Bændablaðið - 07.07.2022, Síða 57
57 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
Sokkarnir eru prjónaðir með stroffprjóni og fölskum
köðlum úr Drops Nord. Garnið verður á 30% afslætti
hjá okkur frá 8.-31. júlí.
Skóstærð: 35/37 (38/40) 41/43
Lengd fótar: ca 22 (24) 27 cm.
Hæð á sokk niður að hæl: ca 12 cm í öllum stærðum.
Garn: DROPS NORD (fæst í Handverkskúnst)
100 (100) 100 g, litur á mynd nr 18, gulur
Prjónfesta: 26 lykkjur með sléttu prjóni = 10 cm.
Prjónar: sokkaprjónar nr 2,5
Mynstur: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.
Hælúrtaka
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 8 (8) 9 lykkjur eru eftir, lyftið
næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni
yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 8 (8) 9 lykkjur eru eftir,
lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið
lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7 (7) 8 lykkjur eru eftir, lyftið
næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni
yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7 (7) 8 lykkjur eru eftir,
lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið
lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu.
Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja
færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 13 (15) 17 lykkjur eru eftir á prjóni.
ÚRTAKA-2 (á við um tá):
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt
saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja),
takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt,
steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri við
prjónamerki og alls 4 lykkjur færri í umferð).
SOKKUR: Fitjið upp 66 (68) 72 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með Nord. Byrjun á
umferð = mitt að aftan. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig:
*1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt*, prjónið frá *-* yfir fyrstu 14 (14) 16 lykkjur,
prjónið A.1 (= 39 lykkjur), *1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið*, prjónið frá *-* yfir
næstu 12 (14) 16 lykkjur og endið með 1 lykkja slétt. Haldið svona áfram með
stroffprjón þar til A.1 hefur verið prjónað til loka. Fækkið um 2 lykkju í síðustu
umferð í mynsturteikningu A.1 = 64 (66) 70 lykkjur. Stykkið mælist ca 3 cm.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið stroffprjón eins og áður yfir fyrstu 14
(14) 16 lykkjur, prjónið A.2 (= 37 lykkjur) og prjónið stroffprjón eins og áður yfir
þær 13 (15) 17 lykkjur sem eftir eru. Haldið svona áfram með mynstur þar til
stykkið mælist 12 cm í öllum stærðum. Prjónið nú hæl þannig: Haldið eftir fyrstu
14 (14) 16 lykkjur og síðustu 13 (15) 17 lykkjur á prjóni fyrir hæl = 27 (29) 33
hællykkjur. Setjið þær 37 lykkjur sem eftir eru mitt á fæti á þráð eða látið þær
hvíla á prjóni. Prjónið stroffprjón eins og áður fram og til baka yfir hællykkjur
og fitjið jafnframt upp 1 nýja lykkju í hvorri hlið í fyrstu umferð (= kantlykkjur)
= 29 (31) 35 hællykkjur.
Prjónið þar til hællinn mælist 5 (5½) 6 cm og fellið jafnframt af 1 kantlykkju í
hvorri hlið í síðustu umferð = 27 (29) 33 hællykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í
síðustu umferð – prjónamerkið er notað síðar til að mæla lengd á fæti frá. Prjónið
HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð
þannig: Prjónið sléttprjón yfir 13 (15) 17 hællykkjur, prjónið upp 13 (14) 16
lykkjur meðfram hlið á hæl innan við 1 kantlykkju, setjið 1 prjónamerki, prjónið
A.2 eins og áður yfir 37 lykkjur ofan á fæti, setjið 1 prjónamerki og prjónið upp
13 (14) 16 lykkjur meðfram hinni hlið á hæl innan við 1 kantlykkju = 76 (80)
86 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur með A.2 ofan á fæti og sléttprjón
yfir þær lykkjur sem eftir eru undir fæti. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað núna
hvoru megin við 37 lykkjur á milli prjónamerkja á fæti þannig: Prjónið 2 síðustu
lykkjur á undan fyrra prjónamerki á fæti snúnar slétt saman og prjónið 2 fyrstu
lykkjur á eftir seinna prjónamerki á fæti slétt saman.
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 12 (12) 13 sinnum = 52 (56)
60 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 17 (19) 21 cm undir fæti frá prjónamerki
á hæl (nú eru eftir ca 5 (5) 6 cm til loka máls, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að
óskaðri lengd). Takið frá öll prjónamerkin í stykkinu og setjið 1 nýtt prjónamerki
í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 26 (28) 30 lykkjur bæði ofan á fæti
og undir fæti. Prjónið sléttprjón hringinn og fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin
við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona
í annarri hverri umferð alls 7 (6) 8 sinnum og síðan í hverri umferð alls 4 (6) 5
sinnum = 8 lykkjur eftir í öllum stærðum.
Klippið þráðinn frá, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði
og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22 (24) 27 cm undir fæti frá prjónamerki á
hæl. Prjónið hinn sokkinn alveg eins.
Prjónakveðja,
Handverkskúnst, www.garn.is
HANNYRÐAHORNIÐ
Spennandi að ferðast
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Hamrahlíð 17
Hús Blindrafélagsins
Sími • 552-2002
ÓDÝR
Margskipt gleraugu
Verð 39.900 kr
Margskipt gler frá Essilor (afgreiðslutími +/- tvær vikur)
Gleraugu með glampa og rispuvörn
Sérsmíðum samdægurs í
styrk +/- 6,0 með cyl. til 2,0
19.900 kr.
Margskipt gleraugu
Margskipt gler frá Essilor
(afgreiðslutími +/- tv r vikur)
39.900 kr.
gleraugu
umgjörð og gler
Þórdís Inga er hress og fjörug stúlka
sem finnst gaman að föndra, syngja
og dansa. Hún er mikil félagsvera
sem nýtur þess að leika við vini sína,
heimsækja langafa sinn í Borgarnesi
og fá bleika möndluköku!
Nafn: Þórdís Inga.
Aldur: 10 ára.
Stjörnumerki: Tvíburi.
Búseta: Hlíðarklettur.
Skóli/Leikskóli: Kleppjárnsreykir.
Skemmtilegast í skólanum:
Heimilisfræði og smíði.
Hver eru áhugamálin þín:
Fótbolti.
Uppáhaldsdýr: hundar og
sebrahestar.
Uppáhaldsmatur: Brunch og
hamborgari.
Uppáhaldslag: Booty call með
little sis nora.
Uppáhaldsbíómynd: Moulin
Rouge.
Fyrsta minning: Ég fékk
einu sinni að fara í sturtu í
leikskólanum.
Hvað ætlar þú að verða
þegar þú verður stór: Málari,
hárgreiðslukona eða dansari.
Hvað er það mest spennandi sem
þú hefur gert: Fara til útlanda og
í útilegu.
Hvað ætlar þú að gera í sumar:
Fara í útilegur og gera eitthvað
skemmtilegt.
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
SUDOKUÞRAUTIR Bændablaðsins
Þung Þyngst
Létt Miðlungs
Fallegir sokkar úr Drops Nord
Sumarsmellur
Stiga Combi 748 S
• Heimilissláttuvél með 140cc mótor
• Notendavæn drifvél
• Einstök vél
Verð kr. 125.000 m/vsk.
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
40 ár á Íslandi