Fréttablaðið - 25.03.2022, Side 13

Fréttablaðið - 25.03.2022, Side 13
KYNN INGARBLAÐ ALLT FÖSTUDAGUR 25. mars 2022 Skíðakappinn Hilmar Snær Örvarsson hóf að æfa skíði tíu ára gamall og hefur keppt á tveimur Vetrarólympíuleikum fatlaðra. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Jákvæðni og baráttuhugur hefur fleytt honum áfram í lífinu Hilmar Snær Örvarsson endaði í fimmta sæti í svigi á Vetrarólympíuleikum fatlaðra sem fóru fram í Beijing fyrr í þessum mánuði. Enginn Íslendingur hefur áður náð svo langt. 2 starri@frettabladid.is Salóme Katrín, RAKEL og ZAAR fagna útgáfu splitt-skífunnar While We Wait, með tónleikum í Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, föstudaginn 25. mars. Splitt-skífan samanstendur af sjö lögum, tveimur eftir hverja tónlistarkonu og eitt lag sem þær sömdu í sameiningu sem er um leið titillag plötunnar. Salóme Katrín, RAKEL og ZAAR búa allar og starfa í Reykjavík en þær kynntust upphaflega við nám í Tónlistarskóla FÍH árið 2018 þegar Sara kom sem skiptinemi frá Danmörku og hafa verið óaðskilj- anlegar síðan sem bæði vinkonur og tónlistarkonur. Síðastliðin ár hafa þær allar stigið fram á sjónarsviðið á ólíkum tímum. ZAAR gaf út stuttskífuna sína Lost My Sense of Humour árið 2019, Salóme Katrín fylgdi svo með stuttskífunni Water árið 2020 og RAKEL gaf út stuttskífuna Nothing Ever Changes árið 2021. While We Wait kom út í lok febrúar og er aðgengileg á öllum helstu streymisveitum og á vínil. Á tónleikunum verður platan leikin í heild sinni auk eldra efnis frá tónlistarkonunum þremur en fjölmenn hljómsveit verður á tón- leikunum með þeim. n Miðasala er á tix.is. Splitt-skífu fagnað með tónleikum Salóme Katrín, ZAAR og RAKEL halda tónleika í kvöld. MYND/KAJA SIGVALDA ALOE VERA MELTING & BÓLGUR 85%VIRKTCURCUMIN www.celsus.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.