Bændablaðið - 07.07.2022, Síða 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
Margt ferðafólk sem lagt hefur
leið sína um Borgar fjörð á sumar
ferðalögum kannast við sölubásinn
við Sólbyrgi á Kleppjárnsreykjum
– þar sem hægt hefur verið að ná sér
meðal annars í nýtínd jarðarber,
kryddjurtir og salat.
Síðasta sumar færðist aftur líf í
hann, eftir að garðyrkjubændurnir
hættu nær alveg ræktun um tveggja
ára skeið – og fyrir skemmstu komu
fyrstu berin í básinn á þessu sumri.
Á árunum frá 2019 til 2020 stóð
básinn því að mestu auður, þegar
garðyrkjubændurnir Einar Pálsson
og Kristjana Jónsdóttir lögðu niður
alla jarðarberjaframleiðslu. Þau fóru
hins vegar aftur af stað á síðasta ári
og framleiða nú nokkur tonn á ári –
aðallega fyrir ferðafólkið sem á leið
um þorpið, að þeirra sögn.
Óhagstæð rekstrarskilyrði og tjón
Árin 2015 til 2018 voru þau stórhuga
og hófu að framleiða jarðarber allt
árið með öflugri heilsárs raflýsingu
enda seldist öll innlend framleiðsla
auðveldlega, en lentu þá í tjóni á
stöðinni í stórviðri auk þess sem
ytri rekstraraðstæður voru þeim
óhagstæðar. Einkum nefna þau
ósanngjörn kjör sem RARIK býður
upp á við dreifingu á rafmagni
til þeirra. Þau segja nú að jarðarberja
ræktunin sé orðin algjör auka bú
grein, enda sé vélaverkstæði rekið
á Sólbyrgi og þau annist einnig
skólaakstur. Segja megi að þau séu
komin aftur á þann upphafsreit frá
2013 þegar þau hófu ræktun, það
umfang sem þau hafi í raun alltaf
kunnað best við. „Núna höfum við
þetta þannig að við tvö ráðum við
þetta,“ segir Einar.
Heilmikil tækifæri í
berjaræktun á Íslandi
„Það eru heilmikil tækifæri í
berjaræktun á Íslandi og markaðurinn
kallar eftir innlendri framleiðslu. En
við hættum að vera með raflýsingu
meðal annars vegna þess að okkur
líkaði ekki ósveigjanleikinn hjá
RARIK,“ segir Einar. Kristjana
bætir við að þeim hafi verið boðið
upp á þau kjör að þurfa að borga
fyrir lágmarks dreifingarkostnað
rafmagns allt árið, þótt þau hefðu
jafnvel ekki hug á að notfæra sér
þjónustuna nema hluta af árinu.
„Á tímabili upp úr árinu
2017 varð svo líka nokkuð hörð
samkeppni á þessum markaði,
eftir að Costco kom inn á hann,
sem þrengdi talsvert að innlendu
framleiðslunni,“ segir Kristjana.
„Við ætlum því bara að einbeita
okkur að því að sinna ferðafólkinu
og nærsamfélaginu. Dóttir okkar
og tengdasonur hafa til dæmis
keypt Hönnubúð í Reykholtsdal og
við verðum með okkar vörur þar
til sölu,“ bætir hún við – en þau
eru með nokkra heimavinnslu úr
þeim afurðum sem eru framleiddar
í Sólbyrgi, meðal annars
jarðarberjasultu og sýróp.
Hún segir að þau séu í raun
komin í hring í sinni ræktun og
hugmyndafræðinni í kringum hana.
„Við hugum nú fyrst og fremst að
því að rækta fyrir fólkið sem við
eigum í beinum samskiptum við
– og það er miklu meira gefandi
heldur en að vera að standa í
einhverri verksmiðjuframleiðslu,
með tilheyrandi stanslausu streði.
