Bændablaðið - 23.06.2022, Page 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. júní 2022
Fyrir röskum tveimur árum
hófst umfangsmikið starf á
vegum mjólkuriðnaðarins sem
beindist að skoðun á innflutningi
landbúnaðarvara, eftirfylgni við-
skiptasamninga og fleiri þáttum
sem varða starfsumhverfi fram-
leiðslufyrirtækja í greininni.
Þann 21. febrúar sl. birti
Ríkisendurskoðun úttekt á starf-
semi Skattsins við framkvæmd
tollalaga. Í henni kemur fram
viðamikil gagnrýni á tollafram-
kvæmd Skattsins og er það álit
Ríkisendurskoðunar að dregið
hafi úr getu endurskoðunardeildar
Skattsins til að fást við stærri og
flóknari mál, sem hefur hindrað
að tollyfirvöld geti með forvirkum
hætti rækt hlutverk sitt sem skyldi.
Ríkisendurskoðun telur því
að endurskipuleggja þurfi og
efla tollasvið Skattsins. Um
tollframkvæmd landbúnaðarvara
segir svo: „Í ljósi þess hvernig
tollvernd er háttað á Íslandi
telur Ríkisendurskoðun eðlilegt
að strangar kröfur séu gerðar
til tollframkvæmdar jafnt af
hálfu innflytjenda og opinberra
tollyfirvalda og að áhættumat
Skattsins þurfi í meira mæli að taka
mið af þeim sérstöku sjónarmiðum
sem gilda um landbúnaðarafurðir og
innflutning matvæla, sem eru þær
einu vörur í tollskránni sem bera
toll. Efnainnihald og aðvinnsla getur
t.d. skorið úr um hvort matvæli
– sem að uppistöðu geta verið
landbúnaðarvörur sem framleiddar
eru á Íslandi og njóta tollverndar og
jafnvel framleiðslustuðnings – færist
í tollflokka þar sem tollar eru lágir
eða engir. Skiptir þá miklu að þeirri
tollvernd sem er til staðar í þágu
íslensks landbúnaðar sé beitt eins og
mælt er fyrir um í lögum og að hún
sé hvorki sniðgengin fyrir mistök
eða ásetning.“
Segja má að hér sé tekið undir
sjónarmið sem samtök bænda hafa
um árabil barist fyrir að koma á
framfæri. Ríkisendurskoðun tekur
raunar fram í skýrslu sinni að
gagnrýnivert væri „… með hvaða
hætti Skatturinn brást við athuga-
semdum hagsmunaaðila um
tollflokkun svokallaðs jurtaosts
á fyrri hluta ársins 2020, þá
sérstaklega í ljósi þess bindandi
álits sem Skatturinn hafði gefið
út um tollflokkun vörunnar. Í
framhaldinu voru athafnir Skattsins í
málinu þversagnakenndar og til þess
fallnar að skapa tortryggni gagnvart
tollframkvæmd.“
Dómsmál um tollflokkun
Í febrúar síðastliðnum, um svipað
leyti og fyrrnefnd skýrsla kom
út, staðfesti Landsréttur dóm
héraðsdóms um tollflokkun
svokallaðs „jurtaosts“. Umrædd
vara skyldi tollflokkast sem ostur
og bera tolla samkvæmt því.
Innflutningsfyrirtækið, sem tapaði
málinu fyrir Landsrétti, sótti
um leyfi til áfrýjunar málsins til
Hæstaréttar en því var synjað.
Í Viðskiptablaðinu þann 12. maí sl.
var síðan greint frá því að Skatturinn
hefur nú sent innflutningsfyrirtæki
endurákvörðun vegna innflutnings
á „jurtaosti“ á árunum 2019-
2020 að fjárhæð 151 milljónar
króna að viðbættu 50% álagi og
dráttarvöxtum. Ekki liggur fyrir
hvort innflutningsfyrirtækið hyggst
greiða rétt aðflutningsgjöld eftir
endurákvörðun Skattsins.
