Fréttablaðið - 25.03.2022, Page 12
Merkisatburðir
Kortlagning, verndun og upp-
lifun af víðernum Íslands verður
til umræðu á málþingi í Norræna
húsinu í dag.
arnartomas@frettabladid.is
Víðerni Íslands verða í brennidepli á
fjölbreyttu málþingi í Norræna hús-
inu í dag undir yfirskriftinni Víðerni í
víðu samhengi: Kortlagning, verndun
og upplifun. Stofnun Sæmundar fróða
um sjálfbæra þróun við Háskóla Íslands
og Vatnajökulsþjóðgarður standa fyrir
málþinginu, þar sem rætt verður um
stöðu og mikilvægi íslenskra víðerna
frá fjölda sjónarhorna.
„Þetta er mjög viðamikil dagskrá,“
segir Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðu-
maður Stofnunar Sæmundar fróða. „Við
fáum erindi frá innlendum og erlendum
fyrirlesurum enda brýnt að horfa á
málefni víðerna bæði frá innlendu og
alþjóðlegu sjónarhorni,“ og bætir við
að á málþinginu verði þrjár málstofur.
„Í þeirri fyrstu munum við ræða kort-
lagningu og vernd víðerna, í annarri
munum við ræða upplifanir, áskoranir
og tækifæri þegar ferðast er um víðerni
og að þeirri umræðu koma bæði ferða-
þjónustan, náttúruverndarsamtök og
fulltrúar gangandi og akandi ferðafólks.
Í síðustu málstofunni munum við svo
skoða víðerni og framtíðina.“
Hafdís Hanna segir að lagt hafi verið
upp úr því að fá sjónarhorn sem flestra
sem láta sig víðerni varða, bæði sér-
fræðinga og ýmsa hagaðila. „Við erum
að fá mjög marga að pallborðunum. Þar
verða bæði forstjórar helstu stofnana
sem koma að kortlagningu víðerna og
rammaáætlun, fræðimenn og fulltrúar
frá ferðaþjónustunni, náttúruverndar-
samtökum og öðrum sem nýta víðerni.“
Brýn umræða
Málþingið segir Hafdís Hanna tilkomið
af nokkrum ástæðum.
„Í fyrsta lagi liggur fyrir að við þurfum
að kortleggja víðerni Íslands,“ segir hún.
„Náttúruverndarlögunum var breytt í
fyrra og samkvæmt þeim á fyrstu kort-
lagningu óbyggðra víðerna alls landsins
að vera lokið fyrir júní á næsta ári.“
Þá segir Hafdís Hanna mikilvægt að
taka afstöðu til þess hvort það sé ástæða
til að vernda tiltekin svæði á Íslandi sem
óbyggð víðerni. Í því samhengi má til
dæmis nefna ítarlega endurskoðun á
stjórnunar- og verndaráætlun Vatna-
jökulsþjóðgarðs og hvaða gildi óbyggð
víðerni eigi að hafa í rammaáætlun um
vernd og orkunýtingu landsvæða.
„Svo hefur einnig verið mikil umræða
nýlega um orkuskiptin, hvað varðar
vindorku og annað,“ segir hún. „Við
teljum mjög mikilvægt að ræða þessi
mikilvægu málefni út frá ólíkum sjónar-
hornum.“
Víðernin virðast skipta marga máli
en Hafdís Hanna segist hafa fundið fyrir
miklum viðbrögðum við málþinginu.
„Við erum helst áhyggjufull yfir að það
komist færri að en vilja, en viðburðurinn
verður líka í streymi.“
Stofnun Sæmundar fróða tók til starfa
árið 2006 og er rannsókna- og kennslu-
stofnun á sviði sjálf bærrar þróunar og
þverfræðilegra viðfangsefna. Hafdís
Hanna tók við hlutverki forstöðumanns
stofnunarinnar í fyrra.
„Okkar hlutverk er meðal annars að
tengja vísindafólk og samfélagið innan
og utan háskólans til þess að miðla
og sinna rannsóknum um sjálf bæra
þróun,“ segir hún. „Sjálfbær þróun hefur
aldrei verið mikilvægari en í dag þegar
loftslagsbreytingar, tap á líffræðilegri
fjölbreytni og átök ógna tilvist okkar.
