Fréttablaðið - 25.03.2022, Qupperneq 34
Isavia er að
hefja
metár í
fram-
kvæmdum
og þá er
nauðsyn-
legt að þau
áform rími
við sjálf-
bærni-
stefnuna.
Sjálf-
bærni-
stefnan
tengist
beint inn í
heildar-
stefnu
fyrir-
tækisins
því fyrir-
tækið
endur-
skoðaði
líka heild-
arstefnu
sína á
síðasta ári.
Isavia hefur mótað sér metn-
aðarfulla sjálfbærnistefnu
sem skiptist í fjóra áherslu-
þætti. Það er umhverfishluti
þar sem loftslagsmál eru
áberandi auk auðlindanýt-
ingar, samfélagsþáttur þar
sem áhersla er lögð á lífsgæði
og svo efnahagsþáttur þar
sem horft er á virðissköpun.
„Isavia var áður með aðskildar
stefnur um annars vegar sam-
félagsábyrgð og hins vegar
umhverfisstefnu. Við höfum nú
sameinað þessar tvær stefnur í
eina sjálfbærnistefnu og um leið
uppfært fimm ára aðgerðaáætlun
okkar í málaflokknum. Við sam-
einuðum stefnurnar á grundvelli
þeirrar þróunar sem orðið hefur
í málaflokknum undanfarin ár
í bæði innra og ytra umhverfi
félagsins,“ segir Hrönn Ingólfs-
dóttir, forstöðumaður stefnumót-
unar og sjálfbærni hjá Isavia. „Þar
tökum við loftslagsmálin inn enn
skýrar en áður.
Stefnan skiptist í fjóra áherslu-
þætti sem eru einmitt loftslagsmál
sem tilheyra umhverfishlutanum
auk áherslu á góða auðlindanýt-
ingu, horft er á lífsgæði í samfélags-
þættinum og svo undir efnahags-
þættinum er horft á virðissköpun.
Við sjáum að með skýrri stefnu
náum við árangri hraðar og náum
að koma betur til skila inn í fyrir-
tækið hvert við erum að fara.
Sjálfbærnistefnan tengist beint
inn í heildarstefnu fyrirtækisins
því fyrirtækið endurskoðaði líka
heildarstefnu sína á síðasta ári.
Sjálfbærni er alltumlykjandi í öllu
sem við gerum og er ein af stefnu-
áherslum félagsins.
Grundvöllurinn fyrir því að
árangur náist í þessum málaflokki
er að yfirstjórn hafi skilning á
honum. Ekki er sjálfgefið að sú sé
staðan, jafnvel ekki árið 2022, en
hjá Isavia styðja stjórnendur vel
við vegferðina.“
Kolefnislaus árið 2030
Hrönn segir að varðandi loftslags-
mál sé lögð áhersla á að fyrirtækið
verði kolefnislaust árið 2030. „Við
gerðum greiningu á því hvernig
við kæmumst á þann stað; við
vorum búin að skrifa undir það að
fyrirtækið yrði orðið kolefnislaust
árið 2050 samkvæmt yfirlýsingu
Alþjóðasamtaka f lugvalla en svo
fóru f lugvellir að færa sig nær í
tíma og margir treystu sér í að
þetta yrði mögulegt árið 2030.
Okkur fannst það vera áhuga-
vert en við vildum vera viss um
að við réðum við það þannig að
við létum gera ítarlega greiningu
á ökutækjaflota Isavia sem telur
yfir 140 tæki hjá móðurfélaginu.
Kolefnisspor reksturs hjá
okkur kemur að mestu frá elds-
neytisnotkun. Það sem verður
erfiðast fyrir okkur er að skipta
út sameykjunum sem hreinsa
f lugbrautirnar því þar er tæknin
komin styst.
