Bændablaðið - 23.06.2022, Síða 13
Ljósgjafinn og Reykjafell hafa tekið höndum saman
um að þjónusta bændur við að nútímavæða
lýsingu í fjósum til að auka nyt kúa og bæta líðan
þeirra og heilsu. Rannsóknir sýna að rétt dag- og
næturlýsing eykur nyt umtalsvert.
Rétt lýsing skiptir verulega miklu máli varðandi nyt hjá kúm.
Sólarljós eykur framleiðslu á D-vítamíni og skiptir líka máli
varðandi framleiðslu á melatóníni, en styrkjur þess í blóði
hefur mikil áhrif á frjósemi, atferli og vöxt hára.
Með notendavænu skjákerfi er á auðveldan hátt hægt að stilla
lýsinguna í fjósinu fyrir hina ýmsu hópa. Þannig má auka vellíðan
kúnna bæði á geldskeiði og á mjólkurskeiði. Mjólkurkýr eru
þannig með eina sólarhringsstillingu og geldkýr með aðra.
Hægt er að f lýta eða seinka sólarhringnum, allt eftir hvað
hentar hverjum bónda best.
Náttúruleg birta er langt í frá alltaf eins og það er,
því í raun hvorki mönnum eða dýrum eðlislægt að fara
snögglega úr engri birtu í fulla og kalda birtu.
Venjulegur sólríkur sumardagur víðast hvar á jörðinni byrjar
frá nóttu til dagsbirtu á um einni klst. og er fyrst í mjúkri birtu.
Þegar kemur fram undir hádegi er birtan orðin mun kaldari,
en mýkist svo aftur keyrir niður við sólarlag. Með skjákerfinu
og dagbirtustillanlegum og dimmanlegum lömpum getum við
búið til svona dægursvei f lur fyrir kýr.
Dæmi um stillingu fyrir mjólkurkýr:
Það byrjar að birta af degi kl. 5:00 og fyrst er litur birtunnar
hlýr og ljósmagnið keyrir upp í fullan styrk á einni klst.
Litur lýsingarinnar kólnar svo eftir því sem líður á morguninn
og er kominn í kalda birtu um kl. 11:00 og helst þannig til
kl. 14:00. Eftir það fer lýsingin að mýkjast hægt og rólega aftur
til kl. 20:00, en þá fer ljósstyrkur að dimmast niður á einni klst.
og kl. 21:00 tekur við dauf næturlýsing til næsta morguns.
Tilraunir með lýsingu sem gerðar hafa verið erlendis sýna
að með réttu fyrirkomulagi má auka mikið nyt kúnna.
Þessum tilraunum er það sammerkt að hæstri nyt skila
mjólkurkýr við daglýsingu í 16-18 klst. og næturlýsingu í 6-8 klst.
Dagsnytin getur aukist um 8-10% (2-3) kg á dag óháð því hver
nytin er fyrir. Næturlýsing þarf að vera í a.m.k. 6 klst. svo að
þessi áhrif náist fram.
Mælt er með daglýsingu sem hér segir:
· Mjólkurkýr, 16 klst.
· Geldkýr, 8 klst.
· Kvígur í uppeldi, 12-16 klst.
Tillaga að styrk lýsingar í fjósum, lux:
· Mjaltagryfja, mjólkurhús, meðhöndlunarstíur, 150-200 lux
· Fóðurgangar, 150 lux.
· Legusvæði, básar, biðpláss, 100-150 lux
· Næturlýsing, 2-4 lux
Sérfræðingar Ljósgjafans sjá um áætlanagerð og uppsetningu.
Sendið fyrirspurnir á ljósgjafinn@ljósgjafinn.is