Bændablaðið - 12.05.2022, Síða 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 2022 7
LÍF&STARF
Í síðasta þætti var ögn kynntur til
sögu Sveinn Skagfjörð Pálmason,
kenndur við Reykjavelli í Skagafirði.
Úr nýlega út kominni ljóðabók Sveins,
„400 ferðavísur“, er að finna næstu tvær
vísur. Sveinn var spurður á samkomu
hagyrðinga hvaða hvatir bærðust með
honum við neyslu áfengis:
Við að drekka vínin góð
vakna hvatir sátta.
Þá er gott að faðma fljóð,
- fara svo að hátta.
Spurður svo um mikilvægustu dyggðir
lífsins svaraði Sveinn:
Við sönginn margur tekur tryggð,
tónlist allir vilja muna.
Það er mannsins mesta dyggð
að mæta vel á æfinguna.
Hægt væri að halda úti veröldina á
enda, vísnaefni frá Skagfirðingum. Einn
er sá sem allir þekkja og dá, og það er
Sigurður Hansen, bóndi og fræðimaður
á Kringlumýri í Akrahreppi. Eitt sinn rakst
Sigurður á málshátt svofelldan: „Enginn
er alheimskur sem þegja kann.“ Þá orti
hann:
Mælsku tíðast lætur lit,
list er fátt að segja,
því taumhald þarf og talsvert vit
til þess eins að þegja.
Kýrin Laufa varð yxna hjá Stefáni Hrólfs
syni á Keldulandi. Sigurður Hansen orti
af því tilefni:
Amors drauminn ýmsum hjá
eðlið gefur falan.
Eva lagði laufblað frá,
Laufa færði halann.
Sigurður var einhverju sinni beðinn um að
semja brúðkaupsljóð. Hann varð eitthvað
seinn fyrir og þurfti að fá framlengdan
skilafrestinn. Afraksturinn varð þetta
stórkostlega 7 henta ljóðkorn:
Gifting er gáleysi mesta
og glötun á öllu því besta
um aldur og ævi hjá hreinum
ástlausum piparsveinum.
En svona er lífsins losti
hann læðist í hörku frosti
í saklausa sveitamenn.
Gifting er gjörningur besti
og gæfunnar veganesti,
elskir þú konu eina
sem aðeins kemur til greina.
En þeir sem ei einsemd una
ættu líka að muna
að Kristur var konulaus.
Enn berast skáldverk í hendur mínar.
Þórarinn Eldjárn færði mér til gjafar sitt
nýjasta vísnakver „Allt og sumt“, sem hefur
að geyma snjallar vísur undir gamansömum
háttum. Sérkenni Þórarins í vísnagerð
eru orðaleikir, eins konar útúrdúrar frá
hefðbundnum yrkisefnum. Háttsemi hans
mætti e.t.v. nefna „orðhengilshátt“. Bók
Þórarins Eldjárn er fágætt skemmtiefni,
og hér eftir fá lesendur örlitla nasasjón af
efni bókarinnar. Upphafsvísu bókarinnar
nefnir hann „Efstef“.
Þéttan ljóða vef ég vef,
vel biðst forláts ef ég gef
ykkur svona stef og stef
sem stolið hef.
„Til eru tól“.
Ekki er þörf á ýtu
ef þú tálgar spýtu.
Eins ef bilar úrverk
illa hentar múrverk.
„Tímans rás“.
Enn rásar almanak
undarlegt tímaskeið
annaðhvort aftur á bak
ellegar nokkuð á leið.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
297MÆLT AF
MUNNI FRAM
Hallgrímur Harðarson, starfsmaður hjá Búvís á Akureyri, fylgdist með þegar verið var að lesta nokkur hundruð tonn af áburði um borð í skip
sem síðan sigldi til Þórshafnar. Þaðan var áburði dreift í sveitirnar í kring. Myndir / MÞÞ
Áburður á norðausturhornið
Bændur hafa undanfarið verið í óða önn
að bera áburð á tún sín, sumir eru enn að
og verða eitthvað fram eftir maímánuði
við þá iðju.
Búvís á Akureyri er eitt þeirra fyrirtækja sem
flytja inn áburð og segir Einar Guðmundsson,
eigandi þess, að alls hafi nú á vordögum komið
2 skip fulllestuð af áburði.
„Við erum með svipað magn og var í fyrra.
Alls 18 tegundir og höfum verið að dreifa
þessu hér og hvar um landið, en skipið landar á
8 höfnum víða um land. Þaðan er áburði dreift
um nærliggjandi sveitir,“ segir hann. /MÞÞ
Fulltrúar kjúklinga- og eggjabænda á Norðurlöndunum (NPC) áttu góðan og gagnlegan fund í Kaupmannahöfn á dögunum þar sem farið var yfir
stöðu greinanna í löndunum og ýmis málefni rædd. Einnig komu áhugaverðir fyrirlesarar frá dönsku Bændasamtökunum inn á fundina til að
ræða nýjar reglur sem tengjast fiðurfé hjá Evrópusambandinu og hvaða áhrif þær muni hafa, ásamt því að kynnt var verkefni samtakanna sem fór
fram fyrr á þessu ári þar sem streymt var beint í sólarhring frá kjúklingabúi á samfélagsmiðlum en í framhaldinu sköpuðust líflegar umræður um
hvernig til tókst og áhrifin sem slíkt streymi getur haft. Árlega heldur NPC stóran fund greinanna í nóvember og að þessu sinni verður fundurinn
haldinn í Álaborg í Danmörku þar sem koma saman hátt í 200 manns af Norðurlöndunum og frá fleiri löndum í Evrópu.
Fulltrúar kjúklinga- og eggjabænda á
Norðurlöndunum (NPC)