Fréttablaðið - 25.03.2022, Side 24
Hugtakið sjálfbær ferðaþjón-
usta varð til í kjölfar útgáfu
Brundtland-skýrslunnar
árið 1987 þegar aðilar í
ferðaþjónustu fóru að tengja
umfjöllun skýrslunnar við
atvinnugreinina. Margvísleg
verkefni bíða ferðaþjónust-
unnar á þessu sviði.
starri@frettabladid.is
Hugtakið sjálfbær ferðaþjónusta
er dótturhugtak sjálfbærrar
þróunar og varð til í kjölfar útgáfu
Brundtland-skýrslunnar árið 1987
þegar aðilar í ferðaþjónustu fóru
að tengja umfjöllun skýrslunnar
við atvinnugreinina. Fræðimenn
fóru í kjölfarið að fjalla í auknum
mæli um sjálfbæra ferðaþjónustu
um leið og menntun og skilningur
innan greinarinnar á hugtakinu
jókst, segir Áslaug Briem, verkefna-
stjóri gæðamála hjá Ferðamála-
stofu. „Árið 1996 var kynnt fyrsta
formlega opinbera stefnumótunin
í ferðaþjónustu á vegum stjórn-
valda þar sem kom meðal annars
fram mikilvægi þess að ferðaþjón-
usta yrði í sátt við land og þjóð og í
anda sjálfbærrar þróunar.“
Árið 1998 kom síðan út metn-
aðarfull framkvæmdaáætlun til að
framfylgja stefnunni þar sem fram
kemur að „ferðaþjónusta í anda
sjálfbærrar þróunar“ skuli efld
og stefnt skuli að því að „Ísland
gegni forystuhlutverki á sviði
umhverfisverndar“. Í stefnunni og
framkvæmdaáætluninni er mest
áhersla lögð á umhverfismálin og
mikilvægi þess að vernda auðlindir
landsins til framtíðar.
Mikilvægið flestum ljóst
Ýmislegt hefur verið rætt og
skrifað um hugtakið sjálfbær
ferðaþjónusta síðan það kom fram
á sjónarsviðið og í dag er flestum
ljóst mikilvægi þess í allri ákvarð-
anatöku og gjörðum sem tengjast
ferðaþjónustu, að sögn Áslaugar.
„Margt hefur verið gert á undan-
förnum árum og áratugum sem
tengja má við sjálfbærni, til dæmis
bætt skipulag, áhersla á betri dreif-
ingu ferðamanna yfir árið, landið
og á svæði, aukin náttúruvernd og
friðun svæða, auknar rannsóknir,
greiningar og fræðsla, bætt öryggi,
aukið samráð við heimamenn og
þátttaka þeirra í ákvarðanatöku,
miðlun menningar, betur hugað
að félagslegum þolmörkum og
vitundarvakning um samfélags-
ábyrgð ferðaþjónustufyrirtækja og
sjálfbærniáherslur.“
Aukin sjálfbærni
og samfélagsábyrgð
Árið 2012 fór Ferðamálastofa
af stað með Vakann, sem er
gæða- og umhverfisvottun ferða-
þjónustunnar. „Vakinn býður
ferðaþjónustufyrirtækjum að fá
gæða- og umhverfisvottun sem
byggir á gæða- og umhverfisvið-
miðum þar sem öryggi, sjálfbærni
og samfélagsábyrgð er leiðarljósið.
Allt efni á vef Vakans, viðmið,
fræðsla og hjálpargögn, eru opin
og aðgengileg öllum þeim sem vilja
vinna með og fræðast um efnið,
hvort sem ætlunin er að ljúka
þeirri vinnu með því að sækjast
eftir formlegri vottun eða til að
bæta starfshætti. Meðal efnis í
Vakanum er gátlistinn Á leið til
sjálfbærrar ferðaþjónustu, þar sem
er að finna hugmyndir um 200 ein-
faldar aðgerðir sem fyrirtæki geta
gripið til, til að auka áherslur sínar
á sviði sjálfbærni og samfélags-
ábyrgðar.“
Ferðmálastofa hefur einnig tekið
þátt í ýmsum öðrum verkefnum,
innanlands sem erlendis, sem
tengja má við sjálfbærni og sam-
félagsábyrgð. „Þá hafa Íslandsstofa,
Íslenski ferðaklasinn og fleiri verið
með ýmis verkefni á þessu sviði,
til dæmis Icelandic Pledge sem er
beint til ferðamanna sem hingað
koma og Ábyrga ferðaþjónustu
sem er hvatningarverkefni fyrir
ferðaþjónustufyrirtæki.“
Enn er verk að vinna
Áslaug segir mjög misjafnt hvað sé
verið að gera hjá öðrum þjóðum.
Margar þeirra eru mun lengra
komnar en við á þessu sviði og því
ljóst að hér sé mikið verk sem enn
á eftir að vinna. „Kosta Ríka hefur
verið til fyrirmyndar í þessum
efnum, Norðmenn eru að gera
góða hluti og má nefna verkefni
þar sem áfangastöðum og svæðum
býðst að fá sjálfbærnivottun og
ferðamenn eru hvattir sérstak-
lega til að heimsækja þá staði. Þá
hefur oft verið horft til Skotlands
og Nýja-Sjálands sem fyrirmynda
varðandi margvísleg verkefni á
sviði ferðaþjónustu en þar hefur
einnig náðst mjög góður árangur
varðandi sjálfbærni og hvernig
ferðaþjónustufyrirtæki eru hvött
áfram með jákvæðum hætti.“ n
Sjálfbærni í ferðaþjónustu er lykilatriði
Áslaug Briem er
verkefnastjóri
gæðamála hjá
Ferðamálastofu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON
Sjálfbærni er ein
mikilvægasta áskorun
fyrirtækja og stofnana
Starfsfólk KPMG býr yfir breiðri þekkingu og reynslu á
sviði umhverfis- og loftslagsmála, félagslegrar sjálfbærni,
stjórnarhátta og hagsældar.
Þá nýtur sjálfbærniteymi okkar stuðnings reynslumikils
hóps sérfræðinga á sviði endurskoðunar, lögfræði,
skattamála og gagnagreininga, bæði hérlendis og erlendis.
Saman vinnum við að sjálfbæru samfélagi.
Nánari upplýsingar er að finna
á vef KPMG eða í síma 545 6000.
Spurningin er hvernig tekist er á við þá áskorun
10 kynningarblað 25. mars 2022 FÖSTUDAGURSJÁLFBÆR REKSTUR