Bændablaðið - 12.05.2022, Qupperneq 40
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 202240
„Verkefni hjá okkur hafa aukist
umtalsvert um árin, það er í
takt við sífellt meiri umferð hér
um svæðið,“ segir Haraldur
Helgi Hólmfríðarson, formaður
Björgunarsveitarinnar Ingunnar.
Til stendur að halda upp á
fertugsafmæli sveitarinnar á
næstunni, en sveitin var stofnuð
15. apríl 1981. Afmælið var reyndar
í apríl á liðnu ári, en þá viðraði ekki
vel til veisluhalda í samfélaginu,
enn ein bylgjan í heimsfaraldri
kórónuveirunnar í gangi.
Björgunarsveitin Ingunn
er lítil sveit en með stórt
starfssvæði, Þingvallasveit,
Laugardal auk hálendisins
sem tilheyrir Bláskóga byggð.
Um fimmtíu manns eru í sveitinni
og úr þeim hópi eru um fimmtán
hvað virkastir.
Haraldur Helgi segir að til standi
að halda upp á tímamótin með pomp
og prakt og rjómatertu með hækkandi
sól og hitastigi. Afmælisnefndin
hugar að hentugri dagsetningu
fyrir veisluhöldin, sem líklegast
verða þegar botn verður sleginn úr
vetrarstarfinu.
Félagar í Björgunarsveitinni
Ingunni eru nú í óðaönn að safna
fé fyrir nýjum björgunardróna
af bestu gerð. Hann kostar um
5 milljónir króna með öllu, en í
honum er hitamyndavél sem hann
segir gagnast mjög vel við leit og
einnig næturmyndavél, radar og
ljós. „Dróninn mun nýtast okkur
mjög vel við margvísleg verkefni,
hvort heldur um er að ræða leit að
fólki eða búfénaði, en þar koma
hita- og næturmyndavélarnar að
miklu gagni,“ segir hann, en dróninn
er einnig með radar sem nýtist við
þrívíddarskönnun.
„Það er alveg ljóst að svo
fullkominn og góður dróni mun
koma sér vel í framtíðarverkefnum
okkar, hann sparar okkur sporin og
léttir okkar starf,“ segir Haraldur
Helgi, en sveitin er staðsett í miðju
Gullna hringsins þar sem umferð er
gríðarlega mikil. Sívaxandi fjöldi
ferðamanna fer um svæðið og þá
eru um 1.900 orlofshús á starfssvæði
sveitarinnar. Þá eru einnig nokkur
vötn á svæðinu, sveitin er iðulega
kölluð út vegna atvika sem upp koma
í kringum Þingvallavatn, Laugavatn
og Apavatn.
Útköllum fækkaði á
Covid-tímanum
Kveikjan að því að björgunarsveitin
var stofnuð var einmitt hörmulegt
slys í Apavatni þar sem feðgar
drukknuðu, en í kjölfarið var rætt um
nauðsyn þess að hafa björgunarsveit
til taks á svæðinu. Sveitin var stofnuð
nokkrum árum eftir slysið. „Um árin
hefur starfsemin farið vaxandi og
sveitin sannað gildi sitt, útköllum
fjölgar á milli ára,“ segir Haraldur
Helgi, með þeirri undantekningu þó
að úr dró á Covid-árunum, enda mun
færri á ferðinni þann tíma.
Hann nefnir sem dæmi að á fyrstu
tveimur mánuðum síðastliðins árs
hafi verið tvö útköll hjá Ingunni, en
nú í ár voru þau 19. „Það má segja
að Covid hafi þannig haft jákvæð
áhrif á starfsemi sveitarinnar,“ segir
hann og bætir við að einnig hafi ungt
fólk flutt í heimahagana á ný meðan
heimsfaraldur var í hæstu hæðum og
LÍF&STARF
*Afborganir miðast við Lykillán fyrir 75% af kaupverði til 60 mánaða frá Lykli fjármögnun. Vextir
miðast við 6,8% breytilega vexti og eru tengdir við eins mánaða reibor vexti. Lánaskilmála má finna
á www.lykill.is. Árleg hlutfalltala kostnaðar – ÁHK er ** 8,88% - Verð innifelur virðisaukaskatt.
Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | S: 540 4900 | www.yamaha.is
Verð: 2.560.000 kr.
700cc fjórgengis-4WD-H/L drif - driflæsing -
spil - rafmagnsstýri - dráttarkúla - götuskráð
- hvít númer - 307kg eigin þyngd.
GRIZZLY
39.438 kr.*
afborgun á mánuði **
10
Á
BYRGÐ Á DRIFREIM
ULTRAMATIC
ÁBYRGÐ
LÁNSHLUTFALL
ALLT AÐ
75%
Í ALLT AÐ 60 MÁNUÐI
Björgunarsveitin Ingunn í Bláskógabyggð fagnar 40 ára afmæli:
Safnar fyrir fullkomnum dróna sem auðveldar leit
– Aukin verkefni í takt við aukinn fjölda fólks á ferð á svæðinu, í miðju Gullna hringsins
Land Cruiser sveitarinnar eftir útkall á Lyngdalsheiði vegna ófærðar. Myndir / BSV Ingunn
Þessi mynd er tekin í útkalli í febrúar þegar kona týndist á Lyngdalsheiði
í vondu veðri.
Haraldur Helgi Hólmfríðarson,
formaður Björgunarsveitarinnar
Ingunnar í Bláskógabyggð. Sveitin
er nú í óða önn að safna fé til að
kaupa fullkominn dróna sem nýtist
einkar vel við leit að bæði fólki og
búfénaði.
Stephanie Langridge, annar Ástralinn í sveitinni, stillir
sér upp við þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir útkall við
Tintron þar sem mótorhjólamaður slasaðist illa.
Myndin er tekin í útkalli á Mosfellsheiði í rauðu veðurviðvöruninni. Haraldur
Helgi að brasa við spilið til að hjálpa ferðamanni.