Bændablaðið - 07.07.2022, Blaðsíða 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
Streymi heildverslun ehf.
Goðanesi 4
603 Akureyri
S
N
V
588 2544
streymi@streymi.is
www.streymi.is
| S t r ú k t ú r e h f | w w w . s t r u k t u r . i s | s t r u k t u r @ s t r u k t u r . i s |
| B æ j a r f l ö t 9 | 1 1 2 R e y k j a v í k | S í m i : 5 8 8 6 6 4 0 |
Límtré-Timbureiningar
Stálgrind
Yleiningar
PIR
Steinull
118 stig og 22 dæmd afkvæmi og
Hreyfill frá Vorsabæ II með 115 stig
í kynbótamati aðaleinkunnar og 126
stig án skeiðs og 26 sýnd afkvæmi.
Álfaklettur stóð efstur
hrossa í einstaklingssýningum á
Landsýningu kynbótahrossa árið
2020. Að honum standa sterkar ættir
og skyld hross allt í kring verið afar
árangurrík bæði á kynbótabrautinni
og í keppni. Álfaklettur er yngstur
fyrstu verðlauna afkvæmahesta á
landsmótinu eða níu vetra. Hann
er með 122 stig í kynbótamati
sköpulags, 123 stig fyrir hæfileika
og 118 stig fyrir hæfileika án skeiðs.
Þá er hefur hann skilað um 83%
tækra hryssna í einstaklingsdóm og
er með 121 stig fyrir mætingu.
Vert er að minnast í þessu
samhengi á Fork frá Breiðabólsstað
en hann hefur skilað 92% fæddra
hryssna sem komnar eru á
sýningaraldur í dóm og er með 129
stig í kynbótamati mætingar. Hann
og Álfaklettur eru afar jafnir að
stigum í kynbótamatinu og verður
áhugavert að sjá hvernig frekari
framræktun þeirra verður.
Hæstur afkvæmahesta miðað
við aðaleinkunn kynbótamats án
skeiðs með 127 stig er Hringur
frá Gunnarsstöðum I og er hann
að skila frábærum og framháum
klárhrossum. Fyrir kynbótamat
skeiðs stendur efstur Knár frá Ytra-
Vallholti með 131 stig en annars
eru flestir hestanna í flokki fyrstu
verðlauna afkvæmastóðhesta að
skila skeiðhæfileikum.
Öryggi kynbótamats er yfirleitt
komið í 90-94% þegar hesturinn
á fimmtán dæmd afkvæmi og því
ljóst að þessi hópur afkvæma gefur
nokkuð góða mynd af kynbótagildi
stóðhestsins. Talsverð breyting
verður oft á matinu frá því að
hestar koma fram sem einstaklingar
og þar til þeir ná lágmörkum til
fyrstu afkvæmaverðlauna. Fjölgun
á afkvæmum hests til þessara
verðlauna hefði það með sér í för
að það þyrfti að bíða lengur eftir því
að sjá afkvæmahópa þeirra en mikið
verðmæti er að fá mat á gildi hesta
til framræktunar snemma, bæði til
þess að sjá hversu vel þeir gefa og á
hvers konar hryssur þeir passa best.
Fljótlega mun verða reiknað út
kynbótamat á keppniseiginleikum
sem verður mikilvæg og þörf
viðbót. Þegar rýnt er í gögnin sýnir
það sig að árangur á keppnis- og
kynbótavellinum er nátengd.
Flestir hestanna sem taka við
afkvæmaverðlaunum í ár hafa
verið að standa sig gríðarlega vel í
keppni sjálfir á undanförnum árum,
auk þess að skila afkvæmum sínum
þangað. Þetta er afar ánægjuleg
staða enda viljum við að okkar
bestu kynbótahestar standi sig
vel á mörgum sviðum og gefi
margvíslegar verðmætar hestgerðir
sem nýtast í fjölmörg hlutverk, hvort
sem það er til almennra útreiða eða í
hinar ýmsu keppnisgreinar.
Listar yfir afkvæmi sem koma
til með að fylgja feðrum sínum á
Landsmóti liggja fyrir og ljóst er
að fríður flokkur afkvæma mun
fylgja heiðursverðlaunahestunum
þegar þeir mæta til sýningar á
laugardeginum 9. júlí og svo fyrstu
verðlaunahestarnir á föstudeginum
8. júlí. Það stefnir í mikla veislu á
Landsmóti á Gaddstaðaflötum þar
sem glæsileg kynbótahross munu
koma fram í öllum flokkum.
Afkvæmahestar á Landsmóti
Lágmörk vegna afkvæmasýninga á
stóðhestum miðast við kynbótamat
aðaleinkunnar og kynbótamat
aðaleinkunnar án skeiðs eins
og það reiknast að afloknum
kynbótasýningum vorið 2022 og
fjölda dæmdra afkvæma.
Öll dæmd afkvæmi hestanna
liggja til grundvallar kynbótamatinu.
Öll afkvæmi sem fylgja hestunum
skulu vera dæmd í kynbótadómi.
Heiðursverðlaunahestum skulu
fylgja 10 afkvæmi í sýningu en 1.
verðlauna hestum 6 afkvæmi.
Til að hljóta fyrstu verðlaun fyrir
afkvæmi þarf hesturinn að eiga
a.m.k. 15 dæmd afkvæmi og hafa
að lágmarki 118 stig í kynbótamati
aðaleinkunnar eða aðaleinkunnar án
skeiðs en til að hljóta heiðursverðlaun
fyrir afkvæmi þarf að eiga a.m.k. 50
dæmd afkvæmi og hafa að lágmarki
118 stig. Röðun hesta miðast við
kynbótamat aðaleinkunnar.
Aðeins aukastafir kynbótamats aðaleinkunnar skilja að Sjóð og Jarl frá
Árbæjarhjáleigu II sem einnig hlýtur heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Hann
er hér sýndur af Árna Birni Pálssyni. Mynd / Aðsend