Bændablaðið - 23.06.2022, Page 32

Bændablaðið - 23.06.2022, Page 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2022 Sveitarfélög og stjórnmál: Nýir sveitarstjórar kringum landið Niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna urðu til þess að mörg sveitar- félög eru í þann mund að bjóða nýtt fólk velkomið í brúna. Allnokkur sveitarfélög hafa ákveðið að fá inn fagráðinn sveitarstjóra og hafa mörg þeirra auglýst eftir slíkum, þar á meðal Dalabyggð, Fjallabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur, Húnabyggð, Hveragerðisbær, Mosfellsbær, Norðurþing, Rangárþing ytra, Svalbarðsströnd og Sveitarfélagið Vogar. Nokkrir nýir sveitar- og bæjarstjórar hafa þegar verið kynntir sem munu taka til starfa á árinu. Bændablaðið hleraði fjóra þeirra. /ghp Arna Lára Jónsdóttir: Íbúum fjölgar aftur – Ísafjarðarbær Arna Lára Jónsdóttir tók til starfa sem bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar í byrjun mánaðarins. Áður gegndi Birgir Gunnarsson starfinu. Arna hefur verið bæjar- fulltrúi síðan árið 2006. Hennar fyrsta verk í starfi var að taka á móti forsetahjónunum sem komu í sína fyrstu opinberu heimsókn til Ísafjarðarbæjar. „Ég hefði ekki getað valið mér betra upphaf. Þetta er mikill heiður fyrir mig að fá að sinna þessu ábyrgðarmikla starfi í umboði bæjarbúa. Þetta er í senn spennandi og krefjandi en ég er full tilhlökkunar fyrir starfinu. Það er mikil uppbygging fram undan í Ísafjarðarbæ og íbúum farið að fjölga aftur. Það kallar á að skipulagsmálin verði ofarlega á blaði. Finna þarf lóðir og undirbúa byggingu nýs íbúðarhúsnæðis, en mikil þörf er á slíku. Við þurfum fleira fólk hingað vestur, þar sem atvinnulífið er í miklum vexti. Sveitarfélagið þarf að styðja við og liðka til við hinar ýmsu framkvæmdir sem einstaklingar og fyrirtæki eru að ráðast í. Það liggur einnig fyrir að við þurfum að huga að fleiri leikskólaplássum og svo er farið að þrengja að grunnskólanum á Ísafirði. Við erum að klára lengingu á Sundabakka og þar skapast mikil tækifæri fyrir höfnina og hafnartengda starfsemi. Þannig það eru bjartir tímar í Ísafjarðarbæ og mikið undir að við spilum vel úr þeim aðstæðum sem hér eru fyrir hendi. Helstu styrkleikar sveitar- félagsins liggja í samfélaginu og í fólkinu sem hér býr. Það er mikil gróska, drifkraftur og seigla sem einkennir þetta samfélag. Gjöful fiskimið og falleg náttúra skapa okkur eftirsóknarverða sérstöðu. H e l s t u á s k o r a n i r Ísafjarðarbæjar og annarra sveitarfélaga á Vestfjörðum er að verulega skortir upp á að ríkið hafi sinnt skyldu sinni við að byggja upp innviði samfélagsins. Hér vísa ég í raforkuöryggi sem er ófullnægjandi og samgöngur eru ekki boðlegar samfélagi á 21. öldinni. Það vantar nokkur jarðgöng og almennilega vegi sem uppfylla nútímakröfur svo fólk komist öruggt á milli byggðarlaga, auk þess sem við þurfum að koma afurðum okkar á markað. Ísafjarðarbær er í mikilli þörf fyrir auknar tekjur til að standa undir þeim vexti sem er fram undan og við horfum til þess að fá stærri hluta af auðlindagjöldum af fiskeldi til sveitarfélagsins,“ segir Arna Lára. Ísafjarðarbær varð til 1. júní 1996 þegar Ísafjörður, Flateyri, Suðureyri og Þingeyri sameinuðust, en áður hafði Hnífsdalur sameinast Ísafirði. Stærð sveitafélagsins er 2.379 ferkílómetrar. Íbúafjöldinn er 3.840 manns. Atvinnulíf á Vestfjörðum byggir á frumframleiðslugreinum og þá fyrst og fremst á sjávarútvegi, en það er sú grein sem skilar mestu tekjum á svæðinu. Fiskeldi er sú atvinnugrein sem vex hraðast á í sveitarfélaginu. Einar Freyr Elínarson: Húsnæðisuppbygging fram undan – Mýrdalshreppur Einar Freyr Elínarson tekur við af Þorbjörgu Gísladóttur eftir sigur B-lista Framsóknar og óháðra í hreppnum. „Ég er ótrúlega spenntur fyrir starfinu og þakklátur fyrir stuðninginn sem við hlutum í kosningunum. Það eru mikil forréttindi að fá tækifæri til þess að gera að aðalstarfi það sem maður virkilega brennur fyrir, sem er að byggja upp samfélagið. Mitt fyrsta verk sem sveitarstjóri verður að hefjast handa við undirbúning fjárhagsáætlunar næsta árs sem tekur mið af stefnumálum okkar. Við ætlum að ráðast í mikla húsnæðisuppbyggingu, uppbyggingu