Fréttablaðið - 25.03.2022, Blaðsíða 16
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652.
„Ég er sannfærður um að sinnum
við sjálfbærniþáttunum í rekstr-
inum af alúð, þá skapar það okkur
fleiri tækifæri en ógnir og meiri
tekjur en gjöld, til lengri tíma litið,“
segir Bjarni Bjarnason, forstjóri
Orkuveitu Reykjavíkur. Hann
bendir á það nærtæka dæmi sem
Carbfix, yngsta fyrirtækið innan
OR-samstæðunnar, er. „Þessi aðferð,
sem vissulega hefur kostað tals-
vert að þróa, hefur ekki bara vegið
þyngst í að draga úr kolefnisspori
Orkuveitusamstæðunnar heldur er
aðferðin nú komin í sjálfstætt fyrir-
tæki í eigin sókn á markaði með
frábæra lausn á boðstólum fyrir
væntanlega viðskiptavini,“ bendir
Bjarni á og segir dæmin fleiri, ekki
síst tengd nýtingu jarðhitans.
„Orka náttúrunnar hefur sýnt
hringrásarhugsun í verki með
uppbyggingu Jarðhitagarðs við
Hellisheiðarvirkjun í Ölfusi; að
nýta sífellt betur það sem sótt er í
iður jarðar og líta ekki á vatnið eða
efnin sem upp koma með gufunni
sem úrgang og vandamál heldur
tækifæri til frekari verðmæta-
sköpunar. Fyrirtækin nýta kísil
úr gufunni í heilsuvörur, afgangs-
varma í örþörungaræktun og þar
er líka fyrirtæki að skoða hefð-
bundnari notkun á afgangsvatni
og varma með því að opna baðstað.
Allt stuðlar þetta að aukinni sjálf-
bærni rekstursins á Hellisheiði, en
við höfum ekkert farið í grafgötur
með það að sjálfbær nýting háhita-
svæða til raforkuvinnslu er mikil
áskorun,“ segir Bjarni. Þar er hann
að vísa til þess að þessi stærsta
jarðhitavirkjun landsins var byggð
mjög hratt og hefur þurft stærra
upptökusvæði jarðgufu en áætlað
var í upphafi.
Hringrás vatnsins í veitunum
Bjarni bendir á að hringrásarhugs-
Bjarni segir að loftslagsváin knýi okkur öll til breytinga og að breytingar á einu sviði séu tækifæri til breytinga á fleiri
sviðum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
„Stærsta verkefnið hjá okkur þessa dagana er undirbúningur Codastöðvarinn-
ar; móttöku- og förgunarstöðvar fyrir koldíoxíð við Straumsvík,“ segir Edda Sif.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ársskýrsla OR 2021
Allt frá árinu 2017 hefur
Orkuveita Reykjavíkur gefið
út rafræna ársskýrslu, gagn-
virkan vef þar sem starfsemin
á nýliðnu ári er rakin með
tilliti til sjálfbærni rekstursins.
Skýrslan er gerð í samræmi
við svokölluð UFS-viðmið
þar sem upplýsingagjöf um
umhverfis- og loftslagsmál,
félagslega þætti og stjórnar-
hætti fylgir samræmdri
forskrift eða staðli. Það eru
leiðbeiningar sem Viðskipta-
ráð gaf út í samstarfi við Nas-
daq, Staðlaráð Íslands, Festu
og IcelandSIF. Upplýsingarnar
í ársskýrslunni eru stað-
festar af óháðu fagfólki sem
áritar hana ásamt forstjóra og
stjórn Orkuveitu Reykjavíkur.
Ársskýrslan er á slóðinni
arsskyrsla2021.or.is.