Við vildum vera viss um að við
gætum þetta, þannig að þetta
markmið, að verða kolefnislaus
árið 2030, er byggt á ítarlegum
greiningum.“
Auðlindanýting
Hvað auðlindanýtingu varðar
segir Hrönn að lögð sé áhersla á
sjálf bær innkaup og að lágmarka
neikvæð umhverfisáhrif. „Við
erum að vinna að aðgerðum til að
tryggja hringrásarfyrirkomulag
hjá Isavia. Síðan horfum við á
að byggja upp innviðina okkar á
sjálf bæran hátt en það er mikil
uppbygging fram undan á Kefla-
víkurflugvelli. Við viljum gera
það á sem umhverfisvænastan
máta og fá BREEAM-umhverfis-
vottun. Við erum þar í samvinnu
við erlenda ráðgjafa sem aðstoða
okkur. Í öllum svona framkvæmd-
um er líka mjög mikilvægt að vera
í góðu samstarfi við alla hagaðila
innan og utan Keflavíkurflug-
vallar.“
Samvinna
Þegar kemur að samfélagsþætt-
inum, lífsgæðum, segir Hrönn að
Isavia vilji vera til fyrirmyndar í
sjálf bærni á Íslandi. „Við erum að
auka sjálf bærni í f lugvallarsam-
félaginu á Keflavíkurflugvelli.
Starfsfólk er í góðu samstarfi við
viðskiptafélaga okkar og vinnur
með rekstraraðilum á f lugvell-
inum að ýmsum umbótum á
þessu sviði. Félagið deilir sinni
þekkingu og lærir af þeim. Við
viljum ná árangri sem heild og
erum þannig að ná öðrum með
okkur því að það er líka á okkar
ábyrgð, þótt við rekum ekki
nema hluta af f lugvellinum, að
öðrum gangi vel. Við vinnum
líka með nærsamfélaginu. Isavia
er hluti af samstarfi sem kallast
Suðurnesjavettvangur þar sem við
vinnum mjög markvisst og náið
einmitt með sveitarfélögunum
fjórum á Suðurnesjum, Kadeco og
Sambandi sveitarfélaga á Suður-
nesjum að úrbótaverkefnum.“
Langtímavirðisauki
Svo er það efnahagsþátturinn
og í því sambandi segir Hrönn
Með skýrri stefnu gerast töfrar
Hrönn Ingólfs-
dóttir. „Við
sjáum að með
skýrri stefnu
náum við
árangri hraðar
og náum að
koma betur til
skila inn í fyrir-
tækið hvert við
erum að fara.“
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
að Isavia vilji að reksturinn sé
sjálf bær. „Við viljum skapa lang-
tímavirðisauka inn í hagkerfið.
Sem flugvöllur ber Isavia ákveðna
ábyrgð á því sviði og við viljum
taka ákvarðanir með sjálf bærni
að leiðarljósi. Hún er alltumlykj-
andi í stefnunni okkar og hugsun.
Svo er þetta vegferð og það sem
við þurfum að muna er að stuðla
að framþróun og stöðugum
umbótum. Það eru nýir straumar
og stefnur á þessu sviði og maður
þarf alltaf að fylgjast með og
reyna að gera betur. Árangur næst
ekki á einum dagi.“
Mikilvægi starfseminnar
Isavia er að hefja metár í fram-
kvæmdum og þá er nauðsynlegt
að þau áform rími við sjálf bærni-
stefnuna.
„Tilgangur Isavia er að leiða
f lugvallarsamfélag sem eykur
lífsgæði og velsæld á Íslandi og
það gerum við með því að tengja
heiminn í gegnum Ísland. Með því
að fjölga f lugtengingum erum við
líka að auka hagvöxt á Íslandi og
það er sagt að 10% fjölgun nýrra
f lugtenginga auki hagvöxt um
0,5%. Þannig að í því samhengi
erum við í rauninni að stækka til
að uppfylla það og geta tekið á
móti viðskiptavinum okkar. Það
er í sjálfu sér ekki umhverfisvænt
að byggja en við viljum gera það á
sem sjálf bærastan hátt, til dæmis
með efnisvali á vörum með lægra
kolefnisspori.
Við hlutum nýverið ISO14001
umhverfisvottun. Það skiptir
okkur afar miklu máli að hafa
vottað umhverfisstjórnunarkerfi
sem nær yfir starfsemina. Vott-
unin staðfestir áherslur okkar í
sjálf bærni. Starfsfólk okkar hefur
fengið fræðslu um kerfið, vottun-
ina og sjálf bærnistefnu félagsins.
Það skiptir höfuðmáli að fólkið
okkar viti hvert við erum að fara
og hvernig við komumst þangað.
Saman náum við árangri.“ n
Isavia leggur áherslu á að styðja vel við samfélagsleg
verkefni og hefur sjálfbærni að leiðarljósi.
20 kynningarblað 25. mars 2022 FÖSTUDAGURSJÁLFBÆR REKSTUR