Fréttablaðið - 25.03.2022, Síða 30
Nýting innlendra orkulinda
og innflutningur á jarðefna-
eldsneyti er ofarlega í huga
vegna ástandsins í Evrópu
í dag. Mikilvægt er að við á
Íslandi séum sjálfum okkur
nóg um orku.
„Græn orka getur skapað ný
störf og verðmæt tækifæri fyrir
komandi kynslóðir, hvort sem
hún er nýtt innanlands til orku-
skipta, í uppbyggingu atvinnu-
lífsins eða til útflutnings. Á sama
tíma og tækifærin eru til staðar
þá þurfum við að horfast í augu
við að skortur á grænni orku mun
koma niður á tækifærum til vaxtar,
því orkuskipti, fólksfjölgun og ný
atvinnustarfsemi krefst aukinnar
orkuframleiðslu,“ segir Hugrún
Elvarsdóttir, verkefnastjóri á sam-
keppnishæfnisviði hjá Samtökum
atvinnulífsins. „Til að tryggja
næga græna orku til uppbyggingar
atvinnu og betri lífskjara framtíðar
þarf skýra stefnu yfirvalda um
nýtingu orkukosta og uppbygg-
ingu innviða, enda er forgangsmál
að komandi kynslóðir búi við
orkuöryggi.
Íslenskt atvinnulíf byggir á öfl-
ugum stoðum og hefur í gegnum
árin sýnt hvers það er megnugt
þegar kemur að því að mæta áskor-
unum með nýrri tækni, hugviti og
elju. Fram undan eru spennandi
tímar í íslensku efnahagslífi þegar
kemur að fjölbreyttum leiðum
til orkuöflunar, orkuskiptum,
útflutningi á vörum með lágt kol-
efnisfótspor, uppbyggingu grænna
innviða um allt land, innleiðingu
á hringrásarhagkerfi, bættri sorp-
hirðu, nýsköpun og svo mætti
lengi fram telja,“ segir hún.
Ábyrg afstaða atvinnulífsins
Um þessar mundir fara fram árs-
fundir aðildarsamtaka Samtaka
atvinnulífsins. „Samtök iðnaðarins
héldu glæsilegt Iðnþing í síðustu
viku, en samtökin tileinka árið
2022 grænni iðnbyltingu. Samorka
hélt fróðlegan ársfund undir yfir-
skriftinni Græn framtíð og hvað
þarf til þess að Ísland verði jarð-
efnaeldsneytislaust innan fárra
ára. Samtök verslunar og þjónustu
fjölluðu um mikilvægi 360°
sjálfbærnihugsunar og hvernig
einstaklingar og fyrirtæki geta lagt
sívaxandi áherslu á sjálfbærnina
á tímum tæknibreytinga. Margir
aðilar úr fjölbreyttum áttum komu
á fundina og ljóst er að sjálfbærni
er ekki tískuorð heldur lykilþáttur
í sterku og öflugu hagkerfi.
Á fundunum kom skýrt fram
að atvinnulífið er að taka stór og
markviss skref í átt að sjálfbæru
efnahagslífi ásamt því að hafa
margt fram að færa í baráttunni
gegn loftslagsvánni. Margvísleg
tækifæri felast í því að flytja tækni
út fyrir landsteinana í formi hug-
vits, tækni, vöru og þjónustu, enda
nauðsynlegt að auka samvinnu
þvert á landamæri þar sem lofts-
lagsbreytingarnar eru hnattrænt
vandamál. Þar hafa Íslendingar
margt fram að færa.
Einnig kom fram að enn eru
mörg ljón á veginum. Það er því
stjórnvalda að sjá til þess að
rekstrarskilyrði atvinnulífsins séu
eins og best verður á kosið. Inn-
leiða þarf hagræna hvata og skapa
umgjörð sem leyfir nýsköpun
að blómstra svo nauðsynlegar
tæknilausnir, sem styðja loftslags-
markmið Íslands, geti orðið að
veruleika.
