Fréttablaðið - 25.03.2022, Side 20
Hvaða húsnæði
sem horft er til þá
tryggir aðstöðustjórnun
að það sé ekki bara
umhverfisvænt heldur
sjálfbært.
Fjárfestar horfa í
auknum mæli til
ESG þegar þeir taka
fjárfestingarákvarðanir,
bæði hérlendis og í
alþjóðlegu fjárfesta
umhverfi.
Anna Þórdís Rafnsdóttir
Í kjölfar samruna Kviku
banka við TM og Lykil fjár-
mögnun og kaup Kviku
banka á fjártæknifélögunum
Aur app og Netgíró á árinu
2021, átti sér stað stefnumót-
unarvinna fyrir hina nýju
samstæðu sem leiddi meðal
annars til aukinnar áherslu á
sjálfbærni.
Eitt af leiðarljósum Kviku er ábyrg
þátttaka í samfélaginu og eru gildi
samstæðunnar langtímahugsun,
einfaldleiki og hugrekki. Sjálf
bærni hefur verið aukin í rekstri og
kjarna starfseminnar.
Anna Þórdís Rafnsdóttir, verk
efnastjóri sjálfbærni hjá Kviku
banka, segir að sett hafi verið á
laggirnar nefnd Kviku um sam
félagsábyrgð og sjálfbærni, sem er
skipuð forstjóra Kviku og stjórn
endum þvert á dótturfélög og
svið. „Með þessu móti næst betri
samræming í sjálfbærnimálum í
ört stækkandi rekstri. Þá var einnig
stofnuð staða verkefnastjóra sjálf
bærni, sem vinnur að innleiðingu
málaflokksins með nefndinni á
samstæðugrunni.“
Kvika leggur áherslu á að styðja
við lausnir sem miða að því að
vinna bug á áhrifum loftslags
breytinga á umhverfi og samfélög,
en ljóst sé að til að ná megi mark
miðum ríkisstjórnarinnar um
kolefnishlutleysi árið 2040 þurfi
samstillt átak einkaaðila og hins
opinbera. „Meðal nýlegra aðgerða
sem Kvika hefur ráðist í er að stýra
fjármagni í átt að umhverfisvæn
um lausnum. Má þar nefna útgáfu
grænnar fjármálaumgjarðar,
græna framtíðarreikninga Auðar
með tengingu við barnatryggingu
TM, sem eru innlánsreikningar
fyrir börn, græna skuldabréfa
útgáfu Kviku og loftslagssjóð sem
Kvika eignastýring vinnur í að
koma á fót.“
Stafrænar lausnir
Anna segir Kviku banka og
dótturfélög hafa verið leiðandi í
því að veita stafræna fjármála og
tryggingaþjónustu. „Á haustmán
uðum greindum við sérstaklega
ávinning af sjálfvirknivæðingu
Lykilsamninga og Lykillána, sem
fóru stafrænt í loftið á síðasta ári.
Þetta skilar sér í tímasparnaði fyrir
bæði starfsmenn og viðskiptavini,
sparnaði í samgöngum, og þar með
útblæstri gróðurhúsalofttegunda
og annarrar mengunar, sem og í
pappírsnotkun. Stafrænar lausnir
og þjónusta falla einnig vel að
þörfum neytenda í síbreytilegu
samfélagi og auka samkeppni.“
Elísabet Guðrún Björnsdóttir,
sérfræðingur í fjárstýringu, segir
það lykilþátt í framgangi sjálf
bærrar þróunar að fjármagni sé
beint í sjálfbæra uppbyggingu og
fjárfestingar. Þar gegni fjármála
stofnanir og fjárfestar mikilvægu
hlutverki og hafi mikla möguleika
á að hafa veruleg og jákvæð áhrif.
Elísabet nefnir að græn fjár
mögnun sé nýtt til að fjármagna
umhverfisvæn verkefni: „Græn
fjármálaumgjörð Kviku gefur
bankanum vettvang til að stýra
fjármagni í slík verkefni. Umgjörð
in var gefin út síðastliðið haust
og Kvika hefur valið sér grænar
samgöngur, grænar byggingar og
endurnýjanlega orku, sem verk
efnaflokka til að fjármagna. Svo
er ekkert því til fyrirstöðu að bæta
við fleiri verkefnaflokkum síðar
meir þegar meiri reynsla er komin
á umgjörðina.
