Bændablaðið - 07.07.2022, Blaðsíða 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
Nýverið var haldið hið árlega
Fagþing nautgriparæktarinnar í
Danmörku, eða „Kvægkongres“,
en þeir sem til þekkja vita að
þetta er einn helsti vettvangur
þekkingarmiðlunar varðandi
nautgriparækt í norðanverðri
Evrópu.
Alls voru flutt 70 erindi að þessu
sinni í 11 málstofum og verður hér
gerð grein fyrir nokkrum af þeim
fróðlegu erindum sem flutt voru í
nokkrum af málstofum fagþingsins.
Fyrsti hluti umfjöllunar um þetta
fagþing var birtur í síðasta tölublaði
Bændablaðsins.
Samfélagið
Málstofan fjallaði um þá fjölmörgu
snertifleti sem landbúnaður og
samfélagið í heild sinni hefur,
en vegna þátttöku Danmerkur
í Evrópusambandinu eru þeir
snertifletir bæði innan Danmerkur
og einnig þvert yfir Evrópu.
Endurskoðun
landbúnaðarsamnings
Nú stendur yfir endurskoðun á
landbúnaðarsamningi Evrópu
sambandsins, sem mun gilda 2023
2027, en nýr samningur er talinn muni
innihalda þónokkrar kerfisbreytingar
fyrir bændur í löndum Evrópu
sambandsins, aðallega í átt að enn
frekari aftengingu stuðnings við
framleiðslu. Þar er mest horft til
þess að stuðningur breytist yfir í
grænar greiðslur, þ.e. stuðning við
breytta búskaparhætti sem snúa
að því að efla náttúru og draga úr
umhverfisáhrifum landbúnaðar innan
Evrópusambandsins.
Núverandi samningur inniheldur
raunar margs konar kröfur í þá veru,
svo sem bann við sinubruna, styrkir
veittir ef tún fá að vera óhreyfð
lengi, þ.e. ekki endurræktuð, styrkir
til verndunar votlendis og fleira í þá
veru. Dönsku bændasamtökin, L&F,
eru nú aðallega að vinna í því að fá
rýmkun á kröfunum og að aðlaga
megi þær betur dönskum landbúnaði
en á móti þá eru margar stofnanir og
félagasamtök í Evrópu sem berjast
fyrir því að herða kröfurnar verulega.
Þetta kom m.a. fram í erindi Niels
Lindberg Madsen, sem er yfirmaður
Evrópumála hjá L&F. Dæmi um þetta
er t.d. að hvert bú má ekki nýta 4%
af ræktarlandi sínu til framleiðslu
til að geta fengið styrki en inni í því
hefur hingað til ekki talist t.d. land
sem er notað fyrir skjólbelti. Reglur
Evrópusambandsins hafa litið svo á
að skjólbelti sé nýting á ræktarlandi
en L&F vilja fá þessari skilgreiningu
breytt svo dæmi sé tekið.
Þá stefnir í að heildarstuðningur
við nautgriparækt sem slíka muni
dragast saman á næsta samningstíma
og t.d. má ætla að gripagreiðslur
mjólkurkúa verði aflagðar að fullu
árið 2026. Aftur á móti munu
greiðslur fyrir sláturgripi hækka
nokkuð. Þá geta bændur, eins og áður
segir, sótt um stuðningsgreiðslur til
þess að fara í aðgerðir til að draga úr
sótspori búa sinna t.d. með ræktun
plantna sem þurfa minni áburð
eða meðhöndlun. Þess má geta
að heildarstuðningur við danska
kúabændur í mjólkurframleiðslu, þ.e.
þegar allar stuðningsgreiðslur í öllu
formi eru taldar saman, er í dag um
56% af ársveltu búanna.
3% til ungra bænda
Af heildarstuðningsgreiðslum
munu 3% þeirra fara til ungra
bænda, þ.e. vegna kaupa á búum
eða kynslóðaskipta. Þannig fá
ungbændur t.d. eingreiðslu upp á 14
milljónir íslenskra króna þegar þeir
hefja búskap en gerð er krafa um
að umsækjandi sé með búfræðipróf
og yngri en 40 ára. Þá er möguleiki
á að fá frekari fjárfestingarstyrk ef
afgangur er á reiknuðum heildarstyrk
til landbúnaðarins. Reglurnar eru
þannig að allir bændur þurfa að
sækja sérstaklega um styrki og ekkert
gerist sjálfkrafa. Ef einhverjir sækja
ekki um, eða minna er sótt í ákveðin
verkefni sem hafa fast fjármagn, er
hægt að veita því sem umfram er til
ungbænda!
Nautgriparæktin verður
áfram mikilvæg
Annað ekki síður áhugavert
erindi í þessari málstofu flutti
Jesper Bo Jensen, en hann er með
þann einstaka starfstitil að vera
framtíðarrannsakandi! Hann hefur
kafað ofan í það hvernig vænta megi
þróunar á nautgriparækt í Danmörku
á komandi árum og áratugum og í
stuttu máli var hann bjartsýnn fyrir
hönd danskra nautgripabænda.
Vissulega hafi ýmislegt gerst
undanfarið, s.s. Covid19 og
stríðið í Úkraínu, sem hafi leitt til
nokkuð ófyrirsjáanlegra breytinga
á mörkuðum en heildarþróunin
sé áfram í sömu átt. Fólki fjölgar
í heiminum og á sama tíma eykst
Á FAGLEGUM NÓTUM
Snorri Sigurðsson
snorri.sigurdsson@outlook.com
Fagþing nautgriparæktarinnar
í Danmörku – annar hluti
Frá 1. júlí 2024 verða rimlastíur, sem ekki eru með sérstöku legurými, bannaðar í Danmörku. Myndir / Aðsendar
Segull sem er sérstaklega hannaður fyrir vömb kúa. Á myndinni sést hvað hafði
safnast í segulinn þegar kúnni var slátrað.
