Bændablaðið - 07.07.2022, Page 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
Nú, sem fyrr, var keppnin um
norrænu matvælaverðlaunin
Embluna afar hörð, en verðlauna-
afhendingin fór fram við hátíðlega
athöfn í Osló þann 20. júní
síðastliðinn.
Keppnin, sem styrkt er af
Norrænu ráðherranefndinni, var
haldin í þriðja sinn og þrátt fyrir
afar frambærilega matvælafulltrúa
frá Íslandi komst enginn þeirra
á blað í þeim sjö flokkum sem
tilnefnt var í.
Að þessu sinni voru Jökla,
Nordic Wasabi, Gunnar Karl
Gíslason, Brúnastaðir ostagerð,
Matartíminn, Dominique Plédel
Jónsson og Vestmannaeyjar,
tilnefnd fyrir Ísland en sigurvegarar
í flokkunum sjö að þessu sinni voru
eftirtaldir:
Norrænn mataráfangastaður:
Kvitnes gård, Noregi
Á sveitabænum Kvitnes í Lofoten
í Norður-Noregi er boðið upp á
heimsklassa staðbundinn mat og
gistingu í ævintýralegu umhverfi.
Á matseðlinum er iðulega
staðbundið hráefni og vísað er í
sögu svæðisins. Hráefnið sem
framleitt er á veitingastaðnum
kemur aðallega frá býlinu en það
sem keypt er kemur eingöngu frá
nálægum framleiðendum.
Náið samstarf er við stað-
bundna framleiðendur og hafa
forsvarsmenn veitingastaðarins því
fulla stjórn á allri virðiskeðjunni
sem hefur skapað staðnum mikla
velgengni.
Norræn matvæli fyrir börn og
ungmenni: Geitmyra Credo, Noregi
Geitmyra Credo er útibú eins besta
og sjálfbærasta veitingastaðar
í Noregi, Credo í Þrándheimi.
Matreiðslumaðurinn Heidi Bjerkan
kýs að einbeita sér að börnum og
ungmennum og notar matargleðina
til að kenna þeim að verða hrifin af
mat og fræða þau um matvæli út frá
heildrænu sjónarhorni.
Þetta er til að auka skilning
þeirra á sjálfbærni, gott fæðuval
og hvernig á að hugsa um líf á
jörðinni. Í Credo eru námskeið fyrir
börn og ungmenni, starfsnám fyrir
fullorðna sem vinna með börnum,
námskeið fyrir ungbarnaforeldra,
tómstundanámskeið fyrir börn og
fjölskyldur, opna viðburði o.fl., o.fl.
Norrænn matarfrumkvöðull:
Undredal stølsysteri, Noregi
Dýpst inni í lengsta firði í heimi,
sem jafnframt er á heimsminjaskrá
Unesco, Nærøyfjörðurinn, er
Undredalurinn. Hefð er fyrir
ostagerð á svæðinu og þá
sérstaklega úr geitamjólk. Þorpið
sem liggur nálægt bænum hafði ekki
vegasamband fyrr en seint á níunda
áratugnum og því er hefð fyrir því
að vinna úr mjólkinni í sveitinni
þar sem bændur í nágrenninu
sameinuðust um ostagerð og
ostasölu.
Því má með sanni segja að
bændurnir í Undredal séu verndarar
menningarhefða og matararfleifðar.
Geiturnar eru á beit í bröttum
hlíðum við fjörðinn, í allt að 1.000
metra hæð yfir sjávarmáli, mjólkin
er ekki gerilsneydd og unnin í bæði
brúnan og hvítan ost.
LÍF&STARF
Embluverðlaunin:
Gróska í norrænni matvælavinnslu
og víngerðarlist
Erla Hjördís
Gunnarsdóttir
ehg@bondi.is
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Matreiðslumaðurinn Heidi Bjerkan hjá Geitmyra Credo kýs að einbeita sér að börnum og ungmennum og notar matargleðina til að kenna þeim að verða
hrifin af mat og fræða þau um matvæli út frá heildrænu sjónarhorni. Myndir / Espen Solli
Þrír danskir sigurvegarar, frá vinstri;: fulltrúi kirsuberjavínframleiðslunnar í
Frederiksdal, frá Græna safninu sem hlaut verðlaun fyrir miðlun og fulltrúi
The Junk Food Project sem útvegar heimilislausum einstaklingum máltíðir.
Norsku geitabændurnir í Undreal
hlutu verðlaunin Norænn matar-
frumkvöðull ársins.
Fulltrúar Geitmyra Credo í Noregi
voru að vonum kát með verðlaun sín.