Bændablaðið - 12.05.2022, Qupperneq 62
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 202262
Ég var búinn að heyra töluvert
um nýjasta rafmagnsbílinn sem
Brimborg er að selja og ber nafnið
Polestar 2, fæst í þrem útgáf um,
framhjóladrifinn eða fjórhjóla
drifinn.
Ég prófaði fjórhjóladrifna
bílinn sem er sagður vera 408
hestöfl. Polestar 2 er hægt að fá í
þrem mismunandi útfærslum, 231
hestafls, eindrifs eða fjórhjóladrif
með 408 hestöfl. Polestar 2 kostar
frá 5.840.000 upp í 8.300.000,
en það var dýrasti bíllinn sem ég
prófaði. Uppgefin drægni á bílunum
þremur er á bilinu 474-542 km.
Prufuaksturinn
Þegar ég fékk bílinn var hleðslan
á honum 65% (einhverjir höfðu
verið að prófa bílinn á opnunartíma
á laugardeginum 30. apríl), þá sýndi
mælaborðið að ég hefði 260 km til
prufuaksturs.
Eins og alltaf var byrjað á að
hávaðamæla bílinn á 90, en þar varð
ég fyrir vonbrigðum, 72,8db. er alltof
mikill hávaði í rafmagnsbíl. Ekki
síst þegar bíll eins og SsangYong
Rekston, sem er með stóra díselvél,
mælist 65db. Ég vildi í fyrstu ekki
trúa mælingunni, en eftir aðra
mælingu var niðurstaðan sú sama.
Að sitja í körfusætunum er gott,
sérstaklega ef sætin eru í lægri
stillingu, en ef maður hækkar sætið
eitthvað er orðið erfitt að spenna á
sig beltið þar sem stokkurinn á milli
sætanna þrengir að annars vegar og
sætið hins vegar.
Hann var mjög stuttur malar-
kaflinn sem ég keyrði, en lágur
prófíll 20 tommu dekkjanna
sem undir bílnum voru eru ekki
skemmtileg dekk til að keyra á
malarvegum.
Þau fjaðra nánast ekkert og eru
svo harðpumpuð að maður finnur
fyrir nánast öllum steinum, en
smásteina/malarhljóð var aðeins
yfir meðallagi á þessum bíl.
Miðað við ekna kílómetra og
niðurtalningu á drægni virtist það
vera nánast alveg jafnt þannig
að ef mælaborðið segir 100 km
eftir eru 100 km eftir í drægni.
Hef nokkrum sinnum lent í því á
öðrum rafbílum að þó að allt að
100 km akstursdrægni sé uppgefin
í mælaborði þá sé ekki eftir rafmagn
nema til 50 km aksturs.
Frábærir aksturseiginleikar á
sléttu óskemmdu malbiki
Þegar bílnum er gefið hressilega
inn hreinlega klessist maður aftur í
sætið, ekki ósvipað og að skjóta úr
haglabyssu nema þá fer bara önnur
öxlin aftur en þarna báðar (uppgefin
hröðun á bílnum sem prófaður var er
4,7 sek. úr 0 í 100 km hraða).
Í beygjum liggur bíllinn vel og
körfusætið heldur manni stöðugum
þó að hraðinn sé mikill í beygjum,
en þá verður malbikið að vera slétt
og óskemmt sem er því miður orðið
vandfundið.
Bremsurnar eru einhverjar
albestu í bíl sem ég hef prófað, en
þegar ekið er á vegum eins og þeir
eru nú að koma undan vetri finnst
manni maður alltaf vera í hættu á
að skemma dekk eða felgu þar sem
að bíllinn er frekar þungur.
Sé hugsað um verð og gæði þá
virðist vera góð kaup í Polestar 2
Þegar maður keyrir með
hraðastillinn á (cruse control)
sem fylgir næsta bíl á undan vel ef
bíllinn á undan hægir á sér, gerir
Polestar 2 það líka og er þá nóg að
halda laust um stýrið því að bíllinn
stýrir sjálfur á meðan hann getur
lesið hliðarlínumerkingarnar. Ef
maður sleppir stýrinu kvartar
mælaborðið nánast strax að
ekki sé haldið um stýrið meðan
hraðastillirinn er á.
Myndin sem kemur á skjáinn
þegar bakkað er virkar svolítið
sérstök, en hún sýnir vel allan
hringinn í kringum bílinn á
svolítið sérstakan hátt og örugg-
lega mjög gott að venjast þessu,
sem ég tel að þurfi þar sem
baksýnisspeglarnir á hliðum
bílsins eru mjög litlir.
Farangursrými er gott og það er
líka hugsað um lítinn farangur þar
sem auka 35 lítra farangursrými er
undir „húddi“ að framan.
Afturljósin loga alltaf í akstri,
en ekkert varadekk frekar en í
flestum öðrum rafmagnsbílum.
Myndi sjálfur velja Mustang
Ég hef fengið spurningar um
hvaða fjórhjóladrifni rafmagnsbíll
sé bestur. Þar sem að Mustang
og Polestar eru seldir í sama sal
finnst mér í lagi að bæta örlítið við
greinina. Af þeim fimm fjórhjóla-
drifnu rafmagnsbílum sem ég hef
prófað hefur mér fundist þeir vera
háværari inni í bílunum á 90 km
hraða en rafmagnsbílar með drif á
einum öxli, en Jaguar fór rétt yfir
70 db., Tesla 71,5 og nú Polestar 2
mældist 72,8 sem mér finnst allt of
mikið fyrir rafmagnsbíl. Mustang
67,8 db. og MG 66,7db. Teslan
er vissulega snörpust í hröðun og
Jaguar mýkstur og fer best með
mann (sætin best og fjöðrunin).
Þetta er samt mín skoðun og eftir
að hafa prófað alla þessa fimm bíla
þá væri val mitt Mustang.
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Fjórhjóladrifinn 408 hestafla Polestar 2. Myndir / HLJ
Finnst alltaf flott afturljós svona þvert yfir. Framsætin eru góð, en ef maður
hækkar sætið of mikið er frekar erfitt
að spenna öryggisbeltið.
Lítill hleri í farangursrýminu með snögum og teygju finnst mér sniðugur
hlutur.
Svolítið sérstök bakkmyndavélin,
sýnir umhverfið vel í björtu.
Stærsti mínusinn fannst mér hávaða
mælingin á 90. Enginn rafmagns bíll
á að mælast yfir 70 db.
20 tommu dekkin gefa ekki mikla
fjöðr un, en þessar bremsur eru
æðis legar.
Þyngd 2.113 kg
Hæð 1.479 mm
Breidd 1.985 mm
Lengd 4.606 mm
Helstu mál og upplýsingar