Þann 10. júní sl. dæmdi svo
Landsréttur í máli þar sem tekist
var á um hvort gera skyldi refsingu
fyrir að gefa upp ranga tollflokkun
á beinlausu nautakjöti. Í málinu
var starfsmaður fyrirtækis og
svo fyrirtækið sjálft ákært fyrir
að gefa upp rangt tollskrárnúmer
við innflutning nautakjöts í því
augnamiði að komast hjá greiðslu
tolla. Héraðsdómur hafði áður
sýknað í málinu en Landsréttur
sneri við dómi héraðsdóms í máli
starfsmannsins (ákæruvaldið féll
frá áfrýjun varðandi fyrirtækið).
Var starfsmaðurinn sakfelldur
fyrir brot gegn tollalögum með
því að hafa komið því til leiðar að
tollmiðlari tilgreindi kjötið sem
kjöt með beini, þegar það var í
raun beinlaust. Starfsmaðurinn var
dæmdur til að greiða 39,1 milljón
vegna málsins, tvöfalda þá upphæð
sem reyndist vera mismunurinn
á aðflutningsgjöldum beinlausa
kjötsins og kjötsins með beini.
Dómurinn er þó skilorðsbundinn
m.a. vegna þess hve langan tíma
rannsókn og meðferð málsins tók.
Einnig skal starfsmaðurinn greiða
sakarkostnað málsins, alls 2,6
milljónir króna.
Bindandi álit um
tollflokkun vara
Í fyrrnefndri skýrslu Ríkisendur-
skoðunar kom fram að á síðustu
þremur árum hafa verið gefin út 114
bindandi álit um tollflokkun vara úr
landbúnaðarköflum tollskrár.
Í skriflegu svari fjármálaráðherra
við fyrirspurn á Alþingi um þetta
efni þann 24. maí sl. kom fram
að tollyfirvöld hafi litið svo á
að almennar upplýsingar sem
koma fram í ákvörðunum um
bindandi álit falli undir aðgang
almennings að gögnum, sbr.
upplýsingalög, nr. 140/2012.
Tollayfirvöld hafa hins vegar
synjað aðgangi að upplýsingum
sem fram koma í ákvörðunum, t.d.
nafni fyrirspyrjanda, heimilisfangi,
undirskrift og upplýsingum um
viðskiptalegt auðkenni. Í svarinu
kom einnig fram að stefnt sé að
því að birta allar ákvarðanir um
bindandi álit á heimasíðu og í
veftollskrá á árinu 2024.
Í þessu sambandi ber að benda
á að ESB og Noregur birta á
opinberu vefsvæði öll bindandi
álit um tollflokkun enda verður að
teljast skýlaus skylda yfirvalda að
birta slík álit jafnóðum og þau eru
gefin út. Vísast þar meðal annars til
skuldbindinga sem leiða af GATT-
samkomulaginu og aðild Íslands að
Alþjóðaviðskiptastofnuninni, WTO.
Rétt er að það komi fram að
það kostaði nokkra eftirgangsmuni
og atbeina úrskurðarnefndar um
upplýsingamál að fá afrit af þessum
114 álitum, þar sem ofangreind atriði
höfðu verið máð út. Svörin bárust
þann 29. apríl sl. Í framhaldinu
hefur frekari fyrirspurnum verið
beint til Skattsins. Rétt er að taka
fram að sú vinna sem hefur farið
fram hefur fyrst og fremst beinst að
mjólkurafurðum en eins og nýlegur
dómur Landsréttar staðfestir, þá er
einnig pottur brotinn varðandi aðrar
landbúnaðarvörur.
Minni innflutningur unninna
kjötvara en flutt er út frá ESB
Þegar litið er til kjötvara kemur t.d.
