Bændablaðið - 12.05.2022, Qupperneq 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 2022 35
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
ALTERNATORAR
gerðir dráttarvéla
Aðalnúmer: 412 5300 | Söludeild: 412 5350 | Netfang: sala@limtrevirnet.is
Söluskrifstofur: Lynghálsi 2, 110 Reykjavík | Borgarbraut 74, 310 Borgarnes
Áratugareynsla við íslenskar aðstæður
Stuttur afgreiðslutími og fjölbreytt úrval
Uppsetning í boði á hurðum og viðbótarbúnaði
Margir litir og fylgihlutir í boði
Traustar bílskúrs- og
iðnaðarhurðir frá Lindab
og Krispol
limtrevirnet.is
FALLEGAR
HURÐIR SEM
ÞÚ GETUR
TREYST
skoðaðu úrvalið limtrevirnet.is
LÍF&STARF
Ábúðarfullt fólk að undirrita samning, pennarnir sem notaðir voru til
verksins voru unnir úr eyfirsku lerki og eik. Á myndinni eru frá vinstri:
Pétur Halldórsson, Finnur Yngvi Kristinsson, Sigríður Hrefna Pálsdóttir og
Ingólfur Jóhannsson.
Eyjafjarðarsveit og Skógræktarfélag Eyfirðinga:
Styrktarsamningur markar
tímamót í starfi félagsins
Skrifað hefur verið undir styrktar
samning til tveggja ára milli
Skógræktarfélags Eyfirðinga og
Eyjafjarðarsveitar.
„Þessi styrktarsamningur við
Eyjafjarðarsveit markar viss
tímamót í starfi Skógræktarfélags
Eyfirðinga. Hann styrkir stoðir elsta
starfandi skógræktarfélags landsins
og gerir því kleift að sinna betur
skógarreitum í umsjón félagsins
sem eru í Eyjafjarðarsveit,“ segir
Sigríður Hrefna Pálsdóttir, formaður
Skógræktarfélags Eyfirðinga.
Sameiginlega munu skógræktar
félagið og sveitarfélagið vinna saman
að góðum verkum sem tengjast
umhirðu og bættu aðgengi skóglenda,
lýðheilsu, kolefnisjöfnunar, fræðslu
og náttúruskoðunar svo eitthvað sé
nefnt. Sigríður Hrefna segir Skóg
ræktar félagið vera með 6 misstóra
reiti í Eyjafjarðarsveit í sinni umsjón.
„Þessi tveggja ára samningur
gerir allt okkar starf markvissara
og styrkir samtalið og samvinnuna
við íbúa sveitarfélagsins. Við í stjórn
Skógræktarfélags Eyfirðinga erum
mjög ánægð með þessa þróun og
hlökkum til frekara samstarfs við
Eyjafjarðarsveit,“ segir hún.
Skógræktarfélag Eyfirðinga
hefur ræktað sína reiti í yfir 90 ár
og eftir því sem skógarnir stækka
og trén hækka eykst skjólið og
jarðvegurinn dýpkar og magnast.
Margir af þeim 11 skógarreitum
í umsjón félagsins henta vel til
útivistar, um þá er hægt að rölta
í skjóli trjánna við fuglasöng og
lækjarnið. Í flestum er hægt að
finna falleg rjóður þar sem hægt er
að hvílast og borða nesti.
Skógræktarfélagið hefur í áratugi
verið með þjónustusamning við
Akureyrarbæ sem nýttur hefur
verið við vinnu í Kjarnaskógi þar
sem skógarhjarta félagsins slær. En
fulltrúar í stjórn Skógræktarfélags
Eyfirðinga vilja gera betur og hafa
því í vetur unnið með fulltrúum
þeirra sveitarfélaga þar sem
skógarreitir félagsins eru í því skyni
að finna flöt á samstarfi. /MÞÞ