Bændablaðið - 12.05.2022, Blaðsíða 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 2022 41
Hröð ásetning I Hljóðlátur I Viðhaldslítill I Sveigjanleiki í uppsetningu
FULLWOOD M²ERLIN
Mjaltaþjónn
Scanice er komið í samstarf við fyrirtækið Lark, einn stærsta framleiðanda á stöðuhýsum og
öðru tilheyrandi. Við bjóðum upp á ýmsar útgáfur húsa til dæmis sérstakra húsa sem hönnuð
eru með ferðaþjónustu í huga. Möguleikarnir eru margir og flestar óskir hægt að uppfylla.
Heyrið í okkur!
Scanice
I n n f l u t t a f
www.scan ice . i s +354-8985469
Vallargata 1, 580 Siglufjörður · s. 898 5469 · info@scaniceexport.com · www.scanice.is
Varahlutaþjónusta
Við getum útvegað vara- og
fylgihluti fyrir allar tegundir
beltagrafa, tækja, lyftara,
vinnulyfta, brettatjakka,
dráttarvéla, þriftækja,
golfbíla og fleira.
Sími:544-4210
www.verkfaeriehf.is
Varahlutadeild er staðsett í Tónahvarfi 3, Kópavogi.
Tónahvarfi 3, 203 Kópavogi
Tekið á gosvakt við upphaf eldgossins í Fagradalsfjalli.
einhverjir gengið til liðs við sveitina.
Dróninn verður góð viðbót
við tækjakostinn
Haraldur Helgi segir að hópurinn
sem starfi innan sveitarinnar sé
samheldinn og góður. Sveitin sé
ágætlega tækjum búinn og þá á
hún hér um bil skuldlaust gott
og hentugt húsnæði. „Við rekum
öflugt unglingastarf í samstarfi
við Hjálparsveitina Tintron á Borg
í Grímsnesi og Björgunarsveit
Biskupstungna í Reykholti. Hátt í
20 krakkar hittast vikulega og fá hin
ýmsu verkefni,“ segir hann.
Björgunarsveitin á tvo vélsleða,
vel búna jeppa og ýmislegt fleira sem
að gagni kemur við björgunarstörf.
Þá á sveitin mjög öflugan og góðan
björgunarbát og er að sögn líklega
með einn besta búnað af því tagi hjá
björgunarsveit sem ekki er starfandi
í námunda við sjó. Hann segir að
dróninn sem nú er safnað fyrir yrði
góð viðbót í tækjakost sveitarinnar.
Hann nefnir að þegar flugslysið varð
fyrr á árinu á Þingvallavatni hefðu
þeir haft aðgang að sams konar dróna
og sveitin hefur pantað. Sá var á flugi
í rúmlega hálftíma í 19 gráða frosti.
Flugþolið er mikið og er það einn af
kostum drónans.
„Við hlökkum mikið til þegar við
náum að kaupa drónann og getum
tekið hann í notkun. Við erum að
vonast til þess að ná að skrapa þessu
saman á næstu viku þannig að hann
verði kominn í okkar hendur í byrjun
sumars, en erum líka viðbúin því
að það verði ekki fyrr en í haust,“
segir Haraldur Helgi. „Dróninn mun
að mínu mati stórbæta sveitina og
auðvelda okkur starfið í útköllum, en
það eru líka líkur á að hann trekki að
fleiri félaga, gamla sem nýja.“
Engin flugeldasala
Ólíkt flestum björgunarsveitum
innan Landsbjargar selur
Björgunarsveitin Ingunn ekki
flugelda og reiðir sig því
algjörlega á styrki frá samfélaginu
í Bláskógabyggð. Haraldur Helgi
segir að ákvörðun um að stunda
ekki flugeldasölu hafi verið
tekin fyrir fjórum árum og var
að sögn þeirra sem hana tóku
auðveld. „Það er mannskapsfrekt
að selja flugelda, reglugerðir í
kringum söluna eðlilega miklar og
hagnaðurinn þegar upp var staðið
ekki mikill,“ segir hann.
Samfélagið sé á sama máli
og félagar í sveitinni, margir
hestamenn eru á svæðinu og
sem dæmi eigi flestir félagar
í björgunarsveitinni hesta. Þá
eru kindur hafðar í opnum
fjárhúsum á mörgum bæjum
í sveitarfélaginu. „Ónæðið af
flugeldum er því aðallega bundið
við flugeldasýninguna sem við
sjáum um á gamlárskvöld og
svo þeir örfáu sem skjóta upp í
þorpinu,“ segir hann.
Helstu tekjur frá Vegagerðinni
Helstu tekjur sveitarinnar koma frá
Vegagerðinni en félagsmenn sjá
um vegalokanir í vondum veðrum
á Lyngdalsheiði og Mosfellsheiði.
„Þetta er það sem heldur lífinu í
sveitinni,“ segir Haraldur Helgi
og bætir við að engin stór öflug
sjávarútvegsfyrirtæki séu í þeirra
bakgarði, sem gjarnan styðja við
sveitirnar í sinni heimabyggð. Þau
ferðaþjónustufyrirtæki sem aka
með ferðafólk Gullna hringinn
eru í flestum tilvikum staðsett í
Reykjavík og styrkja sveitir á því
svæði með einhverju móti.
Haraldur Helgi segir að öllum
sé meira en velkomið að leggja
söfnuninni lið, en sveitin er með
Facebook-síðu þar sem allar
upplýsingar koma fram og einnig
heimasíðuna www.ingunn-sar.is
/MÞÞ