í ljós að árin 2020 og 2021 voru
flutt inn yfir 1.000 tonn af unnum
kjötvörum, hvort ár (í kafla 1602
í tollskrá) frá ESB inn til Íslands.
Aftur á móti nam innflutningur
samkvæmt upplýsingum Hagstofu
Íslands 430,5 tonnum árið 2020 og
534 tonnum árið 2021. Tollfrjáls
kvóti fyrir unnar kjötvörur í
tollskrárnúmeri 1602 samkvæmt
viðskiptasamningi milli Íslands og
ESB nemur 400 tonnum fyrir þennan
vöruflokk. Á þetta misræmi var
reyndar þegar bent árið 2020 en árið
2019 sást viðlíka munur á þessum
upplýsingum, eða 645 tonnum meira
flutt út frá ESB en inn til Íslands af
unnum kjötvörum.
Af þessu má telja líklegt að
verulegt „svigrúm til umbóta“ sé
einnig til staðar fyrir ýmsar aðrar
búvörur. Það er því enn verk að vinna í
eftirfylgni með viðskiptasamningum
og tollaframkvæmd. Dæmin sanna
að virk hagsmunagæsla skiptir
grundvallarmáli í því sambandi.
Erna Bjarnadóttir
hagfræðingur hjá MS.
LESENDARÝNI
Sprett úr spori
Í síðustu viku skilaði spretthópur
af sér tillögum til að mæta
hækkunum á aðfangaverði til
landbúnaðar.
Ég gerði tillögur hópsins að
mínum og voru þær samþykktar
í ríkisstjórn. 2,5 milljörðum
kr. verður varið í stuðning við
landbúnað á þessu ári til viðbótar
við þær 650 milljónir kr. sem
greiddar voru út fyrr á árinu til þess
að mæta hækkunum á áburðarverði.
Ég hef staðið og mun standa með
bændum og innlendum landbúnaði.
Við höfum allar forsendur til þess
að landbúnaðurinn verði í sókn
á næstu árum og áratugum. Við
höfum mannauð, landnæði, orku
og vatn. Landbúnaðurinn er of
mikilvægur til að vera í vörn.
Ég stend með bændum
Þegar ég kom í ráðuneytið undir
lok síðasta árs voru blikur á lofti í
landbúnaðinum og höfðu verið um
nokkurt skeið. Orkuverðshækkanir
í heiminum höfðu leitt af sér miklar
verðhækkanir á áburði ásamt því
sem loftslagsbreytingar halda
áfram að leiða af sér vályndari
veður víða um heim. Þannig tók
Indland u-beygju á þessu ári, frá
því að ætla sér að flytja út milljónir
tonna af hveiti í það að setja
útflutningshömlur á hveiti vegna
mikillar hitabylgju og þurrka sem
talið er að hafi spillt allt að fjórðungi
af uppskerunni þar í landi. Síðan
hafa aðstæður orðið alvarlegri,
vaxandi dýrtíð er í heiminum
öllum og allflestir seðlabankar
heims hafið vaxtahækkunarferli.
Verðbólga hefur ekki verið
hærri í Bandaríkjunum og
Evrópusambandinu um áratuga-
skeið. Hér á Íslandi þurfum við að
horfa aftur til efnahagshrunsins til
þess að sjá sömu verðbólgutölur.
Fæðuöryggi er á dagskrá
Vegna innrásar Rússa í Úkraínu
er raunverulegt útlit fyrir að
hungursneyð blasi við fátækari
löndum, sem reiða sig á innflutta
kornvöru frá sléttum Úkraínu og
Rússlands. En vegna hafnarbanns
Rússa í Svartahafi er ekki korn flutt
út frá þeim höfnum Úkraínu sem enn
eru frjálsar. Þessir heimssögulegu
atburðir eru vendipunktur í
alþjóðastjórnmálunum og eðlilega
er umræða um fæðuöryggi með
öðrum hætti en áður. Þar hefur
staðan verið greind ágætlega
á Íslandi, með skýrslu frá
Landbúnaðarháskólanum á síðasta
ári og tillögum um aðgerðir til
að efla fæðuöryggi frá því í vor.
