Bændablaðið - 07.07.2022, Qupperneq 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
HAGTÖLUR LANDBÚNAÐARINS
Vísitala neysluverðs
Vísitala neysluverðs mælir í hverjum mánuði verðbreytingar á þeim vörum og þjónustu
sem myndar grunn vísitölunnar. Grunnur vísitölunnar eru áætluð ársútgjöld meðalheimilis
til kaupa á vöru og þjónustu.
Vísitalan er reiknuð samkvæmt alþjóðlegum stöðlum og er því samanburðarhæf milli landa.
Vísitala neyslusverðs í júní 2022 hækkar um 1,41% milli mánaða og er 547,1 stig (maí
1988 = 100). Án húsnæðis er hækkun vístölunnar 1,09%. Yfir 12 mánaða tímabil er hækkun
á vísitölu neysluverðs um 8,8% og án húsnæðis 6,5%. Matvara hækkar um 0,84% milli
mánaða. Yfir 12 mánaða tímabil hækkar matvara um 7,3%.
(Unnið upp úr gögnum frá Hagstofu Íslands)
95
100
105
110
115
Júl Ágú Sep Okt Nóv Des Jan Feb Mar Apr Maí Jún
2021 2022
Vísitala Matur Kjöt Mjólk Kornvörur
Vísitala
+ 8,8%
Matur
+7,3%
Kjöt
+ 12,2%
Mjólk
+ 9,6%
Kornvörur
+ 7,0%
Kjötframleiðsla á Íslandi
Heildarframleiðsla á kjöti síðustu 12 mánuði var 31.017 tonn og stendur
framleiðslan nánast í stað sé horft til næstu 12 mánaða á undan. Mest er
framleitt af kindakjöti, eða 9.394 tonn. Nánast sama magn er framleitt
af alifuglakjöti, eða um 9.381 tonn. Af nautakjöti eru framleidd 5.014
tonn og er þar einna mest aukning af öllum tegundum, eða 4,9% yfir
12 mánaða tímabil. Af svínakjöti eru framleidd 6.404 tonn sem er
-5,4% samdráttur yfir 12 mánaða tímabil.
Yfir 12 mánaða tímabil er mest selt af alifuglakjöti, um 8.984 tonn,
þar næst kemur kindakjöt með 6.829 tonn og þá svínakjöt með 6.406
tonn. Heildarsala á kjöti yfir 12 mánaða tímabil er 27.748 tonn sem
er 1,1% aukning miðað við sama tímabil.
Alls var heildarinnflutningur á kjötvörum árið 2021 um 4.288 tonn,
er þá ekki búið að leiðrétta fyrir vöru með/án beins.
(Unnið upp úr gögnum á Mælaborði landbúnaðarins og frá Hagstofu Íslands)
0
5.000
10.000
15.000
20.000
25.000
30.000
35.000
2000 2002 2004 2006 2008 2010 2012 2014 2016 2018 2020
To
nn
Þróun kjötframleiðslu frá 2000
Kindakjöt Nautakjöt Hrossakjöt Svínakjöt Alifuglakjöt
Kindakjöt
- 1,0%
9.394 tonn
Nautakjöt
+ 4,9%
5.014 tonn
Hrossakjöt
- 15,8%
823 tonn
Svínakjöt
- 5,4%
6.404 tonn
Alifuglakjöt
+ 2,8%
9.381 tonn
Framleiðsla yfir 12
mánaða tímabil
Losun gróðurhúsa-
lofttegunda
Samkvæmt bráðabirgðareikningum fyrir hagkerfisbundna losun gróðurhúsalofttegunda
á Íslandi eykst losun yfir 12 mánaða tímabil um 6,1% miðað við sama tímabil árið áður.
Árið 2021 var 12 mánaða losun í maí 4.522 kílótonn CO2 ígilda en er nú áætluð um
4.796 kílótonn.
Losun frá ræktun nytjajurta og búfjárrækt síðustu 12 mánuði er 658 kílótonn og eykst
um 4,6% miðað við sama tímabil fyrir ári síðan.
(Unnið upp úr gögnum frá Hagstofu Íslands)
0
1.000
2.000
3.000
4.000
5.000
6.000
7.000
8.000
2017 2018 2019 2020 2021 2022
Kí
ló
to
nn
C
O
2
íg
ild
i
Losun gróðurhúsalofttegund frá hagkerfi Íslands (AEA)
Landbúnaður Alls
Heildarlosun
4.796 (+6,1%)
Landbúnaður
658 (+4,6%)
Losun yfir 12 mánaða tímabil – Kílótonn CO2 ígilda
(maí 2022)