Bændablaðið - 23.06.2022, Qupperneq 24

Bændablaðið - 23.06.2022, Qupperneq 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2022 HRINGINN Í KRINGUM LANDIÐ Austurland & Austfirðir 18.-25. júní Gönguvikan Á fætur í Fjarðabyggð, fjölskylduvænar gönguferðir og afþreying. 25. júní Skógardagurinn mikli í Hallormsstaðarskógi. Norðurland & Norðausturland 24.-26. júní Lummudagar! Notaleg fjölskylduhátíð í Skagafirði með fjölbreyttri dagskrá. 24.-25. júní Midnig ht Sun Whitewater hátíðin verður hald in eft ir tveggja ára hlé. Flúðasigl ing um miðnætti niður Jökulsá Austari, kajaksiglingin Fire and Ice, grill, tónlist og margt fleira. 24.-26. júní Bæjarhátíðin Hofsós heim. Varðeldur, sjósund & markaðir. Reykjanes, Suðurland, Suðaustur & Suðvesturland 24.-26. júní Hvalfjarðardagar. 24.-26. júní Humarhátíð á Höfn í Hornafirði þar sem boðið er upp á humarsúpu og fjölbreytta skemmtidagskrá. Sömu helgi er í gangi flughátíð á Hornafjarðarflugvelli, sem fjölskylda Vignis Þorbjörnssonar heldur honum til heiðurs, en hann sinnti flugþjónustu Hornafjarðarflugvallar nánast allt sitt líf. 25. júní Jónsmessuhátíð Eyrarbakka. Varðeldur, markaðir o.fl. 30. júní-3. júlí Goslokahátíð Vestmannaeyja þar sem lokum eldgossins á Heimaey 1973 er fagnað. Vesturland, Norðvesturland & Vestfirðir 24.-26. júní Hamingjudagar á Hólmavík fyrir alla fjölskylduna. 24.-26. júní Brákarhátíð – Fjölskylduhátíð í Borgarnesi og svo má ekki gleyma Landsmóti UMFÍ fyrir aldurshópinn 50+ 24.-26. júní Danskir dagar á Stykkishólmi. 30. júní-2. júlí Markaðshelgin – Fjölskylduhátíð í Bolungarvík. 30. júní-3. júlí Írskir dagar – Bæjarhátíð á Akranesi. Á döfinni í júní ... (Svo er nú sjálfsagt eitthvað sem hefur ekki komist á lista, en hér að ofanverðu er ýmislegt upptalið sem má skemmta sér við.) Þegar döggin drýpur og draumarnir rætast: Jónsmessuhátíðin Víkurhvarf 5 Vagnar o s álgrindahús frá WECKMAN Steel STÁLGRINDAHÚS Fjöldi stærða og gerða í boði Stærð palls 2,55 x 8,60 m Verð kr. 1.890.000,- með virðisaukaskatti Weckman flatvagnar / löndunarvagnar RÚLLUVAGNAR – LÖNDUNARVAGNAR Stærð palls 2,55 x 9,0m Vagnar 6,5 - 17 tonn. Verðdæmi: 8 tonn kr. 1.250.000,- með virðisaukaskatti. 12 tonn kr. 1.590.000,- með virðisaukaskatti. STURTUVAGNAR Burðargeta 6,5 – 17 tonn þak og veggstál galvaniserað og litað Bárað• Kantað• Stallað• Fjöldi lita í boði Víkurhvarfi 5 • Kópavogi • Sími 588 1130 hhaukssonehf@simnet.is Víkurhvarf 5 SK ES SU HO RN 2 01 2 Víkurhvarf 5 Vagnar og stálgrind hús frá WECKMAN Steel STÁLGRINDAHÚS Fjöldi stærða og gerða í boði Stærð palls 2,55 x 8,60 m Verð kr. 1.890.000,- með virðisaukaskatti Weckman flatvagnar / löndunarvagnar RÚLLUVAGNAR – LÖNDUNARVAGNAR Stærð palls 2,55 x 9,0m Vagnar 6,5 - 17 tonn. Verðdæmi: 8 tonn kr. 1.250.000,- með virðisaukaskatti. 12 tonn kr. 1.590.000,- með virðisaukaskatti. STURTUVAGNAR Burðargeta 6,5 – 17 tonn þak og veggstál galvaniserað og litað Bárað• Kantað• Stallað• Fjöldi lita í boði Víkurhvarfi 5 • Kópavogi • Sími 588 1130 hhaukssonehf@simnet.is Víkurhvarf 5 SK ES SU HO RN 2 01 2 Ögurhva fi 8 7-18 tonn Samkvæmt bókinni Saga daganna eftir Árna Björnsson kemur fram að Jónsmessan, hátíð álfa og ófrenja, hafi frá fornu fari verið haldin hátíðleg sem miðsumarsnótt í Evrópu, þar sem gleðskapurinn átti það til að fara verulega úr böndunum. Nema auðvitað ef brennur, kynsvall og dansleikir undir þema djöflatrúar séu fólki daglegt brauð. Var þetta allt undir þeim yfirskildi að hér væri um töfra náttúrunnar að ræða. Um er að ræða tímabilið 16.