Áherslumarkmið Orkuveitu Reykjavíkur
Í framhaldi af vinnustofum með
starfsfólki fyrirtækjanna innan
samstæðu Orkuveitu Reykja-
víkur og ytri hagsmunaaðilum,
setti stjórn Orkuveitu Reykja-
víkur fimm af heimsmarkmið-
unum 17 í forgang í stefnu og
starfsemi samstæðunnar. Auk
OR eru innan samstæðunnar
Veitur, Orka náttúrunnar, Ljós-
leiðarinn og Carbfix. Í ársskýrslu
OR er gerð grein fyrir því hvernig
stutt er við heimsmarkmið
Sameinuðu þjóðanna, ekki bara
þessi fimm heldur öll 17 mark-
miðin. Í hvert sinn sem stefna
OR á einhverju sviði er rýnd og
endurskoðuð – og það er gert
einu sinni á ári með allar lykil-
stefnur – eru þessi fimm Heims-
markmið og undirmarkmið
þeirra höfð til hliðsjónar með
það fyrir augum hvernig best er
stuðlað að framgangi þeirra.
Carbfix er stórhuga sprota-
fyrirtæki innan samstæðu
OR. Það tók til starfa í árs-
byrjun 2020 og hlutverk þess
er að glíma við loftslagsvána.
Það er útséð um að það er ekki nóg
að draga bara úr losun koltvíoxíðs
til að ná loftslagsmarkmiðunum.
Það þarf líka að farga kolefni sem
þegar er komið út í loftið. Það eru
ekki aðeins tré sem binda kol-
díoxíð úr andrúmsloftinu því
gífurlegt magn er bundið í bergi.
Carbfix líkir eftir og hraðar nátt-
úrulegum ferlum þar sem CO2 er
leyst upp í vatni og hvarfað við
berg. Við það breytist gróðurhúsa-
lofttegundin í stein og geymist
varanlega neðanjarðar.
Carbfix varð til sem samstarfs-
verkefni milli Orkuveitu Reykja-
víkur, Háskóla Íslands, CNRS í
Toulouse og Earth Institute við
Columbia-háskóla árið 2006.
Síðan þá hafa fjölmargir háskólar
og rannsóknastofnanir tekið þátt
í verkefninu undir hatti ýmissa
verkefna, sem notið hafa styrkja
frá rannsóknar- og nýsköpunar-
sjóðum Evrópusambandsins.
Á fyrstu árunum var einblínt á
að þróa aðferðina með tilraunum
á rannsóknarstofu, náttúru-
legar hliðstæður rannsakaðar,
líkön gerð og svæði Carbfix fyrir
tilraunaniðurdælingu kannað.
Samhliða flóknu leyfisveitinga-
ferli var búnaður fyrir gasföngun,
niðurdælingu og eftirlit þróaður,
hannaður og reistur.
Tilraunir Carbfix með raun-
verulega niðurdælingu voru
gerðar 2011-2012 3 km suðvestur
af Hellisheiðarvirkjun. Eftir vel
heppnaðar tilraunir og vísbend-
ingar um hraða steinrenningu var
ákveðið að skala starfsemina á
un sé ekki alveg ný í veiturekstrin-
um. „Elstu veiturnar – vatnsveitan
og fráveitan – eru talsvert meira en
aldargamlar. Þær afhenda Veitum
ferskt og heilnæmt neysluvatn
við húsvegg og taka svo við því
óhreinu aftur inn í fráveituna til
að koma því í örugga höfn. Núna
eru einmitt ýmsar spennandi
hugmyndir á lofti um nýtingu
verðmæta í skólpi þannig að það
geti orðið til góðs, ekki síður en
affallsvatnið við virkjanirnar.“
Bjarni nefnir að í útlöndum, þar
sem ferskt vatn er víða af skornum
skammti, hafi ýmis viðskipta-
tækifæri verið þróuð í kringum
skólp.