Græn skuldabréf
Kvika gaf einnig út sitt fyrsta
græna skuldabréf síðastliðið
haust. Kjörin voru góð og eftir
spurnin mikil. Annað sem fellur
undir umgjörðina eru grænir
framtíðarreikningar Auðar. Það er
skemmtilegt að geta boðið upp á
þann möguleika að ávaxta fram
tíðarsparnað barna með góðum
kjörum og stuðla um leið að sjálf
bærri framtíð fyrir barnið þar sem
sparnaðurinn er notaður til að
fjármagna umhverfisvæn verkefni
sem Kvika leggur áherslu á.“
Anna segir að hingað til hafi
gjarnan verið vísað til sjálfbærni
þáttanna, eða ESG, sem ófjárhags
legra þátta og meira litið á þá sem
ákveðna kostnaðareiningu, sem
hafi þó þótt sjálfsagt og nauðsyn
legt að sinna og styðja við. Merkja
megi ákveðna breytingu þar sem
ESGþættirnir verði sífellt sam
ofnari fjárhagslegum hagsmunum.
„Fjárfestar horfa í auknum mæli til
ESG þegar þeir taka fjárfestingar
ákvarðanir, bæði hérlendis og í
alþjóðlegu fjárfestaumhverfi.“
Elísabet segir mikilvægt að
stuðla að jákvæðum áhrifum á
umhverfið, samfélagið og sinna
góðum stjórnarháttum, en rann
sóknir sýni jafnframt að með því
að taka sjálfbærni með inn í fjár
festingaákvarðanir sé möguleiki
á að bæta árangur eignasafna og
minnka sveiflur í ávöxtun.
„Við sáum það með mjög
skýrum hætti hversu mikil
vægir ESGþættirnir eru orðnir
og í raun nauðsynlegur hluti af
rekstrinum, þegar Kvika gaf út sín
fyrstu skuldabréf erlendis í janúar
á þessu ári. Skuldabréfin voru seld
til breiðs hóps erlendra fjárfesta
og okkur kom á óvart hversu mikil
áhersla og áhugi var á ESG málum
félagsins hjá fjárfestum. Það var
gaman að upplifa þau jákvæðu
viðbrögð sem við fengum frá fjár
festum þegar við kynntum stöðu
Kviku í sjálfbærnimálum og það
hefur sannarlega verið hvatning
til okkar að halda áfram á þessari
vegferð og gera enn betur.“ n
Fjármagn í sjálfbæra uppbyggingu lykilatriði
Anna Þórdís
Rafnsdóttir,
verkefnastjóri
sjálfbærni, og
Elísabet Guðrún
Björnsdóttir,
sérfræðingur í
fjárstýringu hjá
Kviku banka.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Alþjóðleg þróun í átt að sjálf-
bærum rekstri og samfélags-
ábyrgð er hröð og meðfram
því er vaxandi krafa á að
fyrirtæki og hið opinbera
hérlendis taki upp yfirlýsta
stefnu í sjálfbærni, svo sem
stefnu í umhverfisþáttum,
félagsþáttum og góðum
stjórnarháttum.
Aðstöðustjórnun er ný þjónustulína
hjá VSÓ Ráðgjöf síðan vorið 2021.
Ráðgjöfin snýst um aðlögun vinnu
aðstöðu og þjónustuþarfa hennar
að kröfum kjarnastarfseminnar og
starfsfólki fyrirtækja. Hún bætist
þar með við fjölda þjónustulína
verkfræðistofunnar, sem aðstoðar
viðskiptavini við að bæta sjálfbærni
í þeirra rekstri.
Matthías Ásgeirsson, byggingar
verkfræðingur hjá VSÓ Ráðgjöf,
segir umhverfisáhrif atvinnuhús
næðis vera gríðarleg. Talið er að
uppbygging og rekstur atvinnuhús
næðis sé ábyrgt fyrir um 40 prósent
af orkunotkun og 33 prósent af
losun gróðurhúsalofttegunda, auk
óbeinna áhrifa sem aðliggjandi inn
viðir og samgöngukerfi hafa.