á skólasvæðinu og koma upp glæsilegri líkamsræktaraðstöðu. Það krefst þess að vandað sé til verka við áætlanagerð. Við ætlum að sjá til þess að ríkið standi við gefin loforð um uppbyggingu í heilbrigðisþjónustu og vinna að auknu samstarfi við ríkið um uppbyggingu innviða í ferðaþjónustu. Okkar helstu styrkleikar liggja í ótrúlegri náttúrufegurð, sem er ástæða þess að við fáum til okkar þennan mikla fjölda af ferðamönnum. Það væri þó ekki raunin ef við værum ekki svo heppin að hér býr dugmikið fólk sem hefur byggt upp glæsileg fyrirtæki og margir sem hyggja á enn meiri uppbyggingu. Helstu áskoranirnar eru þær að gríðarleg fólksfjölgun hefur myndað mikinn þrýsting á húsnæðismarkaði. Erfitt er að finna íbúðarhúsnæði og nær ekkert framboð er af leiguhúsnæði á almennum markaði. Það jákvæða er þó það að margir sjá sér hag í því að byggja og ég er bjartsýnn á að við munum sjá markaðinn þróast í jákvæða átt á næstu árum. Mikil fjölgun hefur orðið í hópi erlendra íbúa sem margir hafa kosið að skjóta hér rótum. Við höfum unnið að því að virkja erlenda íbúa betur og ákváðum m.a. að setja á fót enskumælandi ráð á vegum sveitarfélagsins til þess að skoðanir allra íbúa fengju hljómgrunn,“ segir Einar Freyr. Mýrdalshreppur er 755 fer- kílómetrar að stærð, sem er fremur landlítið sveitarfélag, miðað við mörg önnur á Suðurlandinu að sögn Einars. Íbúar eru nú um 840 manns og því fer nærri að hann hafi tvöfaldast á 10 árum. Flestir starfa við ferðaþjónustu. Arna Lára Jónsdóttir. Einar Freyr Elínarson. Sigurjón Andrésson: Kraftur og sjálfsbjargarviðleitni – Sveitarfélagið Hornafjörður Sigurjón Andrésson hefur verið ráðinn bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar og hefur störf þann 1. júlí nk. Hann hefur starfað sem ráðgjafi og verkefnastjóri hjá Sveitarfélaginu Ölfusi. „Eins og gefur að skilja stend ég auðmjúkur frammi fyrir því trausti sem mér er sýnt með því að vera ráðinn í þetta starf. Ég hlakka til að flytja á Höfn og starfið leggst mjög vel í mig. Ég er geysilega spenntur fyrir nýjum áskorunum. Það eru metnaðarfull markmið sem koma fram í nýjum málefnasamningi og ég veit að það eru mikil tækifæri fram undan hjá sveitarfélaginu. Fyrir utan það að kynnast nýjum vinnustað, rekstrinum og samfélaginu betur, þá munum við fara strax í að brjóta nýjan málefnasamning upp og forgangsraða verkefnum. Það verður mikilvægt að gera hlutina í réttri röð á næstu misserum og á hraða sem sveitarfélagið ræður við. Það er af nægu að taka hvað varðar stór og mikilvæg verkefni hjá okkur á næstu misserum. Eitt af þeim verkefnum er að taka á móti höfuðstöðvum Vatnajökulsþjóðgarðs til Horna- fjarðar. Flutningurinn er rökrétt og góð ákvörðun hjá núverandi stjórnvöldum og skiptir okkur sem búum og störfum í mestu nábýli við jökulinn miklu máli. Styrkleikar sveitarfélagsins Hornafjarðar eru íbúarnir. Samfélagið einkennist af krafti og sjálfsbjargarviðleitni. Fólk hefur alla tíð þurft að bjarga sér sjálft og það býr í fólki mikið frumkvæði til einmitt þess. Öflugt atvinnulíf til sjávar og sveita ásamt blómlegu mannlífi hefur ekki komið að sjálfu sér og við horfum björtum augum til framtíðar og þeirra verkefna sem bíða okkar. Okkar áskoranir felast meðal annars í að styrkja innviði og efla grunnþjónustu sveitarfélagsins. Við viljum eiga lifandi samtal við íbúa og munum stórefla upplýsingagjöf til þeirra. Við ætlum að vaxa og dafna, en á sama tíma tryggja að reksturinn standi undir sér og sé áfram ábyrgur. Að okkar mati þarf einnig að skilgreina betur hver ber ábyrgð af kostnaði sem stefnumarkandi ákvarðanir ríkisins hafa haft í för með sér á fjárhag sveitarfélaga. Okkur er sniðinn mun þrengri stakkur í öflun tekna en ríkinu og samtal um þetta mun verða fyrirferðarmikið hjá sveitarfélögunum á næstu árum að okkar mati,“ segir Sigurjón. Sveitarfélagið nær frá Skeiðarársandi í vestri að Hvalnesskriðum í austri og þar búa um 2.500 manns. Höfn í Hornafirði er eini þéttbýliskjarninn. Í sveitarfélaginu er fjölbreytt atvinnulíf en undirstöðuatvinnugreinarnar eru sjávarútvegur, ferðaþjónusta og landbúnaður. Sigurjón Andrésson. FRÉTTIR

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.