Unnið er að mati á neyðarbirgðaþörf
á vettvangi þjóðaröryggisráðs og
verkefnið tekið föstum tökum
í stjórnkerfinu.
Afkoma bænda
forsenda fæðuöryggis
Það sem ég tel að sé mest
aðkallandi þessi misserin og
snýr beint að mínu ráðuneyti
er tvennt. Það er annars vegar
afkoma bænda, sem öðru fremur
er forsenda fæðuöryggis. Hins
vegar er það efling á kornrækt á
Íslandi, en kornvara er forsenda
fyrir þeim framleiðsluháttum
sem við byggjum stóran hluta
af kjöt- og mjólkurframleiðslu
okkar á. Við framleiðum einn
hundraðasta af þessum grundvallar
aðföngum sjálf. Afleiðingar þessa
sjáum við nú þegar að miklar
hækkanir á kornvöru kippa
rekstrargrundvellinum undan
mörgum búum. Þeir íslensku
bændur sem rækta sitt korn sjálfir
hafa hins vegar verið í skjóli fyrir
hluta þessara hækkana.
Ræðum um grundvallaratriði
Bæði þessi atriði tel ég að þurfi
að skoða í samhengi við þá
umgjörð sem stjórnvöld hafa
mótað landbúnaðinum síðustu ár
og áratugi, búvörusamninga.
Búvörusamningarnir útdeila
rúmum 15 milljörðum kr., bróður -
parti er varið í sambland af
stuðningi beint við framleiðslu og
við ræktun.
Hluti þessa stuðnings gengur
kaupum og sölum og hefur gert
lengi. Í sauðfjárrækt er þessi
stuðningur aftengdur framleiðslu-
stýringu en í mjólkurframleiðslu
er gefinn út mjólkurkvóti á hverju
ári sem þarf að framleiða upp í
til þess að fá stuðninginn en til
viðbótar er óheimilt að selja mjólk
á innanlandsmarkaði sem ekki er
framleidd innan greiðslumarks,
nema það sé sérstaklega heimilað
vegna skorts.
Ég tel að markaðurinn geti
verið ágætis þjónn en sé afleitur
húsbóndi. Færa má góð rök fyrir
því að það að þessi viðskipti með
stuðningi hins opinbera séu að verða
dragbítur á þróun landbúnaðar.
Landbúnaður verður sífellt fjár-
magnsfrekari atvinnugrein, vegna
mikillar tæknivæðingar og
stækkunar búa. Það er því að mínu
viti óæskilegt að stór hluti af þeim
stuðningi sem veitt er til bænda fari
til fjármálastofnana, í formi vaxta,
og þeirra sem hætta búskap.
Þá er það einnig umhugsunarefni
hversu lítill stuðningur fer í ræktun
á korni, en á korni hvílir stór hluti af
fæðuöryggi okkar. Þessir þættir og
fleiri þarfnast umræðu í aðdraganda
endurskoðunar búvörusamninga.
Svandís Svavarsdóttir
matvælaráðherra.
Svandís Svavarsdóttir. Árangur hefur náðst í
bættri tollaframkvæmd
Erna Bjarnadóttir.
Mynd / Úr safni MS
Verð:
6.990 kr.
Verð:
8.990 kr.
Verð:
10.900 kr.
J2317 J2324 J2325
Við leggjum áherslu á góða
þjónustu við landsbyggðina.
Frábærar buxur
frá Jobman!
Vefverslun:
Khvinnufot.is
Durability at work since 1975
Litir
Nýjar vörur!
Nýjarvörur
Hnjápúða-
vasar
Teygjuefni
innra læra
Endurskin
Smíðavasar
AF VETTVANGI STJÓRNARRÁÐSINS