Breytingar eru tækifæri
Loftslagsváin knýr okkur öll til
breytinga, að mati Bjarna, og breyt-
ingar á einu sviði eru tækifæri til
fleiri breytinga, segir hann. „Þegar
við hjá Orkuveitunni þurftum að
taka til í fjármálunum hjá okkur og
endurskipuleggja allan reksturinn,
nýttum við þær breytingar til
eflingar kynjajafnréttis. Fyrst með
því að jafna hlut kynjanna í stjórn-
unarstöðum og síðan með því að
útrýma óútskýrðum kynbundnum
launamun. Jafnrétti er einhver
mikilvægasti sjálfbærniþátturinn í
hverjum rekstri, því framfarir á því
sviði skila sér beint í betri ákvörð-
unum og þar með betri afkomu,“
fullyrðir Bjarni og bætir við að
lokum: „Annaðhvort breytum við
fyrirtækjunum til að glíma við
loftslagsvána eða loftslagsbreyt-
ingarnar þvinga breytingar upp á
okkur. Líklega verður niðurstaðan
sitt lítið af hvoru en ef við nýtum
þær breytingar sem loftslagsváin
knýr okkur í til að breyta fleiru til
betri háttar, þá verður glíman við
loftslagsmálin miklu skemmti-
legri.“ ■
Carbfix
Hellisheiði upp á iðnaðarstig. Árið
2014 var hreinsistöð fyrir eina af
sex háþrýstivélum virkjunarinnar
reist og hefur hún verið í rekstri frá
þeim tíma án vandkvæða. Förg-
unargetan var tvöfölduð árið 2016
og stefnt er að því að fullhreinsa
koldíoxíð og brennisteinsvetni
úr jarðgufunni sem kemur frá
virkjuninni árið 2025. Á þessu ári
hefst tilraunahreinsun við Nesja-
vallavirkjun.
Sérstakt fyrirtæki – Carbfix ohf.
– tók til starfa í ársbyrjun 2020.
Markmið fyrirtækisins er að gegna
lykilhlutverki í baráttunni gegn
hamfarahlýnun með því að ná að
farga einum milljarði tonna af CO2
eins fljótt og hægt er. Doktor Edda
Sif Pind Aradóttir er framkvæmda-
stýra Carbfix og hefur unnið við
verkefnið allt frá því hún var í
námi. Doktorsverkefni hennar
sneri einmitt að líkanagerð fyrir
kolefnisbindingu með Carbfix
tækninni og tók hún við sem verk-
efnisstjóri Carbfix hjá Orkuveitu
Reykjavíkur árið 2011.
„Stærsta verkefnið hjá okkur
þessa dagana,“ segir Edda Sif, „er
undirbúningur Codastöðvarinn-
ar; móttöku- og förgunarstöðvar
fyrir koldíoxíð við Straumsvík.
Þar eigum við í góðu samstarfi
meðal annarra við RioTinto, sem
rekur álverið, Hafnarfjarðarbæ
og danskt skipafélag sem sjá mun
um flutning á CO2 frá grann-
löndum okkar. Nú er áformað að
byggja stöðina upp í áföngum og
að afköst hennar vaxi úr bindingu
500 þúsund tonna af CO2 á ári í 3
milljónir tonna á einum áratug
eða svo.“ Verkefnið leggur grunn-
inn að nýjum loftslagsvænum
iðnaði hér á landi en gert er ráð
fyrir að um 600 bein og afleidd
störf skapist vegna uppbyggingar
og reksturs Codastöðvarinnar. ■
Markmið fyrir-
tækisins er að
gegna lykilhlutverki í
baráttunni gegn ham-
farahlýnun með því að
ná að farga einum
milljarði tonna af CO2
eins fljótt og hægt er.
Ef við nýtum þær
breytingar, sem
loftslagsváin knýr
okkur í, til að breyta
fleiru til betri háttar, þá
verður glíman við
loftslagsmálin miklu
skemmti legri.
2 kynningarblað 25. mars 2022 FÖSTUDAGURSJÁLFBÆR REKSTUR