Fréttablaðið - 25.03.2022, Side 32
Það er síðan
stjórnvalda að
skapa umgjörð sem
hvetur til nýsköpunar,
orkuskipta og fjárfest-
inga þannig að metn-
aðarfullum mark-
miðum verði náð.
Atvinnulífið hefur lagt meiri
áherslu á sjálfbærni á undan
förnum árum og koma
loftslagsmálin þar mjög við
sögu. Sigurður Hannesson,
framkvæmdastjóri Samtaka
iðnaðarins, segir að við séum
stödd í miðri grænni iðnbylt
ingu. Hann talar sérstaklega
um nýsköpun sem sé í eðli
sínu græn.
„Atvinnulífið hefur tileinkað sér
sjálfbærni í meiri mæli á undan-
förnum árum og gerir það á ýmsan
hátt. Hugsunin um sjálfbærni er
nú þegar innbyggð í starfsemi
margra fyrirtækja þar sem í allri
ákvarðanatöku er tekið mið af
samfélaginu, umhverfinu og lofts-
laginu,“ segir Sigurður Hannesson,
framkvæmdastjóri Samtaka
iðnaðarins. „Það tengist meðal
annars hráefnanotkun og orku-
notkun þannig að sjálfbærni hefur
fengið aukið vægi á síðustu árum.“
Sigurður segir að ef horft sé
sérstaklega til loftslagsmála sem
er viðfangsefni Grænvangs þá
séu fyrirtækin á fleygiferð í átt að
kolefnishlutleysi.
„Mörg þeirra hafa þegar sett sér
markmið og náð árangri á þessu
sviði og sum hafa þegar náð mark-
miðum sínum. Gott dæmi um það
er Össur sem náði þeim áfanga á
síðasta ári að verða kolefnishlut-
laust í starfsemi sinni. Einnig má
nefna að losun er hluti af iðnaðar-
ferlum álveranna og þar eru skýr
markmið um að þau verði kolefnis-
hlutlaus árið 2040 í takt við mark-
mið stjórnvalda. Til marks um
hversu vel er unnið að því að ná
þessum markmiðum hafa álverin
þegar náð þeim árangri að losun
hefur dregist saman um 75% fyrir
hvert framleitt tonn af áli frá árinu
1990.
Það er óhætt að segja að við
séum núna stödd mitt í grænni
iðnbyltingu sem hófst seint á
síðustu öld þegar ríki heims tóku
ákvörðun um að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda til að
bregðast við breyttum aðstæðum
í umhverfinu. Það sem sker þessa
iðnbyltingu frá öðrum er að í
upphafi voru lausnirnar ekki hag-
kvæmar ef þær voru yfir höfuð til
en í öðrum iðnbyltingum voru það
tækniframfarir sem vörðuðu leið-
ina; tækniframfarir sem byltu við-
teknum venjum og vinnubrögðum
og voru hagkvæmar þannig að þær
voru innleiddar sem leiddi þá til
efnahagslegra framfara og meiri
framleiðni.
Í grænu iðnbyltingunni er þessu
öfugt farið – við byrjum á því að
setja markmið og það eru stjórn-
völd sem gera það. Síðan þarf að
finna bestu lausnirnar til að ná
markmiðunum og það eru fyrir-
tækin í atvinnulífinu sem gera það.
Það er síðan stjórnvalda að skapa
umgjörð sem hvetur til nýsköp-
unar, orkuskipta og fjárfestinga
þannig að metnaðarfullum mark-
miðum verði náð.“
Sigurður nefnir að allar atvinnu-
greinar þurfi að finna lausnir til að
markmiðum um kolefnishlutleysi
og jarðefnaeldsneytislaust Ísland
verði náð. Hann segir það jákvætt
að nýverið hafi Icelandair í sam-
vinnu við Landsvirkjun farið í þró-
unarverkefni í tengslum við orku-
skipti í f lugi. „Útgerðin hefur þegar
náð góðum árangri í losun líkt
og iðnaðurinn. Þetta er að gerast
meira og minna í öllum atvinnu-
greinum. Dæmi um gott samstarf
hins opinbera og atvinnulífsins á
þessu sviði er nýr vegvísir um vist-
væna mannvirkjagerð sem tengist
byggingariðnaðinum.“
Nýsköpun í eðli sínu græn
Sigurður nefnir nýsköpun. Hvaða
hlutverk spilar hún í loftslags-
málum í dag?