Grænt fjármagn er lykilþáttur
í að finna lausnir á loftslagsvand-
anum og mikilvægt er að fjármagn
leiti í réttan farveg. Umhverfis-
skattar eiga ekki að vera til tekju-
öflunar fyrir ríkið heldur nýtast til
að ná settum markmiðum í lofts-
lagsmálum og styðja atvinnulífið
við að fjárfesta í umhverfisvænum
lausnum. Úrbætur á stoðum sjálf-
bærrar þróunar haldast nefni-
lega í hendur við efnahagslega
og tæknilega framþróun í fyrir-
tækjum, en eiga ekki uppsprettu
sína í opinberum reglugerðum eða
tilskipunum.“
Úrslitaleið
Eðlilega viljum við vera í farar-
broddi þegar kemur að grænni
framtíð og að sögn Hugrúnar er
Ísland komið vel á veg. „Vegferðin
má þó ekki vera greidd of dýru
verði og árangurinn ekki vera á
kostnað hagvaxtar. Eins og Hall-
dór Benjamín, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, sagði
í stuttu myndskeiði á ársfundi
Samorku þá „ríkir þjóðarsátt á
Íslandi um bætt lífskjör til fram-
tíðar“ en það ríkir minni sátt um
það með hvaða hætti við eigum að
standa undir bættum lífskjörum.
Þróttmikið atvinnulíf er eina
svarið.
Öflug samvinna atvinnulífs og
stjórnvalda mun varða leiðina að
settum markmiðum, enda er nú
þegar mikil deigla til staðar um
nýsköpun og þróun sem styður
markmiðin vel. Leiðin áfram getur
ekki verið að pakka í vörn og hörfa
með þann árangur sem náðst
hefur, heldur er það sá árangur sem
leggur grundvöll að verðmæta-
sköpun og lífsgæðum samtímans
og til framtíðar.“ n
Tækifæri framtíðarkynslóða
Hugrún
Elvarsdóttir,
verkefnastjóri
á samkeppnis-
hæfnisviði hjá
Samtökum
atvinnulífsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Veritas, móðurfélag lykil-
fyrirtækja sem starfa á heil-
brigðismarkaði, hóf sjálf-
bærnivegferð sína með
tilliti til umhverfismála
fyrir alvöru árið 2018, með
stofnun umhverfisverndar.
„Við byrjuðum á því að endurskoða
umhverfisstefnu fyrirtækisins og
sáum að við gætum breytt miklu
með litlum aðgerðum og vitundar-
vakningu, aukinni fræðslu og
betra utanumhaldi um verkefni
sem tengjast umhverfismálum.
Fljótlega vildum við fara að horfa
á sjálfbærni í víðara samhengi en
einungis út frá umhverfismálum
og gáfum út okkar fyrstu sjálf-
bærniskýrslu í fyrra og fórum eftir
GRI-staðlinum. Með því að taka
saman upplýsingar út frá GRI sáum
við að Veritas uppfyllir stóran hluta
staðalsins, en það er alltaf hægt
að gera enn betur. Við vildum því
taka næstu skref og sáum að í sjálf-
bærnimálum er hægt að vinna vel á
mörgum sviðum.“
Þetta segir Dagmar Ýr Sigurjóns-
dóttir, markaðsstjóri hjá Vistor.
„Á dögunum héldum við í
fyrsta sinn sjálfbærnivinnustofur
með stjórnendum fyrirtækisins
og stuðningi Evu Magnúsdóttur,
sjálfbærniráðgjafa hjá Podium, því
þegar við skoðuðum samfélags-
þætti sjálfbærs reksturs Veritas
nánar, mátti sjá að við gætum gert
betur. Vinnustofurnar heppnuðust
mjög vel, þar ríkti góður andi og
fram komu frábærar hugmyndir
sem gaman verður að vinna að
í samstarfi við starfsfólkið. Það
hjálpar okkur að halda áfram og
taka sjálfbær málefni á annað stig.“
Hnitmiðaðar aðgerðir
Dagmar segir gott start í sjálfbær-
um rekstri Veritas að hafa byrjað á
umhverfismálunum og þau færi sig
nú áfram stig af stigi.