Af þessari losun má rekja 88 pró
sent til endurnýjunar, breytinga,
viðhalds og orkunotkunar, sem eru
lykilhlutverk og ábyrgð aðstöðu
stjórnunar. Vegna þeirrar umhverf
isvænu orku sem Ísland er svo
lánsamt að hafa aðgang að, er þetta
hlutfall í kringum 42 prósent hér
á landi ef horft er á meðaltal allra
bygginga, þar sem atvinnuhúsnæði
er 35 prósent, samkvæmt nýút
gefinni skýrslu Húsnæðis og mann
virkjastofnunar um kolefnislosun
íslenskra bygginga. Þetta er talsvert
hærra hlutfall en margir gerðu ráð
fyrir og kallar á faglega aðferðafræði
til þess að leysa þennan vanda.
Matthías segir aðstöðustjórnun
aðstoða húseigendur og leigutaka
við að draga úr þessari losun án
þess þó að skerða skilvirkni vinnu
staðarins eða vellíðan starfsmanna.
„Með því að samræma þarfir fólks,
ferla og vinnustaðinn á umhverfis
vænan hátt styðst VSÓ Ráðgjöf við
viðurkennda aðferðafræði og „best
practice“ til þess að fínstilla aðstöð
una að kröfum starfseminnar með
umhverfisvænum hætti.
Horft er til ýmissa hliða til þess
að ná því markmiði, til dæmis
hámörkun á rýmisnýtingu, með
vinnustaðaskipulagi sem tekur mið
af rekstrarþörfum án þess að draga
úr þægindum starfsmanna, aðlögun
orkunotkunar að álagsþörfum
reksturs, sjálfvirkrar aðlögunar
loftræsi og upphitunarkerfa að not
endaþörfum, efnisvals með áherslu
á endurnýtingarmöguleika, hag
ræðingar og minnkunar á sóun með
hentugri samnýtingu mismunandi
leigutaka í sömu eign.“
Breyttar vinnuvenjur vegna
áhrifa Covid19 heimsfaraldursins
hafa að sögn Matthíasar kallað á
aðlögun vinnuaðstöðu og búið til
tækifæri til aukinnar sjálfbærni.
„Talið er að hægt sé að lækka kol
efnisspor þekkingarstarfa um 30
prósent með fækkun vinnuferða og
endurskipulagningu vinnustaðar
ins með tilliti til fjarvinnumögu
leika. Starfsfólk gerir í dag meiri
kröfur um hvar og hvernig það
vinnur. Aðstöðustjórnun styður við
aðlögun að nýjum möguleikum og
væntingum með faglegum hætti.“
Alþjóðlegar kannanir benda til
þess að fjárfestingar og fasteigna
félög séu að fara að stórauka
fjárfestingar í umhverfisvænu
atvinnuhúsnæði og telji leigutaka
reiðubúna að borga hærri leigu
fyrir meiri gæði og með væntingar
um minni rekstrarkostnað.
Á Íslandi má skynja hreyfingu í
sömu átt en þó mun hægari, segir
Matthías, sem telur ofangreinda
niðurstöðu um umhverfisáhrif
atvinnuhúsnæðis ýta á þessa
þróun. „Hvaða húsnæði sem horft
er til þá tryggir aðstöðustjórnun
að það sé ekki bara umhverfisvænt
heldur sjálfbært, með því að upp
fylla einnig kröfur starfseminnar
og fjármögnunargetu húseiganda
og leigutaka. Hún styður einnig við
ákvarðanatöku og ráðgjöf um vott
un á sjálfbærni atvinnuhúsnæðis í
rekstri eins og BREEAM Inuse eða
annarra sambærilegra vottunar
kerfa, segir Matthías Ásgeirsson,
byggingarverkfræðingur hjá VSÓ
Ráðgjöf. n
Aðstöðustjórnun lykill að bættri sjálfbærni
Matthías Ás-
geirsson, bygg-
ingarverkfræð-
ingur hjá VSÓ
Ráðgjöf, segir
aðstöðustjórn-
un aðstoða
húseigendur og
leigutaka við að
draga úr þessari
losun án þess
þó að skerða
skilvirkni vinnu-
staðarins eða
vellíðan starfs-
manna.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
42 prósent kolefnislosunar frá byggingum stafar af endurnýjun og endur-
bótum og orkunotkun í rekstri þeirra.
SJÁLFBÆR REKSTUR6 kynningarblað 25. mars 2022 FÖSTUDAGUR