„Í þessu heildarsamhengi þar
sem stjórnvöld setja metnaðarfull
markmið þá verður atvinnulífið
að finna bestu lausnirnar til að ná
þeim. Það gerist fyrst og fremst
með nýsköpun sem er í eðli sínu
græn því hún leiðir til nýrra lausna
sem eru þá betri heldur en fyrri
lausnir og betri í þessu tilliti þýðir
minni losun. Ég get nefnt fyrirtæk-
ið Carbfix sem hefur þróað lausn
til þess að dæla koltvísýringi niður
í berglög þar sem hann verður að
steini. Þetta er byltingarkennd
lausn á heimsvísu. Þannig skiptir
frumkvæði atvinnulífsins máli.
Það má líka halda því á lofti að
Ísland varð fyrir um hálfri öld einn
af brautryðjendunum í heiminum
í nýtingu jarðvarma sem var hluti
fyrri orkuskipta. Þá var mikil
olíukrísa í heiminum þannig að
olíuverð hafði hækkað mikið og
til að bregðast við því var farið í
nýtingu jarðvarma til húshitunar.
Sú þekking sem þá varð til á grund-
velli nýsköpunar hefur verið nýtt
í að minnsta kosti 45 löndum í
öllum heimsálfum.
Ég get líka nefnt fyrirtæki eins
og Carbon Recycling Internatio-
nal sem er leiðandi á heimsvísu
á sviði rafeldsneytis sem mun
leika lykilhlutverk í orkuskiptum
í heiminum sem fram undan eru
en þar er jarðefnaeldsneyti skipt
út fyrir hreina orkugjafa. Við á
Íslandi viljum ganga alla leiðina;
heimurinn ætlar að taka skrefið í
þá átt að draga úr vægi olíunotk-
unar en íslensk stjórnvöld hafa sett
markmið um jarðefnaeldsneytis-
laust Ísland árið 2040 sem þýðir
að við hættum að flytja inn olíu
og brenna en þess í stað að nýta
hreina orkugjafa. Þá þarf að breyta
rafmagni í orkugjafa sem hægt er
að nýta í skipum, flugvélum og
stærri ökutækjum. Rafeldsneyti
er lausnin þar. Það er til mikils að
vinna að verða sjálfbær og sjálf-
stæð í orkumálum sem þjóð.“
Mikilvægt fyrsta skref
Sigurður er spurður út í hlutverk
loftslagsvegvísis atvinnulífsins.
„Atvinnulífið hafði frumkvæði
að því að vinna loftslagsvegvísi
atvinnulífsins en það voru öll
samtök helstu atvinnugreina sem
tóku höndum saman og unnu að
gerð vegvísisins með Grænvangi.
Þetta er fyrsta skrefið á langri leið
en er samt mikilvægt vegna þess
að þarna eru markmiðin sett fram
eftir atvinnugreinum; staðan
er greind, fjallað um losun eftir
atvinnugreinum og fjallað um
helstu áskoranir og hvað standi
í vegi fyrir því að hægt sé að ná
árangri. Það er mjög misjafnt eftir
greinum; stundum vantar grænar
lausnir og stundum þarf fjárhags-
lega hvata. Þannig er um að ræða
mikilvægt fyrsta skref en næsta
skref verður enn þá mikilvægara.
Stjórnvöld hafa í því samhengi
lagt áherslu á það bæði í stjórnar-
sáttmálanum og það kom skýrt
fram í máli forsætisráðherra á
Iðnþingi um daginn að stjórnvöld
vilja vinna náið með atvinnugrein-
unum hverri fyrir sig að því að
setja markmið. Afraksturinn af því
er einnig einhvers konar kortlagn-
ing á því hvað stjórnvöld þurfa að
gera til þess að ryðja hindrunum
úr vegi og greiða götu til að þessi
markmið náist. Þannig að sú vinna
verður væntanlega annar áfangi í
loftslagsvegvísi atvinnulífsins.
Ég geri ráð fyrir að önnur útgáfa
Loftslagsvegvísis atvinnulífsins
verði á næsta ári en það verður
mjög mikilvægt skref. Í þessu
samhengi hafa stjórnvöld horft til
Danmerkur þar sem dönsk stjórn-
völd fóru í sambærilega vinnu og
þar voru gerðir samningar við
einstakar greinar um hvata stjórn-
valda um grænar fjárfestingar,
græna nýsköpun og grænar lausnir.
Þannig koma hvatar frá hinu opin-
bera en atvinnulífinu er falið að
koma með lausnir. Þetta er mjög
spennandi verkefni og mun skipta
miklu máli í því að ná þessum
metnaðarfullu markmiðum sem
sett hafa verið.“ ■
Við erum stödd í miðri grænni iðnbyltingu
„Í þessu heildarsamhengi, þar sem stjórnvöld setja metnaðarfull markmið, þá verður atvinnulífið að finna bestu lausnirnar til að ná þeim,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka
iðnaðarins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
18 kynningarblað 25. mars 2022 FÖSTUDAGURSJÁLFBÆR REKSTUR