Starfsemi RML
– Fyrsti hluti
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
hefur það meginhlutverk
að vera ráðgjafarfyrirtæki í
landbúnaði og er að fullu í eigu
Bændasamtakanna og þar af
leiðandi bænda og hefur sem slíkt
ansi víðtækt hluverk.
Auk þess að veita bændum
hlutlausa og óháða ráðgjöf sinnir
RML ráðgjöf til ýmissa hagaðila
svo sem ríkisstofnana, ráðuneyta og
einkaaðila. Til að geta sinnt þessu
hlutverki þarf fyrirtækið að búa að
fjölbreyttum mannauði, fólki með
sérþekkingu á sínu sviði, fólki sem
hefur aðgang að nýjustu þekkingu og
getur miðlað upplýsingum.
RML heldur utan um öll
skýrsluhaldskerfi Bændasamtakanna
en þar á landbúnaðurinn gríðar
legt gagnasafn sem nýtist við
upplýsingajöf, ráðgjöf og við
kynbótastarfið. Starfsemi RML og
fræðastofnana landbúnaðarins er
nátengd og í gegnum tíðina hafa
þessir aðilar lagt sig fram um að
halda uppi góðu samstarfi með
ýmiss konar samvinnu og samtali.
Það er mikilvægt að þessar stoðir
landbúnaðarins vinni saman með
bændum við þær krefjandi aðstæður
sem íslenskir bændur búa við, ekki
síst um þessar mundir.
RML hefur frá stofnun þurft
að taka mið af þeim hröðu
breytingum sem eru að verða
bæði í samfélaginu almennt sem
og starfsumhverfi landbúnaðarins.
Aukin áhersla á rafræn samskipti,
ör tækniþróun og aukin áhersla á
umhverfis og loftslagsmál eru
dæmi um slíkt. Einnig má nefna
það mikla magn gagna sem verður
til bæði í gegnum skýrsluhald og
með aukinni notkun tölvustýrðs
vélbúnaðar við landbúnaðarstörf.
Þessi gagnasöfnun og nýting þessara
gagna skapar hvort tveggja í senn,
stórar áskoranir og mikil tækifæri
Rafræn samskipti auka mögu
leika á því að ráðgjöf sé sinnt hratt
og vel þrátt fyrir fjarlægðir. Þrátt
fyrir að ákveðinn hluti þjónustu og
hluti ráðgjafar geti farið fram rafrænt
er það mikilvægt að ráðunautar
RML þekki aðstæður vel og séu
í góðum tengslum við bændur.
Starfsfólk RML er staðsett á um
tólf stöðum víðs vegar um landið og
býr að yfirgripsmikilli þekkingu á
staðháttum og hefur mikla tengingu
við bændur. Engu að síður viljum við
gjarnan gera enn betur í þeim efnum
og það kom fram í þjónustukönnun
sem við gerðum nýlega að bændur
vilja mjög gjarnan að ráðgjöf
RML sé almennt aðgengilegri og
eftirfylgni sé meiri. Um 430 bændur
tóku þátt í þjónustukönnuninni og
við munum nýta þær upplýsingar
til að efla þá starfsemi sem bændur
eru með beinum hætti að óska eftir.
Rekstur RML hefur gengið
ágætlega þrátt fyrir að ríkisframlag
til ráðgjafarþjónustu hafi minnkað
ár frá ári. Nú er svo komið að innan
við helmingur tekna RML kemur
í gegnum framlög frá ríkinu. Það
skýtur nokkuð skökku við að þrátt
fyrir þær áskoranir sem blasa
við íslenskum landbúnaði þá sé
framlag til ráðgjafarþjónustu að
minnka. Rétt er þó að taka fram að
ríkið og ráðuneyti þess hafa verið
að styrkja starfsemi RML með
beinum samningum um ákveðinn
verkefni, svo sem loftslags og
umhverfisverkefni. Þau verkefni
nýtast við þekkingaröflun en ekki
síður við miðlun nýrrar þekkingar
beint til bænda og annarra hagaðila.
Samningar og þróunarverkefni
sem RML hafa tekið að sér voru á
síðasta ári um 14 prósent af tekjum
fyrirtækisins og hafa farið vaxandi.
Beinar tekjur vegna ráðgjafar, sölu
á þjónustu, og notendagjöld vegna
hugbúnaðar eru á milli þrjátíu og
fjörutíu prósent af tekjum. Gera
má ráð fyrir að allavega hluti þessa
tekjustofns haldi áfram að minnka
hlutfallslega þar sem bændum er að
fækka, nema það takist að snúa þeirri
þróun við.
Starfsemi RML þarf að taka mið
af þessum áskorunum sem raktar
hafa verið hér á undan. Fram kom í
þjónustukönnun, sem ég minntist á
hér fyrr í greininni, að við þyrftum að
gera betur í að koma upplýsingum á
framfæri um fyrirtækið og sem einn
liður í því mun ég fara í nokkrum
greinum yfir helstu starfsemi RML
í næstu tölublöðum Bændablaðsins.
Karvel Karvelsson,
framkvæmdastjóri RML.
Karvel Karvelsson.