Bændablaðið - 07.07.2022, Síða 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
LÍF&STARF
Hefur stundað tómataræktun í nær 60 ár í Reykholti í Borgarfirði:
„Enda eins og ég byrjaði með
föður mínum nítján ára gamall“
– Sveinn Björnsson er einn af fáum garðyrkjubændum sem ræktar beint í moldina og lýsir ekki í gróðurhúsum sínum
Sveinn Björnsson, garðyrkjubóndi
á Varmalandi í Reykholti,
hefur stundað tómataræktun í
nálægt 60 ár. Hann segist ekkert
endilega hafa ætlað að verða
garðyrkjubóndi, en þegar hann
byrjaði að hjálpa föður sínum,
Birni Ólafssyni, við stöðina,
nítján ára gamall, hafi örlög hans
verið ráðin.
„Ég er enn með hluta af
framleiðslunni á minni ábyrgð, en
Gunnhildur, yngsta dóttir mín, er
tekin við hluta af ræktuninni þetta
árið,“ segir Sveinn spurður um hvort
hann sé enn í ræktuninni af fullum
krafti. „Hún kom inn í þetta í vetur,
þegar það lá fyrir að ég þyrfti að
fara að hægja talsvert á mér. Það
mætti kannski segja að þetta sé
aðlögunarferli að því að ég hætti.“
Enda eins og ég byrjaði
Sveinn segir að hann sé í raun kominn
í þá stöðu sem hann var í þegar hann
byrjaði að hjálpa föður sínum á
fyrstu árunum. Nema nú hjálpi hann
dóttur sinni með allt umfangið – en
garðyrkjustöðin framleiddi alls um
60 tonn af tómötum þegar mest lét,
en nokkuð minna núna, á rúmlega
2.000 fermetra gólffleti í alls fjórum
gróðurhúsum.
„Gunnhildur hefur alltaf verið
hjá mér á sumrin og er reyndar
eina barnið af þeim fimm sem ég
á sem hefur áhuga á að stunda
þessa ræktun.
Þegar mikið hefur legið við
hafa öll börnin viljað hjálpa til,
sérstaklega við útplöntun og pottun.
En ég byrjaði sumsé tómata
ræktun hér 1964. Fyrir var eitt
gróðurhús sem faðir minn rak, en
svo byggðum við saman nýtt hús,
sem ég fékk í fangið og rak undir
eigin númeri.
Svo hjálpaði ég honum svona
eftir þörfum. Það má því segja að
ég endi hér eins og ég byrjaði.“
Einn af fáum sem ræktar í mold
og lýsir ekki
„Ég er einn af fáum tómata ræktendum
eftir sem ræktum beint í jörðina en
ekki í steinull eða vikri eins og nú
tíðkast gjarnan. Ég er heldur ekki með
lýsingu, nema í uppeldinu, þannig
að framleiðsluferillinn er allur mun
hægari og mun minni uppskera. Ég
þarf svo að sótthreinsa moldina með
heitu vatni eftir ræktunartímabilið.
Þeir sem framleiða hvað mest ná
allt að þrefalt meiri uppskeru en ég,
en þeir þurfa að skipta út plöntum
nokkrum sinnum á ári til að halda
uppi framleiðslunni,“ segir Sveinn.
Vistvæn ræktun
Í næsta nágrenni við Varmaland eru
tveir kunnir hverir; Skrifla og Dynkur.
Sá fyrrnefndi er þekktur af því að frá
honum var – og er enn – heitu vatni
veitt í Snorralaug. Gróðurhúsin eru
hins vegar hituð með jarðhita úr
borholu á staðnum. Sveinn segir að
þegar borað var eftir heitu vatni á
svæðinu hafi þeir nánast horfið, en
þeir voru áður fyrr goshverir.
Vistvæn ræktun er á Varmalandi,
býflugur sjá um frjóvgun plantna og
lífrænum vörnum er beitt.
„Ræktunarferillinn hjá mér er
alltaf svipaður frá ári til árs; ég
reyni alltaf að sá í síðustu vikunni
í desember og planta út í kringum
10. febrúar. Það skilar okkur oftast
fyrstu rauðu tómötunum síðast í mars
og svo jafnt og þétt fram í miðjan
nóvember. Þá hendi ég plöntunum
út og þríf húsin.
Það má segja að þetta sé gamla
lagið sem ég hef haldið mig við. Ég
hef ekki fundið neina sérstaka þörf
á að breyta þessu, það hefði líka
verið talsvert umstang miðað við
húsakostinn í dag. Ef ég ætlaði að fara
að lýsa til dæmis þá þyrfti ég að fara
að tjakka upp húsin og breyta þeim
til að skapa fullnægjandi aðstöðu til
lýsingarinnar.“
Stundum hefur verið talað um að
tómatar sem vaxa beint í moldina séu
bragðbetri en aðrir tómatar. Sveinn
segir að í þeim efnum sé alls kyns
sérviska. „Sumir segja að þeir séu
miklu betri úr jarðvegi, en aðrir eru
ekki sammála því.“
Yfirburðir íslenska vatnsins
Sveinn segir að hvað sem bragðgæðum
líði á milli garð yrkjustöðva, sé ljóst
að íslensku tómatarnir hafi yfirburði
í íslenska vatninu þegar kemur að
samkeppninni við innfluttu vörurnar.
„Tómaturinn er að langmestu
leyti vatn og ef það er í hæsta
gæðaflokki – eins og okkar er –
þá eru ágætir möguleikar á því að
uppskeran verði það líka. Loftgæðin
hér skipta auðvitað líka miklu máli.“
Á Varmalandi hafa frá byrjun verið
ræktaðir tómatar sem segja má að séu
hefðbundnir í lit, lögun og stærð, þó
þeir geti verið aðeins misstórir.
„Ég man að við vorum fyrst með
danskar tegundir en síðan margar
sortir af tómötum, því tilfellið er
að þær duga ekki mjög lengi heldur
úrkynjast. Maður er líka alltaf að leita
að nýjum sortum, þannig að þær sem
við vorum með fyrir kannski tíu árum
eru ekkert til í dag og jafnvel ekkert
fræræktaðar. En þetta lítur allt eins
út, má segja.“
Miklar breytingar á húsakosti
Þegar Sveinn lítur um farinn veg
segir hann að breytingarnar hafi orðið
mestar á aðstöðu hjá þeim á fyrstu
árunum, en síðan hefur þetta verið
svipað á seinni hlutanum.
„Breyting á húsakostinum
hefur þannig verið kannski mesta
byltingin og auðvitað kynbæturnar
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
Feðginin Sveinn Björnsson og Gunnhildur Sveinsdóttir standa nú saman að rekstri garðyrkjustöðvarinnar á Varmalandi. Myndir / smh
Sigurður Már
Harðarson
smh@bondi.is