Við verðum að gera það sem við
höfum gaman af að gera.“ /smh
FRÉTTIR
Sölubásinn við Sólbyrgi var fullur af
góðgæti þegar ljósmyndara bar að
garði. Myndir / smh
Einar Pálsson og Kristjana Jónsdóttir í Sólbyrgi á Kleppjárnsreykjum hafa gert ræktunina að aukabúgrein.
Fyrstu berin í Sólbyrgi þetta sumarið koma fremur seint, þar sem engin
raflýsing er nú í húsunum.
Jarðarberjaframleiðendurnir í Sólbyrgi komnir á upphafsreit:
Mest gefandi að rækta fyrir fólkið
sem við erum í beinum samskiptum við
– Gagnrýna dreifiveitu rafmagns fyrir ósanngjörn kjör
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
FRISTADS er ný vinnufatalína hjá
Dynjanda. Fallegur og vandaður
fatnaður sem hentar íslenskum
aðstæðum afar vel.
Kíktu í vefverslun okkar dynjandi.is
Umfangsmikil jarðgerðartilraun á Hvanneyri:
Gerjun til niðurbrots á lífrænu efni
virðist gagnleg og skilvirk leið
Nýlega voru birtar niðurstöður úr
umfangsmikilli jarðgerðartilraun
á Hvanneyri, þar sem prófuð
var ný aðferð við niðurbrot á
lífrænum úrgangi með loftfirrðri
gerjun (bokashi). Í niðurstöðum
verkefnisins, sem birtar eru á
vef Ráðgjafarmiðstöðvar land
búnaðarins (RML), kemur fram
að aðferðin virðist vera gagnleg og
skilvirk leið til að meðhöndla lífrænt
hráefni sem fellur til á Íslandi.
Aðferðin geti verið heppileg og
hagkvæm til að nýta næringarefnin
og orkuna í honum til jarðvegsbóta
eða annarra nytja. Þar segir enn
fremur að sökum þess hve ódýr þessi
vinnsla er þarf ekki að ráðast í neinar
stórframkvæmdir né sé þörf á flóknum
tækjabúnaði til vinnslunnar. Bokashi
aðferðin gæti hentað íslenskum
aðstæðum mjög vel enda fari ferlið
fram undir plasti þannig að efnið er
varið fyrir veðri og vindum og megi
geyma þar til það á að notast.
Lífrænn haugur á Hvanneyri
Um samstarfsverkefni er að ræða á
milli RML, Landbúnaðarháskóla
Íslands og Hvanneyrarbúsins. Um
meðhöndlun á úrgangi frá kúabúinu
og byggðakjarnanum á Hvanneyri
var að ræða. „Útbúinn var haugur
úr kúamykju og heyfyrningum,
ásamt nýslegnu grasi af grasflötum. Í
hauginn voru sett ýmis íblöndunarefni,
s.s. bentonít leir til að varðveita
næringarefni, skeljasandur til að halda
sýrustigi innan æskilegra marka og
sérstök örverublanda sem var úðað
yfir úrgangsmassann við uppsetningu
haugsins. Síðan var haugurinn
þjappaður til að koma sem mestu lofti
úr honum og plast strengt yfir til að
loka fyrir súrefni. Síðan var sterkur
dúkur settur yfir til að verja plastið
og efnið í haugnum fyrir mögulegum
skaða af völdum veðra og dýra. Prófun
var gerð á innihaldi næringarefna í
haugnum að gerjunarferlinu loknu,“
segir í lýsingu á framkvæmdinni.
Margvíslegt hagræði
af aðferðinni
Tilgangur verkefnisins var að kanna
virkni aðferðarinnar við íslenskar
aðstæður og afla reynslu sem
myndi nýtast við vinnslu og nýtingu
lífrænna úrgangsefna. Einnig að
kanna nýtingarmöguleika gerjaðs
lífræns úrgangsmassa til áburðar
og jarðvegsbóta og sem hráefni til
áframhaldandi vinnslu.
Höfundur skýrslunnar er Cornelis
Aart Meijles, ráðunautur RML á
rekstrar og umhverfissviði. /smh