Fréttablaðið - 25.03.2022, Qupperneq 14
Skíðakappinn Hilmar Snær
Örvarsson, frá skíðadeild Víkings,
náði frábærum árangri á Vetrar
ólympíuleikum fatlaðra sem fóru
fram í Beijing í Kína fyrr í þessum
mánuði. Hilmar endaði í fimmta
sæti í svigi sem er besti árangur
sem íslenskur keppandi hefur náð
á Vetrarólympíuleikum fatlaðra
frá upphafi. „Persónulegt mark
mið mitt fyrir þessa Ólympíu
leika var að ná í eitt af fimm efstu
sætunum og það gekk eftir. Það
er mjög góð tilfinning að upplifa
að öll þessa mikla vinna sem ég
hef lagt á mig undanfarin ár hafi
skilað sér með þessum árangri.“
Hilmar var rúmum þremur
sekúndum frá því að komast í
pallsæti og sex sekúndum frá
gullverðlaunum sem hinn franski
Arthur Bauchet hreppti.
Reynsla sem nýttist
Þetta eru aðrir Vetrarólympíu
leikarnir sem Hilmar tekur þátt
í en áður hafði hann tekið þátt
þegar þeir voru haldnir í Pyeong
chang í SuðurKóreu árið 2018. „Ég
var eini fulltrúi Íslands á báðum
þessum leikum og fyrir vikið
fánaberi í bæði skiptin. Árið 2018
lenti ég í þrettánda sæti í sviginu
og því er það mjög ánægjulegt
og hvetjandi að sjá svo mikla
bætingu milli Ólympíuleika. Það
að hafa tekið þátt í SuðurKóreu
2018 var góð reynsla sem nýttist
mér vel í Kína fjórum árum síðar.
Ég vissi meira hverju ég mætti
búast við í brekkunni sem og utan
hennar. Árangur og reynslan á
milli þessara leika gáfu mér tilefni
til að stefna hærra og gera betur
en í SuðurKóreu.“
Skíðin heilluðu snemma
Hilmar, sem keppir í standandi
f lokki, byrjaði að æfa skíði með
skíðadeild Víkings árið 2010, þá
tíu ára gamall. „Ég heillaðist f ljótt
af skíðunum og byrjaði snemma
að æfa af fullum krafti. Þegar fór
að líða á unglingsárin fór ég í f leiri
æfinga og keppnisferðir erlendis
sem áttu sinn þátt í að styrkja mig
enn frekar sem skíðamann. Það
var svo um fjórtán ára aldurinn
sem ég setti mér það markmið að
keppa á Ólympíuleikunum og hef
nú þegar keppt á tvennum.“
Skoðar Beijing síðar
Það gafst ekki mikill tími til að
kynnast Beijing og kínverskri
menningu meðan á leikunum
stóð. Bæði var dagskráin vel
skipulögð f lesta daga auk þess
sem samkomutakmarkanir komu
í veg fyrir frekari ferðalög og skoð
unarferðir. „Ég náði að kynnast
Beijing eins vel og hægt var út um
gluggann á rútunni en annars
mátti ekki gera neitt nema vera í
Ólympíuþorpinu, á skíðasvæðinu
Hilmar Snær Örvarsson með for-
eldrum sínum í Beijing. MYND/AÐSEND
Fimmta sætið í Beijing var glæsi-
legur árangur. MYND/AÐSEND
Hilmar Snær ásamt kærustu sinni, Anítu Ýr Fjölnisdóttur. MYND/AÐSEND
Hilmar greindist
með bein-
krabbamein
í hné átta ára
gamall og
missti í fram-
haldinu hluta af
vinstri fótlegg.
Hann segist
hafa komist í
gegnum þessa
lífsreynslu með
jákvæðni og
baráttuhug.
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767
| Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón
Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Starri Freyr
Jónsson
starri
@frettabladid.is
ingur fyrir vikið. „Það var aldrei
spurning um að þetta myndi
stoppa mig að hreyfa mig og leika
mér sem krakki og mun ekki gera
það í framtíðinni. Þessi lífsreynsla
hefur ýtt mér lengra í lífinu og
mun nýtast mér vel í framtíðinni.“
Spennandi nám
Hilmar stundar nám í læknis
fræðilegri verkfræði við Háskóla
Íslands og stefnir á útskrift vorið
árið 2023. Hann segir námið vera
mjög áhugavert og henti um leið
styrkleikum hans í námi. „Það er
margt mjög spennandi sem teng
ist þessu námi og mikið að gerast í
tæknilegum framförum í þessum
geira í heiminum í dag. Megin
markmið námsins er að byggja
sterka undirstöðu á helstu sviðum
rafmagns og tölvuverkfræði með
áherslu á tengsl og hagnýtingu við
lausnir læknisfræðilegra verkefna.
Námið býður upp á fjölbreytt
framhald á vali á framhaldsnámi
og störfum en mig langar í fram
tíðinni að vinna í starfsumhverfi
sem er uppbyggjandi, krefjandi og
skemmtilegt.“
Stefnir í gott sumar
Flestir dagar eru þétt skipaðir hjá
Hilmari og skíðamennskan og
skólinn taka eðlilega góðan tíma
f lesta daga vikunnar. „Ég reyni
þó að spila golf yfir sumartímann
og einnig stunda ég CrossFit í
CrossFit Reykjavík. Eftir loka
prófin í maí fer ég til Parísar með
Anítu Ýr, kærustu minni. Í sumar
verður helst ferðast innanlands
en okkur Anítu finnst gaman að
fara í útilegur og stefnum á að fara
í f leiri í sumar. Svo er stefnan sett
á að ganga Laugaveginn í júlí með
fjölskyldunni. Utan þess mun ég
starfa hjá Össuri í sumar, eins og
síðasta sumar, sem verður lær
dómsríkt.“ n
og fara á opnunar og lokahátíð
ina vegna Covidtakmarkana.
Þetta þótti okkur Íslendingunum
miður. Það hefði svo sannarlega
verið gaman að geta ferðast aðeins
um, sjá til dæmis Kínamúrinn
sem er rétt utan við Beijing og að
upplifa þessa stórborg. Það verður
bara að bíða betri tíma.“
Varð sterkari einstaklingur
Hilmar greindist með bein
krabbamein í hné átta ára gamall
og missti í framhaldinu hluta af
vinstri fótlegg. Hann segist hafa
komist í gegnum þessa lífsreynslu
með jákvæðni og baráttuhug að
vopni og orðið sterkari einstakl
Þessi lífreynsla
hefur ýtt mér
lengra í lífinu og mun
nýtast mér vel í fram
tíðinni.
Mig langar
í fram
tíðinni að
vinna í
starfs
umhverfi
sem er
uppbyggj
andi,
krefjandi
og
skemmti
legt.
2 kynningarblað A L LT 25. mars 2022 FÖSTUDAGUR