Bændablaðið - 12.05.2022, Blaðsíða 53
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 2022 53
Strúktúr ehf | www.struktur. is | struktur@struktur. is | Bæjaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími: 588 6640
Strúktúr ehf | www.struktur. is | struktur@struktur. is | Bæjaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími: 588 6640
Fjölbreyttar lausnir
fyrir hús & nýbyggingar
Strúktúr er með
lausnina fyrir húsið
Allt sem við hugsum, allt sem við gerum,
snýst um þig okkar viðskiptavin
Einingahús CLT
krosslímt tré
Z Strúktúrhús
Gluggar & hurðir
Utanhússklæðningar
Límtré
Stálgrindarhús
Yleiningar
Dúkar & þéttiborðar
Við erum alltaf
klár í spjallið
Hafðu samband við okkur
Strúktúr_ISC000762_220x305.indd 1 10-03-2022 10:58:11
Allt í blóma er ný íslensk bók sem
fjalar um ræktun pottaplantan við
íslenskar aðstæður. Höfundur
er Hafsteinn Hafliðason sem er
margverðlaunaður fyrir ævistarf
sitt sem tengist garðyrkju og
ræktun og ekki síst fræðslu.
Hafsteinn segir að í bókinni
fjalli hann um margar af þeim
pottaplöntum sem hann hefur rekist
á og viti að hafa verið í ræktun hér
á landi. „Ég hef lengi viðað að
mér upplýsingum um pottaplöntur
en vinna við bókina hófst fyrir
alvöru snemma síðastliðið vor og
ég sat við langt fram á haust. Þó
ég hafi nú ekki reynslu af því að
rækta allar tegundirnar í bókinni þá
þekki ég þær flestar, hef fylgst með
tískustraumunum og kynnst þeim
tegundum sem hafa ratað hingað upp
á land. Lesendur ættu því að finna
ansi gott yfirlit í bókinni yfir flestar
ættkvíslir stofublóma.“
Ræktum garðinn
Auk þess að vinna að gerð
bókarinnar vann Hafsteinn við gerð
sjónvarpsþátta síðastliðið sumar þar
sem hann fjallaði um vinsælar garð-
og skálaplöntur sem ræktaðar eru í
pottum.
Hafsteinn segir að talsverðar
tískusveiflur sé á
blómamarkaði og
plöntur detti í og
úr tísku. „Í dag eru
alls kyns skræpur
vinsælar en það
er plöntuafbrigði
með marglitum
blöðum. Gömlu góðu
ömmublómin sem
eru plöntur sem voru
vinsælar fyrir og um
miðja síðustu öld eru
líka margar að komast
aftur í tísku, ekkert nema gott um
það að segja því reynslan af mörgum
þeirra er góð.“
Að sögn Hafsteins er mikið
að nýjum gerðum og sortum
pottaplantna mikið framræktaðar og
oft um að ræða afleggjara af sömu
plöntu sem hefur verið á einhvern
hátt sérstök og eftirsótt og því
fjölgað endalaust kynlaust.
Flóra íslenskra pottaplantna
Í bókinni, sem er eins konar flóra
íslenskra pottaplantna, er fjallað um
hátt í 350 tegundir og tilbrigði og
myndir eru af þeim flestum. Sagt
er frá uppruna plantnanna,
þeim lýst og fjallað um
umhirðu þeirra. Hvernig á
að hugsa um stofublómin,
hvaða staðsetning og birta
hentar þeim best, hvernig
mold kýs plantan, hvað á
að gefa henni mikinn áburð
og hvað á að vökva hana
mikið?
Garðyrkjugúrú og
þjóðargersemi
Allt í blóma er mikill akkur
fyrir fólk sem hefur áhuga á allri
garðyrkju enda er Hafsteinn
Hafliðason stórveldi þegar kemur
að gróðri, ræktun og fræðslu. Í
bókinni Allt í blóma beinir hann
sýn sinni að inniplöntum sem
ræktaðar hafa verið á Íslandi og
eys af ótæmandi viskubrunni
sínum og vökvar fróðleiksfúst
ræktunarfólk með áburðarlausum
fróðleik og skemmtun. Hafsteinn er
garðyrkjugúrú og þjóðargersemi.
/VH
Þjóðargersemin og garðyrkjugúrúinn Hafsteinn Hafliðason með nýju bókina.
Allt í blóma:
Pottaplöntur við íslenskar aðstæður
BÆKUR& MENNING
Vetrarsól er umboðsaðili
Sláttuvélar
& sláttuorf
Snjóblásarar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
40 ár
á Íslandi
Sláttutraktorar