Bændablaðið - 07.07.2022, Blaðsíða 39
39Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
Æðarbændur!
Vantar æðardún til sölu
Höfum aðgang að góðum
og viðurkenndum
hreinsunaraðilum.
Stórhöfða 17, 110 Reykjavík 861 6264 elias@egheild.is egheild.is
S: 5272600 - www.velavit.is
Varahlutir - Viðgerðir
Vélavit
Sala Þjónusta
Útvegum dekk undir vinnuvélar
og landbúnaðarvélar
S: 527 600 - w .velavit
Hundurinn Pipar og heimiliskötturinn á Skorrastað II í Fjarðabyggð í
fanginu á heimasætunni Sunnu Júlíu Þórðardóttur.
„Það hefur gengið ótrúlega vel í sumar, við höfum fengið fullt, fullt
af ferðamönnum til okkar, bæði í gistingu og svo bara til að skoða
dýrin hjá okkur. Það eru allir mjög ánægðir og finnst gaman að fá að
halda á kettlingum eða kanínunum, sjá hænurnar eða fá að klappa
geitunum og kiðlingunum. Svo er meira en nóg að gera í hestaleigunni
okkar,“ segir Sunna Júlía en Skorrastað II er að finna á Norðfirði, sjö
kílómetrum frá Neskaupstað. Þar er rekin ferðaþjónusta og dýragarður.
Mynd og texti / MHH
Bændablaðinu barst kveðja frá ungum lesanda í Skagafirðinum,
henni Bjarkeyju Dalrós, en greinilegt er að hún er efnilegur
ljósmyndari. Við gefum henni orðið:
„Ég heiti Bjarkey Dalrós Rúnarsdóttir og ég er 14 ára og bý
á Grindum í Deildardal. Mig langaði að senda ykkur mynd sem
ég tók í reiðtúr á skagfirsku sumarkvöldi. Fyrir miðju er fjallið
Ennishnjúkur og til vinstri við hann er Unadalur og Deildardalur
til hægri. Hesturinn aftur á móti heitir Bragur frá Grindum og er 6
vetra gamall :)“
Bjarkeyju þökkum við kveðjuna, en gaman er að geta þess að
fjallið Ennishnjúkur sem blasir hér við hátt og tignarlegt, rúmlega
700 metrar, er vinsælt til gönguferða. Fyrir nokkrum árum var sett
upplýsingaskilti við upphaf gönguleiðar á Ennishnjúk, en það má
finna við bæinn Enni í Unadal. Fjallið er eitt þeirra sem má finna í
bókinni Íslensk Bæjarfjöll. /SP
Ennishnjúkur blasir við
Mynd / Bjarkey Dalrós Rúnarsdóttir