Bændablaðið - 12.05.2022, Side 51
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 2022 51
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
ALLAR STÆRÐIR
AF CAT RAFSTÖÐVUM
Gerðu kröfur - hafðu samband við Karl
í síma 590 5125 og kynntu þér þína möguleika.
Stöðvar í gám
Ultrasonic Cleaner
Nokkrar stærðir
Sandblásturskassar
með/án ryksugu
Nokkrar stærðir
Sandblásturskútur
m/ryksugu 80L
Amerískir
Sandblásturskassar
HREINSIEFNI - Íslensk
SANDBLÁSTURSSANDUR
SANDBLÁSTURSKASSAR
SANDBLÁSTURSKÚTAR
SANDBLÁSTURBYSSUR
KERAMIKSPÍSSAR
ÞVOTTAKÖR
ULTRASONIC CLEANER
O.m.fl.
SENDUM FRÍTT UM ALLT LAND MEÐ FLYTJANDA
ALK 150
ÞETTA SEM VIRKAR
og er einstaklega gott á
verkstæðið, í hesthúsið,
fjárhúsið og fjósið.
Umhverfisvænt sterkt
alkalískt hreinsiefni fyrir erfið
óhreinindi. Alhliða hreinsiefni
fyrir gólf, veggi, áhöld, vélar
og fl. Virkar sérstaklega vel á
fitu og sót.
Verð: 5L, 3.949 kr
20L, 12.815 kr
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA
SÍÐAN 1985
Sandblásturskútar
3 stærðir
Gildir ekki fyrir tilboðsvörur
Sveitarfélagið Skagafjörður:
Hjalti Pálsson heiðursborgari
Sveitarstjórn Sveitarfélagsins
Skagafjarðar hefur útnefnt
Hjalta Pálsson heiðursborgara
sveitarfélagsins.
Hjalti Pálsson fæddist árið 1947 á
Sauðárkróki en ólst upp hjá foreldrum
sínum á Hofi í Hjaltadal. Hann var
bókavörður á Héraðsbókasafni
Skagfirðinga 1976-1990 en tók
þá við starfi héraðsskjalavarðar
Héraðsskjalasafns Skagfirðinga til
ársins 2000. Hjalti var ráðinn ritstjóri
Byggðasögu Skagafjarðar árið 1995.
Hjalti var sæmdur heiðursmerki
hinnar íslensku fálkaorðu árið 2010
fyrir framlag til héraðssögu, fræða
og menningar.
Viðamikið byggðasögurit
Byggðasaga Skagafjarðar er eitt
viðamesta og metnaðarfyllsta
verkefni í byggðasöguritun sem
farið hefur fram á Íslandi. Við ritun
byggðasögunnar heimsótti ritstjóri
hverja einustu jörð í Skagafirði og
aflaði viðamikilla og ómetanlegra
gagna og upplýsinga.
Hjalti hefur einnig um áratuga
skeið verið formaður Sögufélags
Skagfirðinga en á vegum þessa
elsta héraðssögufélags landsins hafa
komið út á annað hundrað rit um
sögu Skagafjarðar, m.a. Skagfirskar
æviskrár, Saga Sauðárkróks,
Skagfirðingabók og fleiri rit, auk
byggðasögunnar. Hjalti hefur þar
sem annars staðar lagt fram gríðarlegt
vinnuframlag við ritun, ritstjórn og
annað sem tilheyrir útgáfu ritanna og
starfsemi Sögufélags Skagfirðinga.
Þá hefur Hjalti fært Héraðsskjalasafni
Skagfirðinga að gjöf og til varðveislu
ýmis gögn og ljósmyndir úr sínum
fórum.
Þakkir fyrir framlag til
héraðssögunnar
Hjalti er annar í sögu sveitarfélagsins
til að hljóta nafnbót heiðursborgara
en Bjarni Haraldsson var útnefndur
heiðursborgari Sveitarfélagsins
Skagafjarðar fyrstur manna árið 2019.
Jón Þ. Björnsson, Eyþór Stefánsson
og Sveinn Guðmundsson höfðu
hlotið heiðursborgaranafnbótina í
tíð Sauðárkrókskaupstaðar áður.
„Með því að sæma Hjalta Pálssyni
heiðursborgaratitli vill Sveitarfélagið
Skagafjörður þakka Hjalta fyrir
hans framlag til héraðssögu,
fræða og menningar um áratuga
skeið og fyrir að gera Sskagfirskt
samfélag enn betra,“ segir á vefsíðu
sveitarfélagsins. /MÞÞ
Hjalti Pálsson heiðursborgari Sveitarfélagsins Skagafjarðar.
LÍF&STARF
Ársfundur 2022
Ársfundur Lífeyrissjóðs bænda
verður haldinn föstudaginn 3. júní 2022 kl. 14
að Stórhöfða 23, 4. hæð, Reykjavík.
Dagskrá:
▪ Venjuleg ársfundarstörf.
▪ Stjórnarkjör.
▪ Tillögur um breytingar á samþykktum.
▪ Önnur mál.
Allir sjóðfélagar eiga rétt til fundarsetu.
Stjórn Lífeyrissjóðs bænda
Lífeyrissjóður bænda - Stórhöfða 23 - 110 Reykjavík
Sími 563 1300 - lsb@lsb.is - www.lsb.is