Fréttablaðið - 25.03.2022, Page 13
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
FÖSTUDAGUR 25. mars 2022
Skíðakappinn Hilmar Snær Örvarsson hóf að æfa skíði tíu ára gamall og hefur keppt á tveimur Vetrarólympíuleikum fatlaðra. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Jákvæðni og baráttuhugur
hefur fleytt honum áfram í lífinu
Hilmar Snær Örvarsson endaði í fimmta sæti í svigi á Vetrarólympíuleikum fatlaðra sem
fóru fram í Beijing fyrr í þessum mánuði. Enginn Íslendingur hefur áður náð svo langt. 2
starri@frettabladid.is
Salóme Katrín, RAKEL og ZAAR
fagna útgáfu splitt-skífunnar
While We Wait, með tónleikum
í Fríkirkjunni í Reykjavík í dag,
föstudaginn 25. mars.
Splitt-skífan samanstendur af
sjö lögum, tveimur eftir hverja
tónlistarkonu og eitt lag sem þær
sömdu í sameiningu sem er um
leið titillag plötunnar.
Salóme Katrín, RAKEL og ZAAR
búa allar og starfa í Reykjavík en
þær kynntust upphaflega við nám
í Tónlistarskóla FÍH árið 2018
þegar Sara kom sem skiptinemi frá
Danmörku og hafa verið óaðskilj-
anlegar síðan sem bæði vinkonur
og tónlistarkonur.
Síðastliðin ár hafa þær allar
stigið fram á sjónarsviðið á ólíkum
tímum. ZAAR gaf út stuttskífuna
sína Lost My Sense of Humour árið
2019, Salóme Katrín fylgdi svo með
stuttskífunni Water árið 2020 og
RAKEL gaf út stuttskífuna Nothing
Ever Changes árið 2021.
While We Wait kom út í lok
febrúar og er aðgengileg á öllum
helstu streymisveitum og á vínil.
Á tónleikunum verður platan
leikin í heild sinni auk eldra efnis
frá tónlistarkonunum þremur en
fjölmenn hljómsveit verður á tón-
leikunum með þeim. n
Miðasala er á tix.is.
Splitt-skífu fagnað
með tónleikum
Salóme Katrín, ZAAR og RAKEL halda
tónleika í kvöld. MYND/KAJA SIGVALDA
ALOE VERA
MELTING & BÓLGUR
85%VIRKTCURCUMIN
www.celsus.is