Bændablaðið - 23.06.2022, Síða 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2022
„Það var komin þörf fyrir
stækkun, undanfarin ár hefur
mikið verið bókað hjá okkur og
fólk biður gjarnan um herbergi
með sérbaðherbergjum.
Við erum með þessum fram
kvæmdum að bregðast við þörfinni,“
segir Helgi Sigurðsson hjá Blábjörg
Resort, sem ásamt Auði Völu
Gunnarsdóttur hefur byggt upp öfluga
ferðaþjónustu á Borgarfirði eystra.
Nú standa yfir framkvæmdir við
stækkun á bæði hóteli og heilsulind
sem þau reka samhliða.
Helgi segir að allt sé nú á fullu
við að byggja 520 fermetra hús á
tveimur hæðum og stendur það við
hlið Gamla frystihússins. Á efri hæð
hússins verða í allt níu lúxusherbergi,
en einnig bjóða þau upp á íbúðir og
herbergi með sameiginlegri aðstöðu.
Á neðri hæðinni verður rúmgott
spa, bjórböð, þaraböð, eimböð og
þar verður einnig boðið upp á spa
meðferðir. Helgi og Auður Vala hafa
rekið Heilsulind á Borgarfirði eystra
undanfarinn áratug, en svæðið var á
þeim tíma vinsælt sem göngusvæði
en engir heitir pottar fyrir hendi til
að hvíla lúin bein eftir gönguna.
Vinsældirnar hafa vaxið og æ fleiri
ganga þar um yfir sumarið.
Bjórböð, þaraböð og saunaböð
„Við vorum með tvo heita viðar
potta á útisvæðinu okkar ásamt
saunatunnu og inni er einn heitur
pottur og innrauð sauna. Það hefur
verið mikil ásókn í þessa þjónustu og
oft þurft að vísa fólki frá, þannig að
við tókum þá ákvörðun að stækka við
okkur. Og taka þetta skrefinu lengra
í rauninni með því að bjóða upp á
bjórböð og þaraböð,“ segir Helgi.
Bjórinn sem notaður er í bjórböðin
kemur úr eigin brugghúsi, KHB
Brugghús, og þarinn úr firðinum.
Þrjár tegundir eimbaða verða í nýja
húsinu sem er í byggingu, venjuleg
finnsk sauna, innrauð sauna og
blaut sauna.
Tjón hefur á stundum orðið á heitu
pottunum sem eru utandyra, þeir hafa
orðið fyrir verulegum skemmdum
eftir óveður að vetrarlagi. Í janúar
segir Helgi að enn eitt skiptið hafi
gert ofsaveður með þeim afleiðingum
að allt útisvæðið eyðilagðist, pottarnir
og saunatunnan. „Nú steypum við
heita potta og vonum að þeir standi
betur gegn veðurhamnum.“
Endurbyggja gamla
kaupfélagshúsið
Helgi segir að samhliða þessum
framkvæmdum hafi þau einnig
unnið við endurbyggingu Gamla
Kaupfélagsins, en það hús er eitt
hið elsta í þorpinu, byggt 1897.
Endurbyggingin er unnin í samstarfi
við Minjastofnun og segir hann að
verið sé að leggja lokahönd á verkið
um þessar mundir. Í húsinu starfrækja
þau brugghús og framleiða að auki
tegundirnar Landa og Gin.
Þá er ölstofa í húsinu. „Landinn
hefur fengið góðar viðtökur
og er í boði í öllum vínbúðum
landsins,“ segir hann. KHBGinið
keppir á erfiðum markaði en hlaut
silfurverðlaun í alþjóðlegri keppni í
London nýverið.
„Við erum afskaplega ánægð
með þessi verðlaun og þau hvetja
okkur til dáða,“ segir hann og
bætir við að bjórinn frá brugghúsi
þeirra hafi einnig fengið góðar
viðtökur neytenda. Sem dæmi hafi
páskabjórinn verið sá söluhæsti
frá handverksbrugghúsi miðað við
dreifingu í Vínbúðunum.
Flytja inn hús fyrir starfsfólk
„Það gefur augaleið að við svona
stækkun sem við erum að fara út í
núna þarf fleira starfsfólk og meira
húsnæði. Við erum að flytja inn þrjú
tilbúin 52 fermetra hús frá Lettlandi
og eru þau væntanleg hingað til okkar
í lok júní,“ segir Helgi en húsin eru
með tveimur svefnherbergjum og
við þau er rúmgóð verönd.
„Þetta er spennandi verkefni og
það skiptir miklu að fá húsin alveg
fullbúin hingað á staðinn, það á bara
eftir að setja þau upp,“ segir hann.
/MÞÞ
Stóðhesturinn Aðall tekur á móti hryssum í Hjarðarholti,
Stafholtstungum í sumar.
Aðall er með heiðursverðlaun fyrir afkvæmi, hefur sannað
sig sem kynbótahestur og alltaf fyljað mjög vel.
Stóðhesturinn Aljón tekur á móti hryssum í Nýjabæ í
sumar. Aljón gefur þæg hross, auðveld í tamningu og með
góð gangskil.
Aðall frá
Nýjabæ
Aðaleinkunn 8,64
F. Adam frá Meðalfelli
M. Furða frá Nýjabæ
Aljón frá
Nýjabæ
Aðaleinkunn 8,18
F. Fróði frá Staðartungu
M. Furða frá Nýjabæ
Upplýsingar gefur Olla og Guðbrandur í
síma 435-1233/866-0207, Hrefna (Aðall) í
síma 863-7364.
Varahlu�r i VOLVO
Vinnutæki
Verið er að byggja 520 fermetra hús
á tveimur hæðum við hlið Gamla
frystihússins. Mynd / Aðsend
Blábjörg Resort á Borgarfirði eystra:
Stækka hótel og heilsulind
Grunnnámskeið um rétta og örugga meðferð
á hífibúnaði.
Nánari upplýsingar og skráning eru á:
isfell.is/course eða skannaðu kóðann.
Þekking og þjónusta
Óseyrarbraut 28
Sími 5200 500
NETNÁMSKEIÐ
í meðferð á hífibúnaði