-17. öldin þegar farið var að skrá dýrmætar heimildir niður á pappír, en fyrir þann tíma þótti ekki vert að eyða dýrmætu skinni í að festa niður frásagnir af slíkri hegðun. Hjáguðir eða gleðimenn Gleðimaðurinn Marteinn Lúther nokkur, þýskur munkur og einn þekktasti siðabótamaður kirkjunnar á þessum tíma, sveiflaðist til og frá í skoðunum sínum er viðkomu þeirri trylltu gleði er Jónsmessan bauð upp á. Framan af ævi sinni virðist hann ekki andvígur slíkum skemmtunum – eða skemmtunum yfir höfuð sem blönduðust ekki saman við helgisiði kirkjunnar, en með aldrinum snerist hann þó gegn gleðskapnum sem slíkum. Tæplega fimmtugum að aldri þótti honum nóg komið en vildi þó halda í Jónsmessuna á þann hátt að hún skyldi verða hátíð predikarans auk þess að hreinsa skyldi hana af allri hjáguðadýrkun. Þessi hugmynd fékk lítinn hljómgrunn og því fordæmdi hann Jónsmessu alfarið. Þessi skemmtilega hátíð ber því í dag keim af kaþólskri trú, messu Jóhannesar skírara og göldrum hins ærslafulla almennings. Töfranótt Aðfaranótt Jónsmessunætur þykir ein fjögurra nátta ársins sem magnaðastar þykja hvað varðar töfra á einhvern hátt – en hinar eru jóla- nýárs- og þrettándanótt. Þær eiga það sameiginlegt að vera í nánd við sólhvörf, sumars eða vetrar, og á þeim flestum rætast draumar, dýr tala og allir yfirskilvitlegir hæfileikar og máttar koma í ljós, fólki til gleði eða ama. Óskasteinar, lausnarsteinar, draumagras, lásagras og huliðs- steinar tala til hjörtu trúaðra á Jónsmessunni, svo eitthvað sé nefnt. Döggin Svo eru þeir til sem nýta nóttina eða jafnvel daginn til þess að vera frjálslega til klæða – hugsanlega svo auðvelt sé að koma sér úr leppunum og velta sér í dögginni þegar hún birtist. Þóttu slíkar veltur afar heillandi hér áður fyrr og fylgdu ýmsar sögur hvers vegna. Einhverjir vildu meina að döggin lengdi lífið, aðrir trúðu á drauma sína eftir nætursvefn í kjölfarið og enn öðrum fannst gaman að ögra tilverunni með því að verða votir, gætu fengið flensu í kjölfarið og jafnvel látist – en slíkt var ekki óalgengt hér á öldum áður. Sannkallaðir daredevils þessir sem veltu sér úr dögginni semsé. Réttast er þó víst að allir finni töfrana innra með sjálfum sér og hvað á best við hvern og einn, en eitt er víst að nóg er af þeim í kringum þessa merkilegu hátíð. /SP Töfrar brönugrass áttu að leynast í rótinni en menn töldu að hún gæti losta og ástir auk þess að stilla ósamlyndi hjóna ef á henni væri sofið. Best væri að tína hana í fjörum og drekka af henni seyði. Ef átti að ná ástum annarra skyldi lauma rótarbita undir kodda þess sem hugurinn girntist og þá yrði takmarkinu náð. Skil milli þess skilvitlega og óskilvitlega eru jafnan óskýr á Jónsmessunni og telja margir að í logunum felist kraftur fyrirheita. Gjarnan má horfa í eldinn og sjá fyrir sér framtíð sína og trúa margir að þær sýnir rætist fremur öðrum. Á meðan venja er að velta sér upp úr dögginni við dögurð kjósa aðrir að vaða í Hvaleyrarvatni undir miðnætursólinni. Talið var að ómennskar skepnur á borð við kýr og annan búfénað fengju málið á Jónsmessunótt og gerðu – og gera ef til vill enn margir sér leik að því að standa við fjósdyrnar og hlera. Ekki er vitað hvort árangur ber erfiði. Ein þekktasta saga um selinn á rætur sínar að rekja til Jónsmessunætur, en þá er trú að selir fari úr ham sínum. Segir sagan frá selkonu sem missti ham sinn í hendur bónda nokkurs er leist vel á konuna – og áttu þau saman börn og buru. Konan fann þó ham sinn eftir þó nokkur ár og steypti sér í sjóinn en mælti áður: „Mér er um og ó, ég á sjö börn í sjó og sjö börn á landi.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.