á við
um fyrirgefninguna, hún þykir líka óskaplega
hallærisleg.
Boðorð dagsins er að það eigi að refsa og
engu gleyma. Um leið er lítið sem ekkert rými
fyrir skilning, umburðarlyndi og fyrirgefn-
ingu. Í allri sinni miklu grimmd er refsigleðin
við völd. n
Fortíðin
Samfylkingin, Viðreisn og Píratar leggja til að þjóðin
fái að svara eftirfarandi spurningu játandi eða neit-
andi í þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir árslok: „Vilt þú að
Ísland taki upp þráðinn í viðræðum við Evrópusam-
bandið með það að markmiði að gera aðildarsamning
sem borinn yrði undir þjóðina til samþykktar eða
synjunar?“
Flokkarnir hafa lagt fram þingsályktun þess efnis
á Alþingi, því við teljum aðildarviðræður við Evrópu-
sambandið varða grundvallarhagsmuni þjóðar, og
mikilvægt að kalla eftir afstöðu hennar.
Viðbrögð stjórnarliða við auknum áhuga almenn-
ings á Evrópusamstarfi og umræðu um þjóðar-
atkvæðagreiðslu bera hins vegar þess merki að þeir
óttist að spyrja þjóðina um framhald viðræðna. Lík-
lega vegna þess að þeir eru hræddir við niðurstöðuna;
hræddir við að þjóðinni gæti þótt það spennandi að
taka þátt í friðarbandalagi vinaþjóða, sem hefði auk
þess afar jákvæðar efnahagslegar afleiðingar og bætt
lífskjör í för með sér.
En þótt Sjálfstæðismönnum kunni að þykja
„ósmekklegt“ að ræða þetta risastóra hagsmunamál
opinberlega nú þegar breytt heimsmynd blasir við, og
forsætisráðherra telji ástæðulaust að spyrja þjóðina
þar sem ríkisstjórnarflokkarnir séu á móti aðild,
kalla nýjar áskoranir og breytt heimsmynd á aukna
samvinnu lýðræðisþjóða; samvinnu um grunngildi,
menningu og efnahag.
Óábyrg útilokun
Evrópusambandið leggur áherslu á viðskiptafrelsi,
lýðræði og sjálfbærni, en það hefur einnig tekið sér
vaxandi hlutverk í varnar- og öryggismálum í kjölfar
innrásarinnar í Úkraínu. Ísland hefur mikla hagsmuni
af því að taka þátt í slíku samstarfi og eiga sæti við
borðið þar sem ákvarðanir eru teknar.
Það er óábyrgt af ríkisstjórnarflokkunum að útiloka
með öllu samstarf sem getur aukið velsæld og öryggi
landsmanna – án þess að þjóðin fái nokkra aðkomu að
þeirri ákvörðun.
Treystum þjóðinni og kjósum um framhaldið! n
Treystum þjóðinni
Logi Einarsson
formaður Sam-
fylkingarinnar
Það er
óábyrgt
af ríkis
stjórnar
flokkunum
að útiloka
samstarf
sem getur
aukið
velsæld
og öryggi
lands
manna.
ÍÞRÓTTAVIKAN
MEÐ BENNA BÓ
FÖSTUDAGA KL. 19.00
ser@frettabladid.is
Neyðarlegt
Það er auðvitað svolítið neyðar-
legt að mæta aftur og ævinlega
í samkvæmi samtakanna sem
maður er heitstrengingslega
á móti. Þetta er svona eins og
Frammarinn sé manna glaðastur
á þorrablóti Valsaranna, eða
svipað því að KA-maðurinn sé
aðalræðumaðurinn á lokahófi
Þórsara, jafnvel áþekkt því að
Helgi Áss Grétarsson gangist við
formennsku í Öfgum, kvenna-
hópnum sem berst gegn kyn-
ferðislegu ofbeldi. En svona er nú
komið fyrir Katrínu Jakobsdótt-
ur, formanni þess stjórnmálaafls
sem hefur mestan og dýpstan
ímugust á Nató.
Nauðsynlegt
En kannski er þetta bara í sam-
ræmi við síðustu tíma þegar
engir vinna meira og þéttar
saman en sósíalistar og kapítal-
istar, síðhærðir sófakommar og
kapítalistar af Tortóluðustu gerð,
en þannig er nú bara komið fyrir
pólitíkinni, ef maður þarf að þýð-
ast Nató þá þýðist maður Nató,
ef maður þarf að taka í höndina
á Erdogan þá bara réttir maður
út spaðann. Og allt í nafni þessa
pólitíska möguleika sem fyrr og
áður átti að heita ómöguleiki.
Og nú er bara beðið eftir því að
Bjarni Benediktsson verði aðal-
ræðumaður hjá Menningar félagi
Íslands og ráðstjórnarríkjanna og
komist við í hrifningu sinni yfir
því kompaníi. n
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 25. mars 2022 FÖSTUDAGUR