Sjálf bærni er víðfeðmt hugtak sem
snertir ekki aðeins umhverfis- og lofts-
lagsmál, heldur einnig heilsu okkar og
vellíðan, félagslegt réttlæti, menningu
og efnahag. Málþing um víðerni tengist
vissulega sjálfbærni enda er umræða um
gildi víðerna og breið sátt um fyrir hvað
þau standa, mjög mikilvægur þáttur
í aðlögun að loftslagsbreytingum og
vernd vistkerfa og lífríkis,“ segir Hafdís
Hanna að lokum.
Málþingið stendur yfir milli klukkan
10 og 16. Hægt er að nálgast dagskrána
og streymi í gegnum Facebook-síðu
Stofnunar Sæmundar fróða. n
Við teljum mjög mikil-
vægt að ræða þessi mikil-
vægu málefni út frá ólík-
um sjónarhornum.
Hafdís Hanna
Ægisdóttir, forstöðu-
maður Stofnunar
Sæmundar fróða
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ástkær móðir okkar,
amma og langamma,
Hafþóra Bergsteinsdóttir
lést þann 11. mars á Landspítalanum.
Útförin fer fram í Fossvogskapellu
mánudaginn 28. mars klukkan 15.00.
Kolbrún Stefánsdóttir
Valdís Stefánsdóttir
Valdimar Stefánsson
barnabörn og aðrir afkomendur.
Víðerni í víðu samhengi
Víðernin verða rædd bæði frá innlendu og alþjóðlegu sjónarhorni. MYND/HAFDÍS HANNA ÆGISDÓTTIR
Komið verður inn á umræðuna um orkuskiptin á málþinginu.
Faisal bin Abdulaziz Al Saud
tók við völdum sem þriðji
konungur Sádí-Arabíu árið
1964. Á valdatíð sinni beitti
Faisal sér fyrir að nútíma-
væða Sádí-Arabíu og beitti
hann sér meðal annars gegn
kommúnisma og ítökum
trúarleiðtoga á stjórn-
sýslu landsins. Hann sýndi
einnig stuðning við málefni
Palestínu og mótmælti þeim
stuðningi sem Ísrael naut frá
Vesturlöndum, með banni á
sölu olíu, sem olli olíukreppu árið 1973.
Þann 25. mars 1975 var Faisal staddur í sal þar sem kon-
ungur veitti almennum borgurum áheyrn. Skömmu áður en
Faisal konungur ætlaði sér að taka á móti verslunarmönn-
um rakst hann á bróðurson sinn og nafna, Faisal bin Musaid
prins. Þegar konungurinn bjó sig undir að faðma frænda
sinn tók prinsinn fram skammbyssu og skaut konunginn
þrisvar í höfuðið áður en lífvörðum tóks að yfirbuga hann.
Faisal konungur lést af sárum sínum síðar sama dag.
Faisal prins var handsamaður og var í fyrstu úrskurðað að
hann væri geðveikur. Í réttarhöldum var niðurstaða sér-
fræðinga hins vegar sú að hann hefði verið heill á geði þegar
hann skaut konunginn. Prinsinn var dæmdur fyrir konungs-
morð og hálshöggvinn á Deera-torgi í Ríad. n
Þetta gerðist: 25. mars 1975
Konungur
Sádí-Arabíu myrtur
1016 Nesjaorrusta er háð í Noregi milli Sveins jarls og
Ólafs Haraldssonar.
1306 Róbert the Bruce verður konungur Skotlands.
1655 Christiaan Huygens uppgötvar Títan, stærsta tungl
Satúrnusar.
1838 Póstskip sem hafði
lent í hrakningum
við Dyrhólaey og
borið til Noregs,
kemur til landsins
eftir að hafa beðið
færis að komast
til Íslands í fjóra
mánuði.
1956 Selfosskirkja er vígð.
1975 Vatnsfjörður í Barða-
strandarsýslu er
friðlýstur, um 100
ferkílómetrar lands.
1985 Bandaríska kvik-
myndin Amadeus
fær Óskarsverðlaun
sem besta kvik-
myndin.
1990 Fyrstu lýðræðislegu kosningarnar í Ungverjalandi
fara fram.
1992 Alþingi afnemur sjötíu ára gömul lög um bann við
löndun úr erlendum fiskiskipum á Íslandi.
1992 Sergej Konstantínóvits Krikaljev snýr aftur til jarðar
eftir 311 daga dvöl í geimstöðinni Mír.
2000 Skautahöllin á Akureyri er formlega opnuð.
2001 Schengen-samstarfið tekur gildi á Norðurlönd-
unum.
2008 Seðlabanki Íslands hækkar stýrivexti í 15 prósent.
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 25. mars 2022 FÖSTUDAGUR