Bændablaðið - 23.06.2022, Blaðsíða 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2022
Tryggvi Ámundsson læknir, sem
sat fyrir svörum í Fréttabréfi um
heilbrigðismál hálfri öld síðar – í
júní 1978, bendir hins vegar á að
ekki þyki joðið heppilegt sáravatn.
„Joðupplausn sótthreinsar
að vísu ágætlega
húð, en blóð og
blóðvatn minnkar
að miklu leyti
alla sótt hreins andi
eiginleika hennar.
Auk þess svíður
óþyrmilega undan
joði þegar það er
borið í sár.“
Mengun hefur
alvarleg áhrif
Varast skal þó
að innbyrða of
mikils magns
af joði. Vitað
er til þess að
sjávargróður geti innihaldið
málma á borð við blý, ál og aðra
þungmálma ef um mengað umhverfi
sjávar er að ræða.
Ýmsar rannsóknir hafa svo bent
á að of stór skammtur joðs geti haft
alveg öfug áhrif á þá sem eiga við
skjaldkirtilsvandamál að stríða og
valdið algerri vanvirkni hans.
Upplýsingar frá Apótekum
Lyfju greina frá svipuðum upp-
lýsingum, en á vefsíðu þeirra kemur
eftirfarandi fram:
„Þó að joð sé nauðsynlegt
í skjaldkirtilshormónum getur
mjög stór skammtur af því fyllt
skjaldkirtilinn um of og dregið um
leið úr eðlilegri virkni hans.
Mikil neysla á joði getur valdið
vanvirkni skjaldkirtilsins. Ráðlegt
er að forðast stóra skammta
af náttúrulækningarlyfjum og
fæðubótarefnum sem innihalda
mikið af joði.“
Allt er gott í hófi
Í raun má því segja að þarna sé fín
lína sem þarf að dansa þegar kemur
að inntöku joðs.
Guðrún Bergmann, öflugur
talsmaður lífsstíls náttúrulegrar
heilsu, greinir frá því á vefsíðu
sinni að hafa verið greind með van-
virkan skjaldkirtil, en tekist að
leiðrétta virkni hans án þess að
fara á skjaldkirtilslyf, þá með
joðbætiefninu Red Tiger.
Hvað svo sem hverjum finnst
er allt gott í hófi og því ekki úr
vegi að fá sér gönguferð meðfram
strandlengju einhverri og horfa yfir
þarabreiðurnar. Söl hafa löngum
kætt bragðlauka Íslendinga, sumir
smyrja þau smjörklípu eins og gert
er við harðfiskinn á meðan aðrir
steyta þau úr hnefa eða tyggja með
harðfisknum. Sumir saxa niður
hvers kyns þara og bæta út í súpur
eða hrísgrjónarétti, aðrir þurrka
og mylja niður í þeytinga og enn
aðrir nýta þessa auðlind joðsins í
andlitsmaska.
Að lokum
Hafa skal í huga varðandi joðneyslu,
að rétt er að vera á varðbergi er
kemur að skjaldkirtlinum og hika
ekki við að biðja heimilislækni að
taka blóðsýni ef grunur leikur á
truflunum á starfsemi hans.
Tiltölulega auðvelt er að greina
slíkt, þá með hormónamælingum
í blóði.
25. júní á Selfossi
Við bætum þjónustuna á Selfossi með því að hafa opið á
laugardögum milli klukkan 10:00 og 14:00.
Af því tilefni verða ýmis tilboð í verslun Fóðurblöndunnar
á Selfossi, Austurvegi 64a, laugardaginn 25. júní.
www.fodur.is
fodur@fodur.is
FB Reykjavík
570 9800
FB Selfoss
Austurvegur 64 a
570 9840
FB Hvolsvöllur
570 9850
SENDUM UM
ALLT LAND
Komdu og kíktu á
úrvalið hjá okkur.
Settu nafnið þitt í
pottinn og þú gætir unnið
glæsilegan vinning.
Dregið 27. júní.
LAUGARDAGS
OPNUNAR
TILBOÐ
Smiðjuvellir 9 300 Akranes 430 6600 akur@akur.is
AKURShús - timbureiningahús
íslensk hönnun
& framleiðsla
Afhent samsett á byggingarstað eða ósamsett í einingum
– Við allra hæfi –
„
Kannaðu málið á
akur.is
og pantaðu frían
húsabækling
Margar stærðir
og gerðir frá
93 - 227m2
Innifalið í verði er nefhjól, varadekk, öryggiskeðja, geymslukassi.
Stærð kassi 2300x1400x440. 750 kg.
Verð kerra án festinga fyrir hjól 240.000 kr.
Verð kerra með festingum fyrir hjól 270.000
Auðvelt er að taka hjólafestingarnar af og nota kerruna til flutninga.
Vandaðar Alzaga kerrur frá Spáni - 39 ára reynsla
Mar Design ehf
s. 6660632
Álfhellu 4
221 Hafnarfirði
Samkvæmt 26. tölublaði Fálkans árið 1963 er joð að sjálfsögðu eitt af því
sem allt almennilegt fólk hefur í lyfjaskápnum. Mynd /timarit.is
Dvergþang. Mynd / Wikipedia
Söl. Mynd / Wikipedia
Hrossaþari í sólskinsbaði. Mynd / Unsplash
→