„Það hjálpar okkur gríðarlega að
vera komin með þriggja ára reynslu
í að skoða starfsemi fyrirtækisins
út frá sjálfbærni, og eiga orðið tölu-
legar upplýsingar um umhverfis-
stjórn og kolefnisspor. Nú getum
við nýtt þau gögn til sjá hverju við
getum breytt til batnaðar með
hnitmiðun í öllum okkar aðgerðum
og með sjálfbærnivinnustofunum
hafa bæst við góðar hugmyndir
sem gefa okkur kraft til að bæta um
enn betur,“ greinir Dagmar frá.
„Einnig höfum við lagt mikla
áherslu á rétta flokkun á hráefnum,
og hófum meðal annars samstarf
við PureNorth Recycling á árinu,
sem endurnýtir plast sem til fellur
úr vöruhúsunum og kemur bylgju-
pappa í endurvinnslu. Sú vinna
getur að auki leitt til umtalsverðrar
hagræðingar fyrir samstæðuna
með breyttu verklagi.“
Dagmar segir sjálfbærnivegferð-
ina bæði gefandi og skemmtilega.
„En það langskemmtilegasta við
sjálfbærnistarfið er að allt starfs-
fólkið á þetta verkefni og innan
Veritas eru einstaklingar sem hafa
tekið bráðskemmtilegt frumkvæði
í þessum málum og gert að sínum.
Þetta er samfélagsleg ábyrgð okkar
allra, sem við þurfum og eigum öll
að taka þátt í, og hjá Veritas er frelsi
til að gera vel og koma umbótum
tengdum sjálfbærni í framkvæmd.
Það stendur upp úr. Maður finnur
að þetta hefur sín góðu áhrif innan
fyrirtækisins. Við erum að hugsa
alla virðiskeðjuna upp á nýtt út frá
sjálfbærniviðmiðum."
Hugmyndir starfsmanna
vísa veginn
„Við ætlum að halda ótrauð áfram á
þessari vegferð en bað blasir við að
verkefnin fara bara stækkandi. Það
er alltaf hægt að gera betur í sjálf-
bærum rekstri en mikilvægt er að
láta tölulegar upplýsingar og hug-
myndir starfsmanna hjálpa okkur
að verða hnitmiðaðri og vísa okkur
leiðina. Ef ég ætti að gefa fyrirtækj-
um heilræði, sem nú eru að hefja
þessa vegferð, væri það að byrja
greiningu á umhverfisstjórn fyrir-
tækisins, því það er ómetanlegt að
eiga þessi gögn aftur í tímann til að
setja sér raunhæfari markmið. Upp-
lýsingagjöf í formi sjálfbærniskýrslu
og vinna með starfsmönnum er
ekki síður mikilvæg fyrir framtíðar-
frammistöðu.“ n
Veritas er í Hörgatúni 2 í Garðabæ.
Sími 535 7100. Netfang: veritas@
veritas.is. Sjá nánar á veritas.is
Mikill kraftur í sjálfbærnivegferð Veritas
Hrund Runólfs-
dóttir, forstjóri
Veritas, Eva
Magnúsdóttir,
sjálfbærni-
ráðgjafi hjá
Podium, og
Dagmar Ýr
Sigurjónsdóttir,
markaðsstjóri
Vistor.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON
Sjálfbærnivinnustofur Veritas skiluðu frábærum hugmyndum. Frá vinstri:
Júlía Rós Atladóttir, framkvæmdastjóri Distica, Eva Magnúsdóttir, ráðgjafi,
Andrea Ingimundardóttir, markaðsstjóri Vistor og Hákonía Jóhanna Guð-
mundsdóttir, deildarstjóri upplýsingatæknideildar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
16 kynningarblað 25. mars 2022 FÖSTUDAGURSJÁLFBÆR REKSTUR